Læknablaðið - 01.12.1970, Blaðsíða 35
LÆKNABLAÐIÐ
183
framaferill lækna lægi um dreifbýlið, vinnuaðstaða þeirra þyrfti að
batna, aðstoð í vetrarferðalögum þyrfti að auka og gera þyrfti ýms-
ar úrbætur í samgöngumálum, bæði á landi, sjó og í lofti, eftir því sem
við ætti á hverjum stað. Lögð var áherzla á samvinnu lækna, samein-
ingu og læknamiðstöðvar, þar sem slíku verður við komið og á það
bent, að þessi þróun byggist fyrst og fremst á öruggum samgöngum og
er sennilega eina leiðin til þess að leysa vandann í framtíðinni, því
að einmenningslæknishéruð eru fyrirkomulag, sem mun hverfa smám
saman.
Þá var einnig rætt um sjúkrahúsmál Austurlands og á það bent, að
þar þyrfti að vera eitt allvel búið sjúkrahús, sem stæði í nánu sam-
bandi við stærri deildarskipt sjúkrahús, annaðhvort í Reykjavík eða
á Akureyri. Var bent á leiðir til þess, að slíkt sjúkrahús gæti fengið
fjölþætta sérfræðilega þjónustu og sérfræðilegar leiðbeiningar frá
hinum stærri deiidarskiptu sjúkrahúsum.
NEFNDIR
Samninganefnd í samninganefnd voru Friðrik Sveinsson formaður,
Bragi Níelsson, Guðmundur H. Þórðarson, Örn
Bjarnason og Valgarð Björnsson.
Samningar L. í. við T. R. eru enn þá lausir frá áramótum. Gjald-
skrárnefnd hefur samið nýja gjaldskrá og sent hana formönnum svæða-
félaganna til umsagnar. Er ráðgert, að þessi nýja gjaldskrá verði lögð
sem samningsgrundvöllur við næstu samninga.
Hinn 28. ágúst var undirritaður samningur við stjórn Sjúkrahússins
á ísafirði um kaup og kjör sérfræðinga, sem starfa við það sjúkrahús
í leyfum yfirlæknis á þessu ári. Samningur þessi var í öllum aðalatrið-
um sniðinn eftir samningi, sem Læknafélag íslands gerði á síðasta
ári við stjórn Sjúkrahússins á Neskaupstað (samningurinn fylgir sem
fskj. 11).
Þar sem liðið var fram á sumar, þegar endanlega hafði verið gengið
frá gjaldskránni, þótti rétt að bíða með að ganga til samninga, þar
til að loknum aðalfundi L.í. enda hefur L. R. ekki gengið frá sinum
samningum, en venja er, að L. í. og L. R. hafi samstöðu, þegar til
samninga er gengið.
Staðgenglanefnd í staðgenglanefnd voru Friðrik Sveinsson, Haukur
Þórðarson og Grímur Jónsson.
Nefndin ræddi við stjórn Félags læknanema um sumarafleysingar
læknastúdenta fyrir héraðslækna.
Fram kom það sjónarmið læknastúdenta, að haldin verði sú gjald-
skrá, sem birt var í bréfi til héraðslækna snemma árs 1966, en ekki
óskað eftir hækkun.
Nefndin og stjórn Félags læknanema telur eðlilegt, að miðlun lækna-
stúdenta til sumarleyfisafleysinga fari fram á vegum skrifstofu lækna-
félaganna á þann hátt, að héraðslæknar snúi sér til skrifstofunnar, þeg-