Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2007, Blaðsíða 57
DV Helgarblað föstudagur 23. febrúar 2007 57
Tæplega
á dagskrá
Tónlistarhátíðin South by Southwest er árlegur viðburður í höfuðborg Texas-fylk-
is, Austin. Á hátíðinni er boðið upp á gríðarlega tónlistardagskrá og vandaða kvik-
mynda- og margmiðlunardagskrá í leiðinni. Íslenskar hljómsveitir hafa jafnan farið
út og spilað á hátíðinni og í ár er engin breyting þar á, en fjögur íslensk bönd eru á
dagskránni sem er nú fullskipuð.
1500 bönd
Tónlistarhátíðin South by
Southwest, eða Suð-suðvest-
ur, verður haldin í Austin í Tex-
as í Bandaríkjunum í mars eins
og vaninn hefur verið undanfar-
in ár. Markmið hátíðarhaldara er
að vera með sem fjölbreyttasta
tónlist og um leið reyna að koma
hæfileikafólki í kynni við bæði
fjölmiðla og bransalið. Í ár munu
yfir þúsund hljómsveitir koma
fram á hátíðinni, eða 1493 í heild-
ina. Hljómsveitirnar deilast yfir 64
tónleikastaði um borgina og mæta
yfir 2000 blaðamenn á svæðið.
South by Southwest er ekki aðeins
tónlistarhátíð heldur einnig kvik-
mynda- og margmiðlunarhátíð.
Í ár spila fjórar íslenskar hljóm-
sveitir á hátíðinni. Bang Gang
með Barða Jóhannsson í farar-
broddi, söngkonan Hera, Músík-
tilraunasigurvegarar Mammút og
Reykjavík! sem gaf út plötuna Art-
ic Landscapes, glaciers, opress-
ion, religion & alcohol síðasta
sumar og fékk afbragðsdóma fyrir.
Hljómsveitin Jakobínarína spilaði
á hátíðinni í fyrra og vakti gífur-
lega athygli blaðamanna. Piltarnir
fengu skrifað um sig í hinum ýmsu
miðlum og hafa síðan þá fetað enn
lengra framabrautina. Á hátíðinni
spilar líka einn færeyskur frændi;
Teitur, en sá þykir afbragðstón-
listarmaður. Fleiri hljómsveitir
frá Norðurlöndum eru svo á sín-
um stað og ber þar helst að nefna
Datarock, Architecture in Hels-
inki, Junior Senior, Peter Bjorn &
John og síðast en ekki síst Under
Byen, sem er sögð nokkurs konar
Sigur Rós Danmerkur. Á dagskrá
hátíðarinnar má inni á milli finna
stærri sveitir á borð við Lily Allen,
The Automatic, Badly Drawn Boy,
Bloc Party, Chuck D, Razorlight,
RJD2, Sage Francis, The Stooges, dori@dv.is
Reykjavík!
Verður borginni vonandi til sóma.
Morrissey tónlistarmaðurinn
Morrissey spilaði á hátíðinni
í fyrra við góðar undirtektir.
Barði Jóhannsson Hefur þegar
vakið umtal í bandaríkjunum og
spilar í austin í texas í mars.
Amy Winehouse og Kings of Leon.
South by Southwest er stórglæsileg
tónlistarhátíð og ærlegt framtak.
Hátíðin byrjar þann 14. mars og
stendur til 18. mars.
„Ég veit ekki hvort það var U2,
The Rolling Stones eða Oasis sem
byrjaði á þessu „ég er besta hljóm-
sveit í heimi og fjandinn hirði hin-
ar“ hugarfari, en það er gjörsam-
lega óþolandi,“ segir Win Butler,
söngvari hljómsveitarinnar Arcade
Fire í viðtali við tónlistartímaritið
NME. Í viðtalinu fer Win mikinn um
ástand tónlistarbransans og segir að
markaðssetningin sé farin að ráða
þar ríkjum. „Sumar hljómsveit-
ir eru bara að heilaþvo fólk til þess
að kaupa tónlist. Það er þannig sem
90% af þessum tónlistarbransa eru.
