Læknablaðið - 01.12.1970, Blaðsíða 30
178
LÆKNABLAÐIÐ
Þá barst Læknafélaginu bréf frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
dags. 21.2. 1969. Var það frumvarp til laga um breytingu á lögum nr.
47. 23. júní 1932 um lækningaleyfi o. fl. Frumvarp þetta var samið á
vegum landlæknis og ráðuneytisins og óskað umsagnar Læknafélags-
ins, áður en það yrði lagt fyrir Alþingi. í frumvarpi þessu er m. a.
það nýmæli, að ráðherra er heimilað að veita erlendum ríkisborgurum
lækningaleyfi hér á landi, ef þeir fullnægja skilyrðum, sem nefnd eru
í 1. málsgr. 3. gr. læknalaga frá 1932, þ. e., að læknadeild og land-
læknir samþykki hæfni þeirra og kunnáttu í læknisfræði.
Læknafélagi íslands virðist hins vegar nauðsynlegt, að í lögunum
sé ákvæði um það, að þeir erlendir ríkisþorgarar, sem hljóti slíka
viðurkenningu, hafi lokið læknanámi og prófi við viðurkennda há-
skóla. Þá var og einnig óskað eftir því, að í frumvarpi kæmi ákvæði
um það, að þeir erlendir ríkisborgarar, sem lækningaleyfi hljóta hér,
geti sannað, að þeir hafi nægilega kunnáttu í rituðu og töluðu íslenzku
máli að dómi landlæknis. Þá var einnig óskað eftir því, að felld yrði
úr frumvarpi atriði, er snerta starf sérfræðinga. Bréf þessa efnis var
skrifað til dóms- og kirkjumálaráðuneytisins (fskj. 8 A), og hafði for-
maður félagsins samband við ráðuneytið um afgreiðslu þessa máls og
fékk þær upplýsingar, að tillögur Læknafélagsins hefðu verið teknar
til greina, áður en frumvarpið var afgreitt til Alþingis. Mun þetta frum-
varp því ekki frekar koma til afgreiðslu hjá Læknafélaginu.
Læknisþjónusta við Stjórn L.í. hefur um alllangt bil, eða allt frá
sjúkrahúsið á 1967, fylgzt með fyrirkomulagi á læknisþjónustu
Húsavík og starfsháttum lækna á Húsavík, og hafa um
mál þetta farið fram allmikil bréfaviðskipti, sem
Læknafélagið hefur fylgzt með og tekið þátt í. Ekki þykir ástæða að
rekja mál þetta í einstökum atriðum hér, enda saga þess ekki öll.
í byrjun árs 1969 barst stjórn L.í. tilmæli frá stjórn Sjúkrahúss
Húsavíkur um það, að stjórn Læknafélags íslands sendi fulltrúa til
Húsavíkur til þess að ræða deilumál, sem upp hefði komið milli lækna
á Húsavík varðandi störf við sjúkrahúsið. Ákveðið var, að eftirtaldir
fulltrúar Læknafélags fslands færu til Húsavíkur til bessara við-
ræðna: Arinbjörn Kolbeinsson formaður, Friðrik Sveinsson ritari og
Örn Bjarnason meðstjórnandi. Voru haldnir fundir með sjúkrahús-
stjórninni og læknunum á staðnum. Athugaðar voru starfsreglur að-
stoðarlækna við sjúkrahúsið á Húsavík, samdar af Daníel Daníelssyni
(fskj. 9).
Ákveðið var, að stjórn Læknafélags íslands semdi drög að starfs-
tilhögun fyrir lækna á Húsavík, og gera þannig tilraun til að leysa
ágreiningsatriði. Sjúkrahússtjórn var síðan tilkynnt um, að L.f. hefði
samið þessar starfsreglur og sent bær læknunum (fskj. 9 A). Raunin
varð sú, að ekki féllust allir læknarnir á að vinna eftir bessum til-
lögum, og leiddu þær því ekki til lausnar deilunnar.
24. febrúar berst síðan skeyti frá sjúkrahússtjórninni á Húsavík,
þar sem óskað er eftir því, að Læknafélag fslands aðstoðaði við að