Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2007, Blaðsíða 4
föstudagur 23. febrúar 20074 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Strippararnir á Goldfinger
stúlkurnar á strippstöðum borgarinnar
fá talsvert meira fyrir einkadansinn en
svikakvendið á reykjanesinu.
Lögreglan á Suðurnesjum leitar fáklædds fjársvikara:
Strippar og stelur af gamalmennum
Lögreglunni á Suðurnesjum barst
tilkynning um háskakvendi sem
svíkur fé út úr gamalmennum með
óvenjulegri leið. Samkvæmt lögregl-
unni mun það hafa verið á mánudag
sem stúlka bankaði upp á hjá eldri
borgurum í fjölbýlishúsi fyrir aldraða.
Hún bauð þeim sem höfðu áhuga á að
kynna fyrir þeim vörur. Aðspurð hvers
kyns vörur það væru sagði hún að það
væru nærföt.
Að minnsta kosti tveir eldri borgar-
ar hleyptu konunni inn í íbúð sína. Þar
klæddi hún sig úr öllum fötum nema
nærfötum til þess að kynna vöru sína
vel og vandlega. Þegar hún hafði lokið
kynningunni heimtaði hún fé af eldri
borgaranum. Sá einstaklingur mun
aðeins hafa haft þúsund krónur und-
ir höndum og lét stúlkuna umsvifalsut
hafa þá fjárhæð. Hún huldi þá vöru
sína og bankaði upp á hjá öðrum ein-
staklingi í sama fjölbýlishúsi.
Að sögn lögreglu endurtók hún
leikinn. Í það skiptið mun hún hafa
fengið tæplega átta þúsund krónur
fyrir sýninguna. Samkvæmt vef Víkur-
frétta mun hún einnig hafa farið í fleiri
íbúðir.
Strípihneigðu konunnar er enn
leitað. Þess má geta að einkadans á
súlustöðum borgarinnar kostar tals-
vert meira, en þar er mínútan verð-
lögð á þúsund krónur. Því má velta því
fyrir sér hvort hún sé ekki á röngum
starfsvettvangi.
Að sögn varðstjóra lögreglunnar er
málið í rannsókn.
DV Dagblað á ný
DV er nú gefið út sem dagblað eftir nokkurra mánaða hlé. Sigurjón M. Egilsson ritstjóri
þessa elsta dagblaðs á Íslandi segir spennandi tíma fram undan á íslenskum dagblaða-
markaði.
Ylvolgt úr prentvélinni
sigurjón M. egilsson, Janus
sigurjónsson, Hjálmar
blöndal og Hreinn Loftsson
fagna því að dV er aftur
komið í daglega útgáfu eftir
nokkurt hlé.
DV hóf á ný göngu sína sem dag-
blað fimmtudaginn 22. febrúar.
„Frá og með fimmtudeginum eru
fimm dagblöð á Íslandi. Það er orð-
ið mjög langt síðan þessi staða var
síðast uppi á teningnum,“ segir Sig-
urjón M. Egilsson, ritstjóri DV. Hann
segir þetta vera spennandi tíma fyr-
ir fréttaþyrst fólk og alla þá sem hafi
gaman af fjölmiðlum og þjóðfélags-
umræðu. „Það gefur auga leið að
DV hefur talsverða sérstöðu. Það er
prentað á öðrum tíma sólarhrings og
kemur til með að verða mun háðara
mati lesenda sinna en hin dagblöð-
in,“ segir Sigurjón.
Ágengari blaðamennska
„Markmið okkar sem vinnum á DV
er að gera blaðið þannig
úr garði að lesendur eigi
erindi til blaðsins og DV
eigi á sama hátt erindi
við lesendurna,“ segir
Sigurjón. Hann segir að
til þess að blaðið uppylli
þetta skilyrði verði það
að vera ferskt. Það verði
líka að vera kjarkaðra
og ágengara en hin hef-
bundnu, rólegu, borg-
aralegu morgunblöð.
