Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.1978, Page 69

Læknablaðið - 01.04.1978, Page 69
LÆKNABLAÐIÐ 83 Davíð Gíslcison* ASPIRIN OG OFNÆMISSJÚKDÓMAR Sennilega er aspirin (acetylsalicylsýra (ASA)) mest notað allra lyfja í heiminum. Notkun þess hófst á síðasta áratug 19. ald- ar, og það hefur staðist tímans tönn þrátt fyrir öra þróun í framleiðslu nýrra lyfja. Þeir eiginleikar ASA að lina verki og draga úr bólgum og hita (hyperpyrexíu) eru vel þekktir. Mönnum var þó ókunnugt hvernig ASA hafði þessi áhrif, þar til í byrjun þessa áratugs, að Vane og félagar hans við Royal College of Surgeons of England sýndu fram á, að ASA hindraði myndun (biosynthesis) prostaglandina (PG).18 Prostaglandin eru flokkur hormóna, sem uppgötvaður var 1936 af Von Euler við Karolínsku stofnunina í Stokkhólmi. At- hyglin beindist þó ekki að ráði að þessum hormónum fyrr en á síðasta áratug, og enn þá er margt á huldu um eiginleika þeirra. Prostaglandin eru ómettaðar fitusýrur með 20 kolefnis atómum. Þeim er skipt í 8 aðalflokka (PGA, PGB, PGC, PGD, PGE, PGF"'/« 0g PGF"‘-'«, PGG og PGH) og nokkra undirflokka eftir mismunandi efna- samsetningu. Má búast við að þessum flokkum fjölgi samfara auknum rannsókn- um. Prostaglandin virðast hafa víðtæka þýð- ingu fyrir mannslíkamann. Þau taka þátt í bólgumyndun og valda sársauka og hita- hækkun. Þau hafa áhrif á slétta vöðva, kirtla og önnur hormón, svo aðeins sé minnst á nokkur atriði.2 10 12 í lungum hafa prostaglandin m.a. áhrif á spennu í sléttum vöðvum berkjanna. Ennþá er óljóst hversu mikinn þátt prostaglandin eiga í orsökum astma. Auk áðurnefndra eiginleika ASA veldur það aukinni blæðingarhneigð með lengd- * Vífilstaðaspítala. Greinin barst ritstjórn 4/11 1977. Samþykkt í breyttu formi 15/12 1977. um blæðingartíma. Þetta stafar af því, að ASA hindrar blóðflögur í að klumpast saman (thrombocytaggregation). Hér er einnig um á'hrif á prostaglandin að ræða. Getur þetta bæði verið kostur og löstur eftir því til hvers lyfið er notað.2 Eins og flestum er kunnugt hefur ASA ertandi áhrif á magaslímhúð. Sýnt hefur verið fram á með rannsóknum á hundum, að prostaglandin dragi úr saltsýrumyndun. ASA ætti því að örva saltsýrumyndun, en mér er ekki kunnugt um hvort þetta hefur verið rannsakað á mönnum. ASPIRINOFNÆMI Svokallað aspirinofnæmi (ASA intoler- ance) er vel þekkt meðal lækna, sem fást við ofnæmissjúkdóma. Einkenni eru astmi, nefbólgur (rhinitis), ofsakláði (urticaria) og ofsabjúgur (angio- neurotic oedema). Þessar aukaverkanir af ASA eru algeng- astar meðal sjúklinga með astma af innri orsökum (endogen asthma), sjúklinga með langvinnar nefbólgur og sjúklinga með langvinnan ofsakláða.1 3 5 7 14 15 17 (Með langvinnum ofsakláða er átt við að ein- kennin hafi staðið meira eða minna sleitu- laust í sex vikur). Oft hafa astmasjúk- lingarnir bólgusveppi (polypa) í nefi auk einkenna um langvinnar nefbólgur.10 Astmaköst vegna aspirinofnæmis geta verið mjög áköf og oft lífshættuleg. Sömu- leiðis getur ofsabjúgur í munni eða koki vegna ASA leitt til dauða. Aspirinofnæmi er ekki einungis bundið við áðurnefnda sjúkdóma, en getur einnig komið fram hjá fólki, sem virðist algjör- lega heilbrigt að öðru leyti. Aspirinofnæmi líkist mjög mikið sjúk- dómseinkennum við atopískt ofnæmi (flokkur I samkv. Gell og Coombs). Þess vegna var eðlilegt að álíta, að um atópískt ofnæmi væri að ræða. Húðpróf hafa þó
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.