Læknablaðið - 01.12.1970, Blaðsíða 62
198
LÆKNABLAÐIÐ
D. Hóptrygging lækna.
Við teljum mjög óeðlilegt og ósanngjarnt, að eigi megi draga frá
tekjum nema % hluta iðgjalda af hóptryggingu lækna. Með tryggingu
þessari eru læknar að kaupa sér réttindi, sem opinberir starfsmenn
hafa, þ. e. veikindatryggingu, svo og slysa- og ferðatryggingu. Viljum
við benda á, að veikindatrygging sú, sem opinberir starfsmenn hafa,
kemur aldrei til álita varðandi frádráttarhæfni, er aldrei talin til
tekna, og er mjög óeðlilegt að mismuna mönnum svo eftir því, hvaða
kjarasamningum þeir vinna eftir. Sé opinberum starfsmönnum ekki
kjarasamningum þeir vinna eftir. Sé opinberum starfsmönnum ekki
kaupa þau annars staðar frá, megi draga allan kostnað, sem af þeim
kaupum stafar, frá tekjum sínum.
Virðingarfyllst,
f. h. stjórnar Læknafélags Reykjavíkur,
Sigmundur Magnússon, formaður.
FYLGISKJAL 7
Sjá ritstjórnargrein í Læknablaðinu, 3. tbl., 1969: Viðhorf í skatta-
málum.
FYLGISKJAL 8
Reykjavík, 8. nóv. 1968.
Heilbrigðis- og félagsmálanefnd
Neðri deildar Alþingis.
Þökkum bréf Heilbrigðis- og félagsmálanefndar Neðri deildar Al-
þingis, dags. 31. okt. 1968, varðandi umsögn um frumvarp til laga um
hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit. Sérstakri nefnd læknafélagsins var
falið að athuga frumvarp þetta, og áttu sæti í henni læknarnir Baldur
Johnsen, Björn Önundarson og Helgi Þ. Valdimarsson. Álitsgerð nefnd-
arinnar fylgir hér með í heild, og hefur hún verið samþykkt af stjórn
L.í. Við teljum frumvarp þetta veigamikið framfaraspor í heilbrigðis-
málum. Það felur í sér merk nýmæli og tímabæra samræmingu margra
þátta heilbrigðiseftirlitsins. Þó eru ýmis atriði í frumvarpinu, sem að
dómi Læknafélags íslands er heppilegra, og í sumum tilvikum nauð-
synlegt, að haga með öðrum hætti en þar er gert.
Þær efnislegu breytingar, sem Læknafélag íslands leggur til, að
gerðar verði á frumvarpinu, eru í stuttu máli sem hér segir:
1 Umdæmi heilbrigðisnefnda verði stækkuð frá því, sem gert er ráð
fyrir í frumvarpinu.
2. Héraðslæknarnir verði sjálíkjörnir í heilbrigðisnefndir.
3. Reykjavíkursvæðið allt verði undir einu og sama heilbrigðiseftir-
liti.
4. Ekki sýnist annað koma til greina en að forstöðumaður heilbrigðis-
eftirlitsins verði læknir, helzt með sérþekkingu í hagnýtri heil-
brigðisfræði.