Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.1977, Page 46

Læknablaðið - 01.04.1977, Page 46
háif-syntetiska fúkkalyfiö MINOCYKLIN Minocyclin hydrochlorid Lederle er mjög fjöivirkt. Styrkleiki í blóðvökva. Styrkleikinn, sem hefur beztan lækningamátt, er frá 1-3 mcg/ml og næst mjög auðveldlega með þeim skammti, sem mælt er með. Dreifing í vefjum. Með MINOCYKLIN meðferð næst hár styrkleiki í vefjum og líkamsvökvum, sérstaklega í gallblöðru og lifur, einnig lungum, kynfærum, húð og heilavökva. Styrkleikinn er almennt hærri í vefjum en blóðvökva. ísog. MINOCYKLIN ísogast fljótt eftir að það er tekið inn. Það nær þanning svipaðri verkun eftir 1 klst. eins og hefði það verið gefið í æð. Samtímis neyzlu fæðu og vökva hefur nijög óveruleg áhrif á ísog lyfsins, aftur á móti geta sýrueyðandi lyf, sem innihalda aluminium og magnium og kalcium sambönd dregið úr ísogi MINOCYKLINS. Útskilnaður. MINOCYKLIN skilst hægt út með þvagi og saur. Meðalhelmingatími í blóðvökva er nálægt 18 klst. Jafnvel 36 klst. eftir síðasta skammt er enn nægilegur styrkleiki eftir til að ná lækningamætti. 96 klst. eftir að hætt er meðhöndlun, má enn finna vott af MINOCYKLINI í blóðvökva. Varúð. Ekki er rétt að gefa lyfið þegar vitað er um ofnæmi gegn tetracyklin-lyfjum. Aukaverkanir. Lítil hætta er á aukaverkunum, þegar MINOCYKLIN er tekið inn í ráölögðum skömmtum. Þó geta stundum komið meltingartruflanir, líkt og við önnur tetracyklin-lyf. í nokkrum tilfellum hefur borið á lítils háttar svima, en ekki hefur þurft að hætta við meðferð af þeim sökum. Varúðarreglur. Varast ber að gefa vanfærum konuni tetracyklin-lyf. Ekki er hægt að útiloka hættuna á að tennur litist svo sem á sér stað við notkun allra tetracyklin-lyfja, þótt áhættan við MINOCYKLIN sé enn óstaðfest. Reynslan bendir til að MINOCYKLIN valdi ekki ljósofnæmi (photosensitivity). Gætni er ráðlögð, þar sem fyrir er alvarlegur skaði á lifur eða nýrum. Að öðru leiti vísast til greinagóðra upplýsinga í bæklingi. Skammtar handa fullorðnum. Skammturinn er sá sami, hvort sem um er að ræða alvarlegra eða mildara tilfelli. Gefnar eru 2 töflur (200 mg) í byrjun, síðan 1 tafla (100 mg) á 12 tíma fresti. Umbúðir. MINOCYKLIN töflur 100 rng 9 stk. (4 daga meðhöndlun) MINOCYKLIN töflur 100 mg 15 stk. (7 daga meðhöndlun) LEDERLE LABORATORIES. Stefán Thorarensen h. /., CYANAMID INTERNATIONAL P. O. BOX 897, Reykjavik C VA JST A JVT X P J0RGEN JENSENS BOGTRYKKERI 77331 X jull 1975

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.