Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2007, Page 2
föstudagur 23. febrúar 20072 Fréttir DV
Már Gunnarsson er sjö ára lífs-
glaður drengur. Hann á marga vini
sem hann leikur sér við, honum
gengur vel í nýja skólanum sínum
og hefur aðlagast lífi í nýju landi á
ótrúlegan hátt. Már er blindur.
“Fimm manna fjölskylda þurfti
að flýja land vegna þess að lögum og
reglugerðum er ekki framfylgt hér á
Íslandi,” segir Gunnar Már Másson,
flugmaður, faðir Más. “Már fædd-
ist með alvarlegan sjúkdóm í augn-
botnum sem gerði það að verkum
að nú er hann blindur. Sérfræðingar
í málefnum blindra og sjónskertra
leggja á það mikla áherslu að blind-
um börnum sé kenndur blindralest-
ur frá fjögurra ára aldri. Þegar Már
hafði verið einn vetur í skóla hér á
landi hafði hann ekki fengið einn
sérkennslutíma. Ekki einn,” bætir
hann við með áherslu.
Gunnar Már settist við símann
og hringdi til nokkurra landa. Alls
staðar var í boði góð þjónusta fyrir
blind og sjónskert börn. Lúxemborg
varð fyrir valinu enda hentaði það
best atvinnulega séð fyrir föðurinn.
Móðirin, Lína Rut Wilberg er list-
málari.
”Það er okkar lán að við getum
sinnt starfi okkar annars staðar en
á Íslandi. Það eru ekki allir foreldrar
svo heppnir. Í Lúxemborg sögðust
veita blindum og sjónskertum börn-
um alla þá þjónustu sem þau þyrftu
svo þau geti verið samstíga jafnöldr-
um sínum.Það var vissulega erfitt að
þurfa að kveðja ættjörð og ástvini,
en framtíð barnsins er í húfi. Vinnu-
veitandi minn, Icelandair, gerði
mér kleift að vera landflótta næstu
þrjú árin með því að flytja verkefni
mín yfir til Belgíu. Það var erfitt fyrir
blindan dreng að þurfa ekki aðeins
að kveðja vini sína, heldur einnig að
læra á ný heimkynni og læra lúxem-
búrgísku og þýsku, en hann hefur
staðið sig frábærlega.”
Er menntamálaráðherra
blindur á stöðu blindra barna?
Gunnar Már er sár og reiður út í
íslensk stjórnvöld.
”Staðan í málefnum blindra og
sjónskertra barna núna er nákvæm-
lega sú sama og hún var fyrir einni
öld,” segir hann. “Það hefur ekkert
breyst. Bókakostur Blindrafélagins
er úreltur og kennslugögn eru ým-
ist ekki til eða úrelt. Það er ekki einn
einasti kennari á vegum ríkisins sem
kennir blindralestur. Menntamála-
ráðherra státar sig af því að í þau átj-
án ár sem Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur ráðið menntamálum þjóðarinnar
hafi ríkt algjört jafnrétti til náms.
Mér er spurn: Er menntamálaráð-
herra blindur á stöðu blindra barna
á Íslandi? Ég hef lesið flestar ræður
Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur.
Hún fullyrðir að Ísland standi mjög
vel að vígi gagnvart OECD ríkjum
hvað varðar jafnan rétt til náms. Það
er rangt og það er klárlega verið að
brjóta á þessum minnihlutahópi.
Menntamálaráðherra segir einn-
ig að Ísland sé “land tækifæranna”.
Það er ekki land tækifæra fyrir blind
börn.”
Kennarar verða að læra
blindraletur
Hann segir þjónustu við blind og
sjónskert börn í Lúxemborg til al-
gjörrar fyrirmyndar.
”Már fær tuttugu sérkennslu-
tíma í hverri viku,” segir hann. “Hér
á landi eru 90 einstaklingar sem
þurfa að læra blindralestur. Það er
verið að brjóta mannréttindi á þess-
um börnum. Það sýnir sig líka að
frá stofnun Háskóla Íslands hafa
aðeins fimm blindir einstakling-
ar lokið prófi þaðan. Ef kennarar
hafa áhuga þá bendi ég þeim á að
alsjáandi fólk getur lært blindralet-
ur á tveimur vikum. Það liggur á að
opna þekkingarmiðstöð, það þarf
að virkja kennara, fræða þá um mál-
efni blindra og sjónskertra barna og
bjóða íslenskum kennurum upp á
að læra blindraletur.”
Baráttufundur fyrir bættum
hag barnanna
Gunnar Már hvetur fólk til að
sækja baráttufund fyrir bættum að-
búnaði blindra og sjónskertra sem
haldinn verður á Grand hóteli á
þriðjudaginn klukkan fimm síðdeg-
is.
“Fundurinn ber yfirskriftina
“Þurfa blindir menntun?” og þar
mun John Harris, annar tveggja
breskra sérfræðinga sem hingað
komu í október til að gera úttekt á
stöðu blindra í skólakerfinu greina
frá niðurstöðum sínum og leiðum
til úrbóta. Mér þykir afar slæmt að
menntamálaráðherra hefur tilkynnt
að hún kemst ekki á fundinn...”