„Það er þarna sem DV
staðsetur sig.“
Sigurjón segir jafnframt að kjör-
orð blaðsins: Frjálst og óháð dag-
blað, séu mikilvægur þáttur í mótun
blaðsins. „Allir sem koma að útgáfu
blaðsins vita þetta. Þetta slagorð hef-
ur verið notað í öllum undirbúningi
blaðsins og verður notað aftur núna
þegar DV er orðið að dagblaði. Okk-
ar helsti drifkraftur er þetta nauðsyn-
lega og nána samband við lesendur.
Þar munu allir sjá sérstöðu DV, um-
fram hin dagblöðin.“
Dagblaðið-Vísir
Það er Dagblaðið-Vísir útgáfufé-
lag sem gefur út DV. Það er Hjálmur
ehf. sem á stærstan
hluta í útgáfufélaginu,
49 prósent. Hjálm-
ur er að öllu leyti í
eigu Baugs. 365 miðl-
ar eiga 40 prósent og
Sigurjón M. Egilsson
ritsjóri á tíu prósent
og Janus Sigurjónsson
á eitt prósent.
Stjórn Dagblaðsins-
Vísis útgáfufélags skipa
þau Hreinn Loftsson
stjórnarformaður, Auð-
björg Friðgeirsdóttir og
Sverrir Ragnars Arn-
grímsson. Framkvæmdastjóri út-
gáfufélagsins er Hjálmar Blöndal.
Blaðið verður prentað í prentsmiðju
Morgunblaðsins að Hádegismóum
við Rauðavatn.
Elsta dagblaðið
Upphaf DV má rekja aftur til árs-
ins 1910 og er það því elsta dagblað
á Íslandi. Þá hét blaðið Vísir til dag-
blaðs. Blaðið hefur gengið í gegn
um nokkur skeið breytinga. Nafnið
DV varð til þegar síðdegisblöðin tvö
Dagblaðið og Vísir sameinuðust í eitt
blað, DV. Þetta var árið 1981.
DV var gefið út eingöngu sem
helgarblað í tæpa tíu mánuði, eða frá
því í byrjun maí í fyrra. Þá hafði blað-
ið gengið í gegn um nokkrar hremm-
ingar og stjórn 365 prentmiðla mat
stöðuna þannig að forsendur fyrir
daglegri útgáfu væru ekki lengur fyr-
ir hendi.
Dagleg útgáfa hefur nú verið end-
urreist. Blaðið kemur út alla virka
daga. Síðdegisblöðin, mánudaga
til fimmtudaga, verða eingöngu í
lausasaölu fyrst um sinn. Helgar-
blaðið kemur út snemma á föstu-
dagsmorgnum og verður einnig selt
í áskrift.
„Okkar helsti drifkraft-
ur er þetta nauðsyn-
lega og nána samband
við lesendur. Þar munu
allir sjá sérstöðu dV,
umfram hin dagblöð-
in.“SiGtrYGGur ari jóhannSSon
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
DV er aftur komið í daglega útgáfu. Blaðið kemur út fimm sinn-
um í viku og verður síðdegisblað. Sigurjón M. Egilsson ritsjóri
segir þetta skapa blaðinu sterka sérstöðu á dagblaðamarkaðn-
um. DV komi til með að verða ferskt og ágengt dagblað. Hann
segir þetta vera spennandi tíma fyrir fréttaþyrst fólk og alla sem
séu opnir fyrir þjóðfélagsumræðu.
Vill sigla á Þingvallavatni
Guðmundur Hallvarðsson alþingismaður og formaður samgöngunefndar Alþingis vill að heimilaðar verði siglingar á Þingvallavatni. „Mér finnst verið að ýta Þingvöllum í þá átt að það megi helst ekki stíga niður fæti í þjóðgarðinum. Mér finnst að Íslendingar og þeir sem sækja landið heim eigi að fá að berja Þingvelli augum áfram.“
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
EvrópumEistarar
í inntöku rítalíns
yngstu íslendingarnir sem er gefið rítalín eru enn á leikskólaaldri:
Vetrarhátíð í Reykjavík
SÍÐA 6
SÍÐA 2 SÍÐA 25
SÍÐA 15
Bellamy
sló í gegn
>> Craig Bellamy átti stórleik gegn Barcelona og skoraði
annað markið í góðum sigri Liverpool.
fRéttiR
>> Stjórnarmenn í Eftirlaunasjóði slökkviliðsmanna á Keflavíkurflugvelli seldu sjálfum sér hlutabréf í eigu sjóðsins sem hafa sjöfaldast í verði síðan þá.
