Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2007, Blaðsíða 53
DV Helgarblað föstudagur 23. febrúar 2007 53
“Ég er að fara gefa út plötu og á henni eru
meðal annars Hjalti Úrsus, Bjartmar Guðlaugs-
son, Erpur Eyvindarsson, Unnur Birna, Jóhanna
Guðrún, dúettinn Hljómur, Alli Rúts og Gústi
Aska,” segir útvarpsmaðurinn og skemmtikraft-
urinn Steinþór Hróar Steinþórsson eða Steindi
Jr eins og hann er kallaður. “Platan kemur út í
lok mars eða byrjun apríl og heitir Peppið fell-
ann.,” segir Steindi en þar verður húmorinn í
fyrirrúmi. “Þetta verða tíu lög og tíu hljóðskets-
ar. Til dæmis er rapplag með Hjalta Úrsus og svo
tek ég líka Týndu kynslóðina með Bjartmari.”
“Þetta byrjaði allt sem grín hjá mér og vin-
um mínum. Við vorum og erum alltaf að taka
upp vídjósketsa og gera grínlög til að skemmta
hvor öðrum. Síðan var ég bara kominn með svo
mikið efni að ég ákvað að fara bara alla leið og
gera plötu.”
Í útvarpinu virka daga
“Ég er í loftinu á Flass 104,5 alla daga milli
tíu og eitt,” en auk þess að vera vinna í tónlist-
inni hefur Steindi vakið athygli að undanförnu
fyrir frumlegt og fyndið útvarpsefni. “Ég er að
reyna gera þátt fyrir fólk sem vill fá eitthvað
meira útúr útvarpi en bara hlusta á tónlist,”
segir Steindi sem fjallar um málefni líðandi
stundar á fyndinn hátt að eigin sögn.
Húmorinn í fyrirrúmi
“Þátturinn byggist mikið upp á föstum lið-
um, sketsum, útvarpsleikritum og öðru upp-
teknu efni,” en meðal fastra liða eru til dæmis
Á trúnó með Steinda Jr og Helgartremminn. “Í
Helgartremmanum hringir fólk til dæmis inn og
segir mér frá því þegar það datt í það um helg-
ina og át heilt oststykki eða setti smokk á hest.”
Steindi
segist einn-
ig ræða það
mikið við
hlustendur
sína um hversu lélega skeggrót hann sé með.
“Ég hringi líka mikið til Færeyja og tala um
málefni líðandi stundar og annað sem liggur
mér á hjarta.”
“Það er ekki komið á hreint ennþá hvar
platan verður seld en hún mun kosta 1000
krónur,” segir Steindi að lokum og bendir fólki
á heimasíðuna www.myspace.com/steind-
ijr til að kynna sér tónlistina og myndböndin
frekar.
asgeir@dv.is
RappaR með
Hjalta ÚRsus
Velski leikarinn Rhys Ifans var
mættur í sjónvarpsþátt Jay Leno á
miðvikudaginn var. Leikarinn sem
er þekktastur fyrir leik sinn í kvik-
myndunum Notting Hill og Little
Nicky var mættur til þess að kynna
nýjustu kvikmynd sína, Hannibal
Rising. Rhys gerði mikið að gamni
sínu og talaði meðal annars um
hve auðveldlega hann sofnaði í
leikhúsi og hve vandræðalegt það
væri. Til dæmis nefndi hann sýn-
ingu sem hann fór á í Bretlandi,
líklega einhverja af sýningum Vest-
urports, þar sem leikarar töluðu
um “endurkomuna til Íslands.”.
Innan skamms var Rhys sofnaður
en vaknaði svo upp með látum og
ópum þegar hann fékk martröð um
að hrapa niður gjá á Íslandi. Sagði
Rhys að hver einasti leikhúsgest-
ur hefði mænt á sig og leikararnir
á sviðinu líka. Í framhaldinu birt-
ist svo leikhúsdómur hjá The Daily
Mail þar sem gagnrýnandi sagði að
kvöldið hefði verið hálf leiðinlegt,
fyrir utan hinn “sífulla” Rhys Ifans
sem hefði sofnað og vaknað upp
með þvílíkum ópum að hverjum
einasta gesti hefði brugðið. Rhys
nefndi sýninguna ekki á nafn og
ítrekað við Leno að þótt hann léki
sjálfur á sviði, gæti hann ekki hald-
ið sér vakandi á leiksýningum.
DReymDi ÍslanD Í leikHÚsi
Útvarpsmaðurinn og skemmtikrafturinn
Steinþór Hróar Steinþórsson betur þekktur
sem Steindi Jr gefur út plötuna Peppið fellann í
vor þar sem hann rappar meðal annars með
Hjalta Úrsus. Einnig koma fram á plötunni Bjart-
mar Guðlaugsson, Erpur Eyvindarsson og Unn-
ur Birna ásamt fleirum. Steindi Jr er í útvarpinu
á Flass 104,5 alla virka daga milli 10 og 13.
Gettu betur
hefst í kvöld
Átta liða úrslit í Spurninga-
keppni framhaldsskólanna eru
ljós og því er keppnin komin í
sjónvarp. Fyrsta keppnin er í kvöld
og þá eigast við lið Menntaskólans
í Kópavogi og Fjölbrautaskólans
í Garðabæ. Einnig eru lið Versló,
MA, MS, MR, ME og MH komin
áfram og er síðasta viðureign í átta
liða úrslitum háð þann 16.mars.
Spyrill er Sigmar Guðmundsson
og í stöðu dómara og spurninga-
höfundar er Davíð Þór Jónsson.
ÓlátaGarður
opnar í kvöld
Sérstök sýning á vegum Vetr-
arhátíðar opnar í kvöld, í gömlu
kartöflugeymslunni við höfða.
Sýningin ber heitið Ólátagarður-
inn og eru það hópur listamanna
sem áður hafa fengist við graffiti
sem sjá um verkin. Á sýningunni
má sjá ljósmyndun, video-list,
innsetningar og verk á striga.
Sagt er í lýsingunni að sýningin
sé ómótstæðileg fyrir öll skilning-
arvit. Sýning er aðeins í dag og á
morgun.
forsala á skÓla-
ball að hefjast
Skólaball pose.is verður haldið
á Nasa laugardaginn 10.mars. Á
ballinu koma fram hljómsveitin
Á móti Sól með Magna fremst-
an í fararbroddi, rapparinn Bent
& Dj Danni Deluxe og síðast en
ekki danstónlistar tvíeykið Dj
Ghozt & Brunhein. Forsala miða
hefst mánudaginn 26.febrúar í
verslun skór.is í kringlunni. Verð
fyrir skólafólk er 1500 krónur en
2000 fyrir aðra. Aldurstakmarkið
er 20 ár.
Tekur upp myndband
Steindi hefur þegar gert myndbönd
við nokkur laganna á plötunni.
Hjalti Úrsus
Rappar með Steinda Jr á
plötunni Peppið fellann.
Steinþór Hróar Steinþórsson
Steindi Jr gefur út plötu í vor þar sem
fjöldi þekkta einstaklinga kemur fram.
Rhys Ifans sofnaði í leikhúsi og fékk martröð þar sem hann féll niður gjá á Íslandi.
Rhys Ifans sagðist í þætti Jay Leno
hafa sofnað í leikhúsi og dreymt sig
falla niður gjá á Íslandi.