Már Gunnarsson fæddist með alvarlegan sjúkdóm í augnbotnum. Fjölskylda hans flýði
land eftir að ljóst varð að Már fengi ekki þá aðstoð og þjónustu sem hann þyrfti á að
halda. Ekki er farið að lögum og reglugerðum hérlendis. Það birtist meðal annars í því
að einum vetri eftir að hann byrjaði í skóla hafði hann ekki fengið einn einasta kennslu-
tíma í lestri blindraleturs.
Brotið á mann-
réttindum
Blindra Barna
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Í frumvarpi um breytingar á
lögum um dómstóla er gert ráð
fyrir að myndatökur og hljóð-
upptökur í dómstólum landsins
verði bannaðar. Breytingatillagan
hefur farið fyrir allsherjarnefnd
Alþingis og þaðan til persónu-
verndar, sem gerir engar athuga-
semdir.
Samkvæmt tillögunni má
víkja frá banninu í einstök skipti,
með leyfi dómsstjóra. Ekki má
taka myndir af málsaðilum án
samþykkis þeirra. Persónuvernd
afgreiddi málið síðastliðinn
mánudag.
myndatökur í
dómssal
200 milljónir í
íþróttirnar
Ríkisútvarpið ver um
200 milljónum króna á ári í
íþróttaumfjöllun. Þetta kemur
fram í svari menntamálaráð-
herra við fyrirspurn Björns Inga
Hrafnssonar, varaþingmanns
Framsóknarflokksins.
Björn Ingi spurði jafnframt
hversu mikið sýningarrétturinn
frá Formúlu 1 hefði kostað og hve
mikið Ríkisútvarpið myndi borga
fyrir sýningarréttinn að Evrópu-
meistarakeppninni í fótbolta.
Engin svör fengust við því. Í svari
ráðherra segir að þær upplýsing-
ar megi ekki veita, enda trúnað-
armál milli Ríkisútvarpsins og
viðsemjenda þess.
Þrjár milljónir í
neyðarhjáp
Rauði kross Íslands hefur veitt
þremur milljónum króna vegna
gífurlegra flóða í Mósambík.
Beiðnin kom frá Alþjóða Rauða
krossinum og hljóðar hún upp á
ríflega fjögur hundruð milljónir
króna.
Miklar rigningar undanfarn-
ar vikur hafa orðið til þess að ár
hafa flætt yfir bakka sína og hafa
að minnsta kosti 29 týnt lífi. 120
þúsund manns hafa verið flutt
frá heimilum sínum og hátt í 300
þúsund manns hafa orðið fyrir
búsifjum. Nú hefur fellibylurinn
Favio einnig herjað á fórnarlömb
flóðanna.
Segjast hafa verið þvingaðar til fíkniefnainnflutnings:
Vildu halda vændinu leyndu
Tvær íslenskar konur á fimm-
tugsaldri sem teknar voru á Kefla-
víkurflugvelli með kókaín um miðj-
an febrúar, segjast vera vændiskonur
og hafi verið þvingaðar til innflutn-
ingsins. Gæsluvarðhald yfir þeim og
manni á þrítugsaldri rann út á mið-
vikudag en lögreglan á Suðurnesjum
fékk varðhaldinu framlengt á grund-
velli rannsóknarhagsmuna.
Konurnar voru að koma frá Am-
sterdam í Hollandi þegar þær voru
stoppaðar við hefðbundið eftirlit toll-
varða í Leifsstöð. Kókaínið földu þær
bæði innvortis og innan klæða. Kon-
urnar hafa ekki komið áður við sögu
lögreglu vegna mála af þessu tagi.
Þær halda því fram að maðurinn hafi
hótað að koma upp um vændisiðju
þeirra ef þær flyttu ekki inn fíkniefni
fyrir hann. Eftir að konurnar höfðu
verið handteknar hringdi sími í fórum
þeirra og var símtalið rakið til manns-
ins sem svo var handtekinn í fram-
haldinu. Konurnar segjast vera burð-
ardýr og að þær hafi fengið símann
frá manninum, sem sé eigandi fíkni-
efnanna til að nota í samskiptum við
hann á meðan á verkinu stæði.
hrs@dv.is
Fíkniefni
Konurnar voru stöðvaðar með kókaín
við venjubundið eftirlit tollgæslu.
Flottir feðgar
Már og gunnar Már eiga þann draum að sjá stöðu
blindra og sjónskertra barna á Íslandi breytast til muna.
Þá geta þeir snúið aftur heim til ættjarðarinnar...
Klámgestir
hefna sín
Þeir aðilar sem skipulögðu
klámráðstefnu á Hótel Sögu
hafa ákveðið að leita sér laga-
legrar aðstoðar vegna máls-
ins. Íhuga þeir nú að fara í mál
vegna tapaðra fjármuna og tíma
eftir að stjórn Bændasamtak-
anna bannaði þeim að gista á
hótelinu sínu. Í yfirlýsingu, sem
finna má á heimasíðu þeirra,
segir að fyrirtækið hafi beðið
skaða vegna málsins. Að auki
spyrja forsvarsmenn á síðunni
hvort skárrra sé að drepa hvali
en að hleypa klámleikkonum til
landsins.
AnnA KristinE
blaðamaður skrifar: annakristine@dv.is