Það er verið að selja tónlist eins og
skemmtisiglingar eða brauðristar,“
segir Win reiður. Enn fremur seg-
ir hann að hljómsveitin hans hugsi
alls ekki svona. „Það er ekki eins og
við viljum ekki velgengni en að sama
skapi viljum við ekki neyða tón-
list okkar ofan í fólk. Það er bölvað
kjaftæði að vera í einhverri keppni
um hver er mesta rokkstjarnan,“
segir Win. Hljómsveitin Arcade Fire
hefur heldur betur sótt í sig veðrið
undanfarið. Hljómsveitin var stofn-
uð í Kanada árið 2003 og gaf út sína
fyrstu plötu, Funeral, árið 2004.
Þann 6. mars næstkomandi kemur
út næsta breiðskífa þeirra sem ber
heitið Neon Bible. Það verður gam-
an að sjá hvernig skaphundurinn
Liam Gallagher bregst við tali Wins,
en hann hefur hingað til ekki leyft
neinum að komast upp með múður
í sinn garð.
dori@dv.is
Liam Gallagher
Verður eflaust æfur þegar hann
sér ummæli butlers.
Hera
Mætir keik til leiks á south by southwest.
sendir U2 og oasis Tóninn
Win Butler, söngvari Arcade Fire, fer ófögrum orðum um kollega sína í nýju viðtali:
Win Butler segir að góð
tónlist snúist ekki um hver
sé mesta rokkstjarnan.
Hljómsveitin The Streets
hefur unnið hörðum höndum
að nýrri plötu
upp á síðkast-
ið. Maðurinn á
bak við bandið,
Mike Skinner,
segir að vinnsla
nýju plötunnar
sé frábrugðin
fyrri plötum. „Ég
ákvað að skrifa
alla textana fyrst
og sníða svo tónlist í kringum
þá, en það hef ég ekki gert áður,“
segir Skinner. Í þetta skiptið
notast Skinner líka við lifandi
hljóðfæri eins og píanó, tromp-
et, fiðlu og flautu, en áður hefur
hann einungis notast við sömpl
og hljóðgervla. Ekkert hefur enn
verið sagt til um hvenær platan
kemur út, en það verður eflaust
á þessu ári.
ný sTreeTs-
plaTa í vændUm
Samkvæmt New York Busin-
ess-tímaritinu hefur gítarleik-
arinn Slash ákveðið að gefa út
ævisögu. Slash
sem er nú í
hljómsveitinni
Velvet Revolver
er þekktastur
fyrir störf sín í
hljómsveitinni
Guns N’ Roses,
en Slash hætti
ásamt söngv-
ara sveitar-
innar, Axl Rose, árið 1996. Það
er blaðamaðurinn og rithöf-
undurinn Anthony Bozza sem
verður Slash til halds og trausts í
bókarskrifunum, en sá hjálpaði
einnig rokkaranum Tommy Lee
við að skrifa ævisögu sína. Bókin
er væntanleg í haust og er það
HarperCollins sem gefur út.
ævisaga frá
slash á leiðinni
Ekki er víst að verði af end-
urkomu rokkarans Davids Lee
Roth í hljómsveitina Van Halen.
Talsmaður sveit-
arinnar gaf út yfir-
lýsingu 2. febrúar
þar sem kom fram
að hljómsveitin,
skipuð uppruna-
legum meðlimum
hennar, myndi
fara á tónleikaferð
og leika í yfir 40 borgum í Banda-
ríkjunum. David Lee Roth, sem
hefur ekki spilað með bandinu
í 23 ár, og Van Halen-bræðurnir
voru mjög vongóðir eftir æfingar
í vikunni en nú hefur túrnum
verið frestað um óákveðinn tíma
en ekki hafa fengist neinar skýr-
ingar hvers vegna.
van halen salT-
ar endUrkomU