Læknablaðið - 01.12.1970, Blaðsíða 40
188
LÆKNABLAÐIÐ
og að þær séu síðan samþykktar af stjórnum Læknafélags ís-
lands og Læknafélags Reykjavíkur.
Virðingarfyllst,
Einar B. Guðmundsson.
(sign)
FYLGISKJAL 3
NEFND VEGNA LÆKNISÞJÓNUSTU
FYRIR SÍLDVEIÐISJÓMENN
Með þréfi dagsettu 15. desember 1967 skipaði háttvirtur dóms-
og kirkjumálaráðherra, Jóhann Hafstein, okkur undirritaða til að gera
tillögur um fyrirkomulag framkvæmda á ákvæði læknaskipunarlaga
um læknisþjónustu fyrir síldveiðisjómenn fyrir síldarvertíð 1968.
Tillögur okkar, sem fara hér á eftir, eru miðaðar við þær aðstæð-
ur, sem ríkt hafa undanfarin ár á síldveiðum við ísland, bæði hvað
snertir veiðisvæði, fiskibáta og tiltæk aðstoðarskip.
Sérstök áherzila hefur verið lögð á að flýta störfum nefndarinnar,
þannig að hægt væri að framkvæma tillögurnar fljótlega og án veru-
legs tilkostnaðar.
1. Gerð verði skrá yfir þær erlendar strandastöðvar, sem liggja næst
síldveiðisvæðunum, þar sem tilgreind sé kallbylgja stöðvarinnar, svo
og upplýsingar um þá læknisþjónustu, sem þar er að fá. Skráin verði
gerð tiltæk öllum síldveiðiskipum og komi síðar í íslenzka sjómanna-
almana'kinu.
2. Samkomulag verði gert við þær þjóðir, sem hafa aðstoðarskip á
þessum slóðum, um að íslenzk síldveiðiskip megi leita aðstoðar
þeirra um læknishjálp, ef á þarf að halda. Fyrrnefnd skrá innihaldi
einnig nauðsynlegar upplýsingar um þessa þjónustu.
3. Verði síldveiðar stundaðar af fjölda íslenzkra fiskiskipa á fjarlæg-
um miðum, er æskilegt, að skip með aðstöðu til fyrstu læknishjálp-
ar sé að jafnaði tiltækt fyrir meginhluta flotans. Nauðsynlegt er, að
slíkt skip uppfylli vissar lágmarkskröfur um stærð, útbúnað lækn-
isstofu og aðbúnað fyrir sjúklinga og lækni.
4. Að lokinni fyi’stu hjálp er mjög æskilegt, að hjægt sé að flytja sjúkl-
inginn sem fyrst á sjúkrahús í landi, ýmist með aðstoðarskipinu
sjálfu, öðrum skipum, þyrlum eða flugbátum, innlendum eða er-
lendum eftir aðstæðum. Slík aðstoðarskip ættu því helzt að hafa
góðan gang, þyrluþilfar og radíótæki til viðskipta bæði við fjar-
lægar strandastöðvar og flugvélar.
5. Á undanförnum árum hafa ýmsar gerðir aðstoðarskipa fylgt íslenzka
síldarflotanum á fjarlæg mið, og þar sem gera má ráð fyrir, að sömu
eða svipuð skip haldi áfram þeirri þjónustu, þá hefur nefndin sér-
staklega rætt, hvort komið gæti til greina, að einhver þeirra hefðu
lækni um borð. Þau virðast hins vegar öll hafa einhverja þá ann-
marka, sem gera þau illa hæf til þeirrar stai’fsemi jafnhliða aðal-
störfum sínum, — nema stóru íslenzku vai’ðskipin.
6. Nefndin mælir því eindregið með því, að stóru íslenzku varðskipin