Læknablaðið - 01.04.1977, Blaðsíða 54
76
LÆKNABLAÐIÐ
TABLE 1
Drug use compared to prescription rules.
Proportional
Number of Taken as Not taken average of extended
drugs prescribed as prescribed duration of drug intake
1. Antibiotics and chemotherapeutics 23 6 17 2.1
2. Digitalis glycosides 27 5 22 2.13
3.:;Centyl, Hygroton, Apresolin, Ismelin, Brinaldix, Lasix 44 14 30 2.28
4. Hypnotics and sedatives 87 24 63 2.48
5. Potassium chloride and other electrolytes 31 13 18 2.08
fólk fylgir fyrirskrifaðri reglu um töku um. Það er athyglisvert, jafnvel í þessum
og reiknað út eftir upplýsingum í 4. lið
spurnareyðublaðsins, hver meðaltalsútkom-
an er varðandi það, hvernig fólk fylgir
notkunarreglum. Hlutfallslegt meðaltal er
miðað við 1. Sé útkoman hærri en 1, er
notkunin minni en ráðlagt var og því
eðlilega meiri, sé meðalatalið meira en 1.
A.thyglisvert er, að í öllum lyfjaflokkunum
er notkun lyfjanna meiri en helmingi hærri
(minni) en fyrirskrifað er.
Það er að sjálfsögðu þekkt, að sjúkling-
ar sinna mjög misjafnlega vel reglum
lækna um lyfjatökur, viss lyf hefur fólk
tilhneigingu til að taka meira af en óskað
er, en önnur minna. Þá ber og að taka tillit
til þess, að við fyrirskrift læknis á vissa
lyfjaflokka, svo sem róandi lyf og svefn-
lyf, er fólki oft gefið visst sjálfræði um
nctkun lyfjanna, lyfin tekin þegar þörf
er á, en hámarksskammta getið. Þá hefur
og þótt mjög áberandi, að fólk fylgir slæ-
lega ávísunum lækna á fúkalyf.
Óneitanlega vekur það nokkra furðu,
að fólk fer ekki að ósk lækna varðandi
lyfjaflokka 2, 3 og 5, þ. e. hjartalyf, há-
þrýstingslyf og „electrolyta-supplement“.
f þessum tilfellum eru fyrir hendi mjög
ákveðin tilmæli læknis um töku lyfsins og
árangur meðferðar mjög undir því kom-
inn, hvernig sjúklingur fylgir þeim regl-
hóp, sem allur er undir handarjaðri heima-
hjúkrunar og hefur væntanlega flest all-
gott samband við heimilislækna sína, er
árangur þó ekki betri en svo, að yfirleitt
tekur fólkið ávísað lyfjamagn á helmingi
lengri tíma en til er ætlazt. Vaknar þá
sú spurning, hvort veikindi þess eru þá
ekki að einhverju leyti háð hinni slælegu
töku lyfjanna.
UMRÆÐA
Könnun þessi er frumkönnun, og er
ekki sízt ætluð til að læknarnir fái vitn-
eskju um það, hvernig sú aðferð reynist,
sem hér hefur verið lýst. Auðséð er, að
það fást góðar undirtektir frá fólki þar
sem hjúkrunarfólk á annað erindi á stað-
inn og er því möguleiki að gera frekari
kannanir, er væru áreiðanlegar, meðal
fólks, sem heimahjúkrunin stundar og hjá
fólki með ungaböm, er hjúkrunarkonur
heimsækja. Gerð var tilraun til sams konar
könnunar meðal hinna síðarnefndu, en
ekki tókst að ná saman nægjanlegu efni
til að mögulegt væri að birta.
Heildarupplýsingum um lyfjanotkun
fólks er illmögulegt að halda saman, jafn-
vel þótt upplýsingar væru reglulega færð-
ar á lyfjaseðil (sbr. t. d. heilsufarsdagbók
á Heilsugæzlustöðinni á Egilsstöðum) eða