Læknablaðið - 01.04.1978, Blaðsíða 49
LÆKNABLAÐIÐ
71
auka ertni hjartavöðvans (myocardial irri-
tability)'1
Á síðustu árum hefur athyglin fremur
beinzt að hugsanlegum áhrifum kolmonox-
íðs vegna þess m.a., að ekki hefur tekizt
að framkalla æðakölkun í tilraunadýrum
með því að gefa þeim níkótín í stórum
skömmtum.88 Einnig hafa ferilrannsóknir
sýnt, að pípureykingamenn hafa ekki aukn-
ar líkur á að fá kransæðasjúkdóma, þrátt
fyrir verulega upptöku á níkótíni frá
munnslímhúð.
Vindlingareykur inniheldur 2.7—6% af
CO. Hemoglobin bindur CO margfalt auð-
veldar heldur en súrefni og COHb magnið
í blóði stórreykingamanns getur því orðið
upp í 15% á kostnað súrefnisflutningsins.5
CO hefur einnig áhrif á súrefnisfrágjöfina
frá Hb og truflar þannig súrefnisgjöfina til
vefjanna. I tilraunadýrum hefur einnig ver-
ið sýnt fram á, að CO eða samfarandi
hypoxia veldur skemmdum á endotheli
æðaveggjarins, eykur gegndræpi þess og
auðveldar þar með innstreymi lipopróteina
inn í æðavegginn og framkallar æðakölkun
í þessum dýrum.4 Einnig hefur verið leitt
í ljós, að bæði CO og níkótín auka samloð-
un (,,stickiness“) blóðflagna og auka blóð-
segamyndun.5
Kolomonoxíðkenningin getur haft veru-
lega þýðingu, þar sem ef CO er áhættu-
valdurinn þá myndu „filter tips“ eða láe-
níkótín vindlingar ekki draga úr áhætt-
unni. Vel má vera, að báðir þættirnir séu
að verki. Það er vitað, að reykingafólki er
mun hættara við skvndidauða sem getur
verið afleiðing áhrifa níkótínsins á raf-
leiðni hjartans.lno Hinsvegar má vera. að
CO hafi meir að segja í myndun æðakölk-
unarinnar.
Meðaláhætta karlmanna, sem reykja er
um það bil tvöfalt meiri en þeirra, sem
ekki reykja. Ef áhætta hvers reykinga-
manns væri minnkuð og ?erð sambærileg
þeirra, sem ekki re.vkia. mætti búast við
að dánartíðni af vöidum kransæðasjúk-
dóma minnkaði um fiórðuna eða fimmt-
ung meðal karla.81 Leikni í að telia fólk á
að hætta revkingum væri bví kröftuera en
nokkurt lyf. sem læknar ávísa. Reykingar
hafa minnkað verulega á síðustu árum
meðal miðaldra karlmanna í Bandaríkiun-
um, og ef til vill á það sinn þátt í lækk-
RATE
PER 1.000
Mynd 4:
FIRST MAJOR CORONARY EVENT
NUMBER
OF EVENTS
NUMBER
OF MEN
33 65 92 120 119
65B 1,186 1,594 1,633 1,106
( N ATIONAL COOPERATIVE POOLINE PROJECT)
80 87
670 635
lol
aðri tíðni kransæðadauða í Bandaríkjunum
á síðasta áratug.1111
Kólesteról
Ferilrannsóknum ber vel saman um, að
kólesteról í blóði sé sjálfstæður áhættu-
þáttur fyrir æðakölkun. Svipað og með
blóðþrýsting, þá fer áhættan vaxandi frá
lágum kólesterólgildum og upp úr svo að
engin glögg skil eru milli „eðlilegs kolester-
óls“ og hækkaðs101 78 51 (sjá mynd 4). Á-
hættan samfara háu kólesteróli virðist þó
fara minnkandi með aldri. Retrospectivar
rannsóknir hafa einnig sýnt, að sjúklingar,
sem fengið hafa einkenni æðakölkunar
hafa mun oftar hækkað kólesterólgildi
samanborið við hóp manna án slíkra ein-
kenna.31 63 Faraldsfræðilegar rannsóknir í
7 þjóðlöndum leiddu í ljós sterka fylgni
milli meðalgildis kólesteróls heilla þjóða
og tíðni kransæðasjúkdóma í þessum lönd-
um.57 50 Þannig er t.d. hátt meðalgildi kól-
esteróls í Finnlandi og Bandaríkjunum,