Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2007, Blaðsíða 43
DV Helgarblað föstudagur 23. febrúar 2007 43
Á að leyfa klÁmrÁðstefnu Á Íslandi?
Hafsteinn Þórólfsson,
söngvari og lagaHöfundur:
„Ég hef ekki kynnt mér þetta mál til
fulls, en út frá siðfræðilegu
sjónarmiði og hugsjónum mínum
tel ég ekki rétt að klámráðstefna sé
haldin hér á landi. Ég held það sé
ekki gott að fá landkynningu út frá
þessari ímynd og við eigum ekki að
bjóða klámiðnaðinn velkominn.“
Katrín s. óladóttir, framKvæmdastjóri:
„Klámráðstefna er svo stórt orð. Hvernig eigum við að
banna eina ráðstefnu en leyfa aðra? Við höfum ekki
hugmynd um um hvað verður fjallað á þessari ráðstefnu.
eftir því sem fjölmiðlar hafa greint frá er ekki talið að um
neitt ólögmætt sé að ræða. Þetta fólk virðist koma í sama
tilgangi og aðrir, ræða sín mál og fara í bláa lónið!
Hvernig getum við auglýst okkur sem ráðstefnuland en
bannað á sama tíma eitthvað sem við vitum í raun ekkert
um? Við leyfum klámbúllur á landinu en hneykslumst
svo á komu þessa hóps. Ég treysti þeim sem veittu leyfi
fyrir ráðstefnunni til að hafa kynnt sér inntak hennar
áður en samþykki var veitt.“
arnar gauti, verslunarmaður:
„Já, þetta er iðnaður eins og allt annað,
þótt það séu til slæmar myndir af honum.
Þetta eru framleiðendur á efni og allir
kaupa það, hvort sem þeir viðurkenna það
eða ekki. Það er örugglega til klám í hillum
hjá alþingismönnunum líka. Þetta er eins
og með rauðvín í búðum, við megum ekki
kaupa það af því að stjórnmálamennirnir
leyfa það ekki, en svo fara þeir til útlanda
og þá finnst þeim ekkert sjálfsagðara en að
kaupa vín í búðum. ef klám er innan
velsæmismarka, sem ég tel það vera, þá er
þetta fullkomlega eðlilegt.“
stefán máni, ritHöfundur:
„Ég vil leyfa þetta, ég nenni ekki að
búa í þjóðfélagi þar sem allt er
bannað, það á bara að leyfa allt.
það á að setja reglur um hlutina.
Mér finnst að það eigi að leyfa allar
ráðstefnur, svo lengi sem það eru
reglur um þær. Þetta er sama og
með bjórsölu, það á að leyfa hana
og að auglýsa hana sömuleiðis.“
Bryndís scHram:
„spurt er: finnst þér að eigi að leyfa klám-
ráðstefnu á Íslandi?
svar: Ofstækismenn í bandaríkjunum náðu því
fram á sínum tíma að banna ulysses eftir James
Joyce á þeirri forsendu, að það væri klámrit.
Hefði sá dómur staðið, væri obbinn af heims-
bókmenntunum, ásamt helstu kvikmyndum
samtímans, kominn á bannlista. svo að ég tali nú
ekki um afþreyingarefnið bandaríska, sem er
þeirra helsta útflutningsgrein, og íslenskir
foreldrar nota til þess að hafa ofan af fyrir
börnum sínum í fjarveru sinni. eigum við ekki að
banna þetta allt saman? Á ríkisstjórnin að hafa
vald til að banna fundi, sem hún er á móti? Viljum
við það? Verður þá ekki næsta mál að stimpla
náttúruverndarsinna hryðjuverkamenn og banna
fundi þeirra? Ég held, að ríkisstjórn og alþingi
ættu fyrst að biðjast afsökunar á meðsekt Íslands
um innrásina í Írak og blóðbaðinu þar, áður en
þeir taka sér vald til að banna fundahöld að eigin
geðþótta.“