Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.1970, Page 44

Læknablaðið - 01.12.1970, Page 44
192 LÆKNABLAÐIÐ 3. gr. Hlutverk sjóðsins er að styrkja með fjárframlögum læknaþing, haldin á íslandi, sem íslenzk eða erlend læknafélög eru aðili að. Hámarksfjárhæð styrks skal vera kr. 50.000,00. Styrkir skulu veittir með því skilyrði, að verði um eftirstöðvar fjár að ræða að afloknu læknaþingi, skulu slíkar eftirstöðvar renna óskiptar í sjóðinn, án tillits til upphæðar styrksins. 4. gr. Tekjur sjóðsins eru vextir og annar arður af höfuðstóli, gjafir, framlög o. s. frv.; enn fremur þær eftirstöðvar fjár, sem kunna að verða fyrir hendi vegna læknaþinga, sbr. 3. gr. hér að framan. 5. gr. Fé sjóðsins skal ávaxtað í ríkisbanka eða með öðrum hætti, sem sjóðstjórnin er sammála um að telja jafnöruggan. 6. gr. Sjóðurinn er í vörzlu Læknafélags íslands. 7. gr. Stjóm sjóðsins er skipuð þremur mönnum: tveir tilnefndir af stjórn Læknafélags íslands og einn af stjórn Félags íslenzkra lyflækna. 8. gr. Reikningsárið er almanaksárið og skal stjómin birta endurskoðaða reikninga sjóðsins á aðalfundi Læknafélags íslands ár hvert. 9. gr. Reikningar skulu endurskoðaðir af tveim mönnum, tilnefndum af stjórn Læknafélags fslands. 10. gr. Heimilt er að breyta skipulagsskrá þessari, ef þörf þykir vegna breyttra tíma og aðstæðna. Þarf samþykki allra sjóðsstjórnarmanna til slíkra breytinga. Reykjavík, 26/2 1969. h. Félags íslenzkra lyflækna. F. h. Læknafélags íslands. Óskar Þórðarson Arinbjörn Kolbeinsson Sig. Þ. Guðmundsson Stefán Bogason Tómas Á. Jónasson Friðrik Sveinsson FYLGISKJAL 5 A REGLUR FYRIR SAMTÖK HEILBRIGÐISSTÉTTA 14. JANÚAR 1969 1. Aðild: Aðild að samtökunum geta átt stéttarfélög heilbrigðisstarfsmanna.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.