Læknablaðið - 01.04.1978, Blaðsíða 96
104
LÆKNABLAÐIÐ
nýfæddu barni fylgja nákvæmar upplýsingar
um meðgöngu og fæðingu. Innan 24 stunda
frá fæðingu er gerð nákvæm læknisskoðun
og aftur fyrir brottför af sjúkrastofnun.
Allar þessar upplýsingar berast viðkom-
andi heilsugæslustöð. Við þennan upplýs-
ingaforða bætist stöðugt, þegar barnið kem-
ur til eftirlits og vegna ónæmisaðgerða eða
eitthvert sjúklegt ástand skapast.
Skoðun 3—4 ára barna
Fram að þessu hefur afskiptum heilsu-
verndarstarfsfólks að mestu lokið, eftir að
börnin hafa komist á þriðja aldursár, (þegar
frá er talin ónæmisaðgerð gegn lömunarveiki
þriggja til fjögurra ára) og reglubundnar
skoðanir ekki hafist aftur, fyrr en með skóla-
eftirliti á 6—7 ára börnum.
Hefur þetta verið talið nægja, enda álitið
að á þessu tímabili væri þess vart að vænta,
að neitt það fyndist nýtt, sem hægt væri að
bæta úr.
Ýmsar framfarir i læknavísindum hafa
hins vegar gert það að verkum, að nauðsyn-
legt er að bæta við hópskoðun barna um
það bil, sem þau verða fjögurra ára.
Auk almennrar sögu um þroska, framfarir,
veikindi, slys, sjúkrahúsvist o.s.frv. eru eink-
um fjögur atriði, sem leggja þarf áherslu á:
1. Sjónpróf:
Mikilvægt er að finna sjóngalla á þessu
aldursskeiði, t.d. má oft laga rangeygð með
sérstökum æfingum hjá augnþjálfa og
skurðaðgerðum er nú beitt miklu fyrr en
áður var.
Á augndeild Landakotsspítala er nú unnið
að skipulagningu þjónustu fyrir landið allt
og þar er að fá haldgóðar upplýsingar urn
fyrirkomulag sjónprófa við hópskoðanir.
Á þeim svæðum, þar sem ekki eru starf-
andi augnlæknar, er eðlilegast að ljúka sjón-
prófum, áður en augnlæknaferðalag hefst og
verðá þannig meiri not þeirrar þjónustu, sem
til boða stendur.
2. Heyrnarpróf:
Hentugir, einfaldir heyrnarmælar eru nú á
markaðnum og eru léttir og hreyfanlegir,
þannig að hægt er að fara með þá milli staða
og geta því heilsugæslustöðvar og skólar
sameinast um slík tæki, þegar við á. Enn-
fremur er nú tiltæk tækni, sem ekki krefst
samvinnu þess aðila, sem prófað er hjá
(impedancepróf og electroeochleography5).
Heyrnardeild Heilsuverndarstöðvar Reykja-
vikur hefir í siauknum mæli tekið að sér
heyrnarmælingar fyrir aðra en Reykvikinga
og starfsmenn stofnunarinnar hafa verið
mjög liðlegir við að kenna meðferð heyrnar-
tækja og við eftirlit á slíkum tækjum.
3. Almenn skoðun:
Á þessu aldursskeiði er ekki við þvi að bú-
ast, að margt nýtt komi fram, sem ekki var
vitað um áður, enda eiga öll meiriháttar af-
brigði fyrir löngu að vera komin á skrá.
Hins vegar er alltaf hugsanlegt, að eitt-
hvað hafi farið fram hjá heilbrigðisstarfs-
fólki og ennfremur geta komið til nýir kvill-
ar eða að ekki hafi verið fylgt eftir aðgerð-
um, sem þó væru nauðsynlegar.
4. Könnun á andleguni þroska, niálfari og
taugakerfi:
Samhliða fyrri prófunum þarf að komast
eftir andlegum þroska og því, hvort málfar
er eðlilegt, en síðarnefnda atriðið getur verið
háð hinu fyrra og einnig því, hvort heyrn er
óskert. Þá þarf að kanna, hvort nokkrir
ágallar eru á taugakerfi.
Hópskoðun í líkingu við það, sem lýst var,
er nú hafin á nokkrum stöðum á landinu.
Er tímabært, að þetta mál verði rætt og
læknar skiptist á reynslu í þessum efnum
og samræmi upplýsingaforða, próf og rann-
sóknir. Samtímis þarf að taka til endurskoö-
unar eftirlit með skólabörnum og upplýs-
ingamiðlun frá skólaeftirliti til heilsugæslu-
stöðva.
Upplýsingaforði, varðveisla lians og notkun
Varðandi framkvæmd skólaeftirlits, ritaði
forveri minn í starfi, Benedikt Tómasson,'
árið 1961:
„Með löggjöf um heilsuvernd i skólum er
stefnt að þvi, að haft sé með nemendum
jafnt, vakandi eftirlit allan veturinn, með
þátttöku allra aðila, þ.e. skólalæknis, skóla-
hjúkrunarkonu, þar sem hún starfar, kenn-
ara og foreldra. Þvi nánara samstarf, sem
tekst milli þessara aðila, því öflugra og virk-
ara verður eftirlitið.“
Við þessa upptalningu bætast nú að sjálf-
sögðu: sérkennarar, félagsráðgjafar og sál-
fræðingar.
I þessu sambandi vil ég leggja sérstaka
áherslu á hinn mikilvæga þátt hjúkrunar-
konunnar i þessu starfi. Samkvæmt lýsingu
á starfssviði hennar i reglugerð, er það hún,
sem tryggir að þjónustan sé samfelld, jöfn
og vakandi og ennfremur sér hún um að
upplýsingaforðanum sé haldið við.
Á meðfylgjandi mynd,8 er sýnt hvernig
vinna má úr þeim gögnum, sem fyrir liggja.:l
Skiptir ekki öllu hvort upplýsingaforðinn er
mikill eða litill að vöxtum, mestu máli skipt-