Læknablaðið - 01.04.1978, Blaðsíða 94
102
LÆKNABLAÐIÐ
Örn Bjarnason, skólayfirlæknir
HEILSUVERND, RÁÐGJAFAR- OG SÁLFRÆÐI-
ÞJÓNUSTA í SKÓLUM
1 þessari grein verður rakin löggjöf um
heilsuvernd á forskóla- og grunnskólastiginu
og um ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu í skól-
um. Rædd .er nauðsyn á sameiginlegum upp-
lýsingaforða og samhæfingu þjónustunnar,
innan skóla og utan.
Nýjar og nákvæmari aðferðir við grein-
ingu heyrnarskorts, sjóngalla og greindar-
skorts, samfara nýjum laakningaaðferöum
hafa skapað ný viðhorf til heilsugæzlu á for-
skólastigi og er vakin athygli á nauðsyn
skoðunar á fjögurra ára börnum til þess að
greina áhættuþætti, sem hamla eðlilegum
þroska eða gefa til kynna sérþarfir á skóla-
stiginu.
Löggjöf
1 lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 56 frá
27. apríl 1973 segir í 13. gr.:
„13.1. Heilsugaésla merkir í lögum þess-
um heilsuverndarstarf og allt lækningastarí,
sem unnið er vegna heilbrigðra og sjúkra,
sem ekki dveljast i sjúkrahúsum."
1 21. gr. sömu laga er talin þjónusta, sem
veita skal í heilsugæslustöð og meðal heilsu-
verndargreina er mæðravernd, ungbarna- og
smábarnaeftirlit og skólaeftirlit.
1 lögum um grunnskóla nr. 63 frá 21.
mai 1974 er í XI kafla rætt um heilsuvernd
og þar segir í 73. gr.:
„Um heilsuvernd í grunnskóla fer eftir lög-
um nr. 61/1957 um heilsuvernd í skólum og
reglugerð nr. 214/1958 með áorðnum brey^-
ingum. Sá aðili, sem falin er stjórn heilsu-
verndar í skólum, skal hafa samráð vió
fræðslustjóra um skipulagningu heilsuvernd-
ar í skólum fræðsluumdæmisins á skólaár-
inu. Ennfremur skal i upphafi skólaárs og í
samráði við skólastjóra setja starfsliði heilsu-
verndar, sem í skóla starfar, svo sem skóla-
lækni, hjúkrunarkonu og tannlækni, fastan
starfstíma i skólanum.
Sé heilsugæslustöð í námunda við grunn-
skóla, er heimilt að fela henni að annast
heilsuvernd nemenda, samkvæmt lögum um
heilbrigðisþjónustu nr. 56/1973 ....“
f 25. gr. grunnskólalaganna er kveðið á
um, að i sikólahúsi skuli vera aðstaða til
heilsugæslu, sbr. og reglugerð nr. 159/1969
um stofnkostnað skóla.
Þá er vert að vekja athygli á erindisbréfi
héraðslækna (Stjórnartíðindi B nr. 35/1964),
4. gr.:
„Héraðslæknir skal hafa eftirlit með
heilsuverndarstarfsemi i héraði sínu eða
rækja hana sjálfur, ef þannig er mælt fyrir
í lögum og reglugerðum, svo sem i lögum
um heilsuvernd í skólum.“
Þar sem í grunnskólalögunum felast all-
mörg nýmæli, sem beiniínis er útfærsla og
viðauki við þá heilsuvernd, sem þegar er
veitt, vil ég fara nokkrum orðum um þau
lagaákvæði, sem mestu máli skipta.
í IX. kafla laganna er rætt um ráðgjafai-
og sálfræðiþjónustu.
„66. gr. Fræðsluráð skal svo fljótt sem að-
stæður leyfa setja á stofn ráðgjafar- og sál-
fræðiþjónustu fyrir grunnskóla umdæmis-
ins....“
„67. gr. Hlutverk ráðgjafar- og sálfræði-
þjónustu er:
a) að nýta sálfræðilega og uppeldisfræði-
lega þekkingu i skólastarfi,
b) að vera ráðgefandi um umbætur i
skólastarfi, sem verða mættu til að fyr-
irbyggja geðræn vandkvæði,
c) að annast rannsókn á afbrigðilegum
nemendum og þeim, sem ekki nýtast
hæfileikar í námi og starfi,
d) að leiðbeina skólastjórum, kennurum
og foreldrum um kennslu, uppeldi og
meðferð nemenda, sem rannsakaðir eru
(sbr. c-lið),
e) að taka til meðferðar nemendur, sem
sýna ír-erki geðrænna erfiðleika og leiö-
beina foreldrum og kennurum um með-
ferð þeirra,
f) að annast hæfniprófanir og ráðgjöf í
sambandi við náms- og starfsval ung-
linga,
g) að annast ýmis rannsóknarstörf og
athuganir í sambandi við ráðgjafaþjón-
ustuna.