Læknablaðið - 01.04.1978, Blaðsíða 24
54
LÆKNABLAÐIÐ
spekileg mál og dást að því, sem fagurt
er, hvort heldur það er andans og orðsins
verk eða handarinnar og hugans snilli.
í þessari akademíu hlýtur vinur minn nú
að vera. Þar er hann velkominn og þar
hlýtur hann að una sér vel svo heill og
sannur sem hann öllu þessu unni. Nú get-
ur hann gengið að sannindunum einum
og glaðst yfir því, hversu vel hann ávaxt-
aði sitt pund og ekki er hans sæla minni
fyrir þá sök, að hitta nú að nýju þann lífs-
förunaut, er hann svo sviplega missti og
fékk honum meira en flestir vissu.
Við fráfall Kjartans R. Guðmundssonar
hefur íslensk læknastétt misst einn sinna
bestu sona. Ég veit hún kveður hann með
mikilli þökk og virðingu, hún hvorki getur
annað né heldur vill.
Ég þakka Kjartani Guðmundssyni fyrir
samfylgdina. Hann hvatti mig til náms í
sérgrein okkar, leiðbeindi mér og studdi
mig, sem hann mátti og það var alltaf jafn
ánægjulegt að fá hann í heimsókn á
Queen Square og fylgjast með eldmóði
hans og áhuga á sérgreininni og vexti og
viðgangi hennar heima. Ég þakka honum
alla hans hjálp og ráðleggingar eftir að
við hófum starf saman hér heima.
Ég sendi ástvinum Kjartans innilegar
samúðarkveðjur. Ég veit hversu mikið þau
hafa misst, því hann reyndist alltaf stoð
og stytta, sannur bróðir, frændi og vinur.
Nú er skarð fyrir skildi, en ég bið að
hann megi nú hvíla í friði og bið Guð að
varðveita minningu hans.
Sverrir Bergmann.