Læknablaðið - 01.12.1970, Blaðsíða 29
LÆKNABLAÐIÐ
177
lands, Tannlæknafélagi íslands og Lyfjafræðingafélagi íslands. Á fundi
þessum var kosin þriggja manna undirbúningsnefnd, og í henni áttu
sæti María Pétursdóttir, Arinbjöm Kolbeinsson og Georg Lúðvíksson.
Mál þetta hefur verið rætt á stjórnarfundum L.Í., en fulltrúar til
að mæta á undirbúningsfundum voru kjörnir Arinbjöm Kolbeinsson
og Stefán Bogason. Á stofnfundi samtakanna 14.1.1969 gerðist Lækna-
félag íslands aðili að þessum samtökum með þeim fyrirvara, að sú
ráðstöfun yrði samþykkt á aðalfundi L.í. 1969, en stjórn L.í. hafði
fyrir sitt leyti samþykkt þessa ráðstöfun áður (fskj. 5 A).
Skattamál L.í. og L.R. hefur borizt bréf frá ríkisskattstjóra, þar sem
ýmis atriði skattamála lækna eru tekin til meðferðar. Sam-
eiginlegur stjórnarfundur L.í. og L.R. var haldinn um málið 5. apríl.
Hér er um að ræða mikla skerðingu á frádrætti á bílakostnaði lækna,
þannig að hann fer niður í 25% hjá þeim, sem ekki stunda heimilis-
lækningar að marki, þ. e. hafa minna en 100 samlagsnúmer. Siglinga-
kostnaður verður hins vegar rýmkaður frá því sem áður var, iðgjald
í Lífeyrissjóð lækna verður einnig rýmra en áður. Leyfð verða 10%
af öllum tekjum, þó með því hámarki, að það fari ekki yfir 75.000 kr.
á ári. Iðgjald af hóptryggingu lækna verður hins vegar ekki allt frá-
dráttarbært til skatts, eins og er.
Læknafélag Reykjavíkur hefur rætt mál þetta á almennum fé-
lagsfundi. Bæði stjórn L.R. og L.í. hafa ritað ríkisskattstjóra bréf um
málið (fskj. 6).
Viðræður standa yfir milli fulltrúa læknafélaganna annars vegar
og skattayfirvalda hins vegar um skattamál lækna.
Samin hefur verið greinargerð um skattamál lækna, þar sem
nefnd voru viðhorf í skattamálum (fskj. 7), og birtist hún sem forystu-
grein í Læknablaðinu, 3. tbl. 1969.
Mál frá Alþingi Frumvarp um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit
hafði verið til athugunar hjá Læknafélaginu frá
fyrra ári, og hafði nefnd, sem skipuð var til að athuga þetta, skilað
allýtarlegu áliti (fskj. 8), en í henni áttu sæti Baldur Johnsen, Helgi
Valdimarsson og Björn Önundarson. Stjórnin fjallaði um álit nefndar-
innar og gerði á því smávegis breytingar og sendi það til Alþingis.
Frumvarp þetta hefur nú verið afgreitt sem lög, og voru fáar af breyt-
ingatillögum læknasamtakanna teknar til greina. Er læknum bent á
að kynna sér þessi lög rækilega, en líklegt má telja, að þau þurfi brátt
breytinga við.
Þá barst stjórn L.í. breytingartillaga við 4. gr. læknaskipunar-
laganna, og gekk sú breytingartillaga í þá átt að auðvelda stofnun
lækningamiðstöðvar. Fjárframlög skyldu koma frá ríkinu, þannig að
sveitarfélög í dreifbýli þyrftu ekki að leggja fram fé. Mælti stjórn
Læknafélagsins með breytingartillögunni, en benti á, að lög þessi
þyrfti oft að endurskoða og breyta, þar sem hér væri um að ræða
málefni nátengd örri þróun læknisfræðinnar og þjóðfélagsins.