Læknablaðið - 01.04.1978, Blaðsíða 35
LÆKNABLADIÐ
p1
TABLE III ,
Mean annual death rates in age group 25 and over, per 100.000, in 4 periods for 3
diagnostic categories.
SEX MALES FEMALES
\LC.D NUMBER 8th/ x^y.th PERIODS^V 410-41 4/ ■ - "420 <N L.U.... r 402,404- TIÓ-U3 TOTAL 410-414/ ■420 428/' x422 40Z4QA- W443 TOTAL
1971 - 76 469 5 7 481 254 7 10 271
1965 - 70 417 26 11 454 241 24 18 283
1960 -64 337 24 15 376 196 41 26 263
195S - 59 242 42 15 299 165 54 31 250
40—49 ára var þessi aukning rofin með
miklu falli á árunum 1966—68, en sams-
konar fyrirbrigði sást hjá breskum karl-
mönnum 35—39 ára á sama tímabili(:1).
Hjá aldurshópnum 70—79 ára er hækkun-
in um 50% fyrir síðustu tímabilin, en hjá
eldri en 80 ára var hún um 50% 1965, en
fellur síðan í 0 á síðustu tímabilunum. Hjá
konum hefur orðið lítilsháttar minnkun
þ.e. frá að meðaltali 21,6% fyrir tímabilið
1955—57 niður í 12,2% 1974—76. Þessi
minnkun er fyrst og fremst hjá konum yf-
ir sextugt og eftir 1970.
í töflu 1 má sjá tíðnitölur fyrir 6 ald-
ursflokka, sem meðaltal 5 tímabila. Ef bor-
in eru saman tímabilin 1951—55 við 1971
—76, sést að markverð aukning hefur orð-
ið í öllum aldursflokkum karla nema hjá
eldri en 80 ára, en hjá konum er ekki um
markverða breytingu að ræða. Áhugavert
er að bera saman sérstaklega tímabilið'
1965—70 og 1971—76 og er það gert í
töflu 2 með því að reikna áætlaðar dánar-
tölur fyrir tímabilið 1971—76 út frá dán-
artölum 1965—70 og jafnframt er tekið
tillit til fólksfjölgunar. Hjá körlum hafa
orðið 20 dauðsföll 1971—76 umfram áætl-
uð dauðsföll, en hjá konum eru 105 færri
dauðsföll, en áætlað er. Munur á dánar-
tíðni á þessum tveim tímabilum var einnig
kannaður með X2 prófi og fannst ekki
marktækur munur hvorki hjá körlum eða
konum né hjá neinum aldursflokki.
Háþrýstingur með hjartasjúkdómi:
Á mynd 4 má sjá að dánartíðni vex í þess-
um greiningarflokki hjá báðum kynjum á
fyrstu tímabilunum eftir 1955. Uppúr 1960
fer tíðnin lækkandi og hefur lækkað alls
um 50% hjá körlum en 67% hjá konum
1974—76.
Á töflu 3 sést að dánartíðni af völdum
þessara sjúkdóma var 12,2% af kransæða-
sjúkdómum á tímabilinu 1951—55 (6% hjá
körlum, 18,4% hjá konum), en á tímabil-
inu 1971—76 var samsvarandi hlutfall 2,6%
(1.4% hjá körlum, 3,9% hjá konum). Það
er lítill vafi að raunveruleg fækkun hefur
orðið á dauðsföllum af völdum háþrýstings
með hjartasjúkdómi með tilkomu nýrra og
betri blóðþrýstingslækkandi lyfja. Ekki er
þó hægt að útiloka að lækkunin stafi að
litlum hluta af tilfærslu yfir í kransæða-
sjúkdóma.
Til að kanna til fulls þann möguleika að
breyting á dánartíðni af völdum kransæða-
sjúkdóma stafaði af tilfærslu á milli grein-
ingarflckka þá er í töflu 3 lagðir saman
allir 3 greiningarflokkarnir. Þrátt fyrir
þetta hefur orðið hækkun hjá körlum úr
299 í 481 (61%) og hjá konum úr 250 í
271 (8%) milli tímabilanna 1955—59 og
1971—76.
UMRÆÐA:
Niðurstöður þesara athugana styðja þá
tilgátu að breyting hafi orðið á greiningar-