Læknablaðið - 01.12.1970, Blaðsíða 36
184
LÆKNABLAÐIÐ
ar þeir óska eftir staðgengli, en Félag læknanema sjái um að útvega
þá.
Samstarfsnefnd í samstarfsnefnd áttu sæti Sigmundur Magnússon,
Stefán Bogason, Ólafur Jensson, Víkingur Arnórsson
og Páll Gíslason.
Nefndin starfaði ekki á árinu.
Gerðardómur í gerðardómi eiga sæti af hálfu L. í. þessir menn:
Grímur Jónsson, Páll Sigurðsson, varamenn Guð-
mundur Karl Pétursson og Torfi Bjarnason.
Eitt mál liggur fyrir gerðardómi frá fyrra ári og hefur eigi hlotið
afgreiðslu.
Nýlega barst stjórn L. í. beiðni um, að ákveðið mál verði lagt fyrir
gerðardóm. Mál þetta er í athugun hjá lögfræðingi félagsins.
Erlend Ársfundur World Medical Association 1969 var haldinn
læknafélög í París. Voru gerðar tilraunir til þess að fá fulltrúa til að
mæta fyrir Læknafélag íslands á fundi þessum, en þær
tilraunir báru ekki árangur, og var því enginn fulltrúi fyrir L. í. á
þessum fundi.
Boð hafði einnig borizt frá ameríska læknafélaginu, norska, sænska,
danska og enska læknafélaginu um að senda fulltrúa á aðalfund þess-
ara félaga.
Fundur norska læknafélagsins var haldinn í Voss 26. til 30. maí, og
sótti hann formaður L. í. Arinbjörn Kolbeinsson, en hann var á heim-
leið frá læknaþingi í Stokkhólmi um þetta leyti. Á fundinum var ein-
göngu rætt um félagsleg málefni, og eru slíkir aðalfundir haldnir ann-
að hvert ár. Öllum félagsmönnum norska læknafélagsins er heimilt að
sækja fundinn, hlýða á skýrslur og taka þátt í umræðum, en atkvæða-
greiðsla og afgreiðsla mála fer fram á fulltrúafundum, en fulltrúar
þessir eru kjörnir af aðildarfélögum norska læknafélagsins og félagi
yngri lækna.
Meðal þeirra mála, sem þarna voru rædd og einna mestu máli
skipta fyrir íslenzkar aðstæður, voru vandkvæði á læknisþjónustu í
dreifbýli, en erfiðleikar á læknisþjónustu í strjálbýli N.-Noregs eru
nokkuð svipaðir og í þessum héruðum hér á landi. Kom þar greini-
lega í ljós, að skipulagning læknisþjónustu í þessum héruðum er fyrst
og fremst samgönguvandamál. Lögðu ýmsir fulltrúar mikla áherzlu á
að nota þyrlur meira til slíkrar þjónustu en gert hefur verið. Þá
var einnig lögð áherzla á, að strandgæzluskip gætu aðstoðað í ýmsum
tilfellum. Greinilega kom fram, að það væri almenn skoðun að efla
hópsamvinnu lækna og án þess yrði trauðla ráðin bót á vandkvæðum
læknisþjónustunnar í hinum strjálbýlu héruðum, því að einsetulæknar
væru að hverfa úr sögunni og ungir læknar væru tregir til að taka
að sér slík störf.