Keyptu af sjálfum sér
Raxi:
Braggi
>> Raxi hefur lengi keyrt um á bragga. Hann ætlaði eitt sinn að selja en konunni sem vildi kaupa fannst gírstöngin dónaleg.
spoRt
Gerir börnunum gott, segir landlæknir. Margþættar aukaverkanir eru af lyfinu, svo sem hjartsláttarónot og hárlos.
LífsstíLL
22. Febrúar 2007 dagblaðið vísir 8. tbl. – 97. árg. – verð kr. 250
SÍÐA 23
SÍÐA 7
Fjölbreytt dagskrá Vetrarhátíðar er að hefjast. Opnunaratriði hátíðar-innar er leikur á eldorgel á Aust-urvelli. Áður en tónarnir heyrast og eldurinn logar verður að undirbúa atriðið. Hér er verið að leggja lokahönd á upp-
setningu hljóðfærisins.
borguðu ekki
bensínið
Liðlega þrítugur maður sem
tók eldsneyti á bensínstöð í
Vogahvefi í Reykjavík í vikunni,
hvarf á brott án þess að greiða
fyrir bensínið. Maðurinn bar
við minnisleysi þegar lögreglan
birtist heima hjá honum. Hann
fór þó aftur á bensínstöðina og
greiddi reikninginn sem hljóðaði
upp á tvö þúsund krónur. Annar
hálfþrítugur maður lék sama leik
á bensínstöð við Vesturlands-
veg. Lögreglumaður bar kennsl
á kauða og verður hann einnig
látinn greiða skuld sína sem er
upp á heilar eitt þúsund krónur.
Lögreglan rannsakar þrjá aðra
bensínþjófnaði.
Verkfærum stolið
Brotist var inn í vinnuskúra á
nýbyggingasvæði í Kórahverfinu
í Kópavogi í fyrrinótt. Þaðan var
stolið verkfærum fyrir talsverð
verðmæti. Þá var lykli stolið af
geymslugámi á vinnusvæði og úr
honum stolið verkfærum fyrir á
aðra milljón króna. Að sögn lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
hefur nokkuð borið á innbrotum
og þjófnuðum sem þessum að
undanförnu. Enginn er grunaður
um verknaðinn sem stendur en
rannsóknardeild lögreglunnar
fer með málið.
Músíktilraunir
2007
Skráning til
þáttöku í Músík-
tilraunum 2007
hefst þriðjudaginn
27. febrúar. Skrán-
ingin fer eingöngu
fram á heimasíð-
unni musiktilraun-
ir.is. Fjöldi þátttakenda takmark-
ast við 50 tónlistaratriði og því
mikilvægt að skrá sig sem fyrst.
Undankvöld Músíktilrauna fara
fram í Loftkastalanum dagana
19. til 23. mars og verður úrslita-
kvöldið 31. mars. Allar nánari
upplýsingar er hægt að nálgast á
heimasíðu keppninnar.
Vantar vitni
Lögreglan lýsir eftir vitnum
að umferðaróhappi á Reykja-
nesbraut gegnt Garðheimum í
Mjódd. Óhappið varð miðviku-
dagskvöldið 21. febrúar klukkan
rúmlega átta.
Ökumaður svartrar Hondu
Civic missti stjórn á bílnum er
hann ók suður Reykjanesbraut
með þeim afleiðingum að bíllinn
fór yfir umferðareyju og hafnaði
síðan á umferðarskilti. Grunur
leikur á að ökumaður hondunn-
ar hafi verið í kappakstri við ann-
an ökumann. Þeir sem geta veitt
lögreglu upplýsingar, sérstaklega
um hitt ökutækið sem kann að
hafa komið við sögu, eru beðnir
um að hafa samband í síma
444 1000.