Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2007, Qupperneq 19
DV Helgarblað föstudagur 23. febrúar 2007 19
borgríki
Miðað við byggðaþróun síðustu áratugi hefur Ísland þróast hratt í átt til þess að verða borgríki. Á hinum Norðurlöndunum búa um
15–25% íbúa á höfuðborgarsvæðum, en á Íslandi búa um 63% á höfuðborgarsvæðinu. Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, hefur
rannsakað byggðaþróun hér á landi og líkir Íslandi við Kúveit og Djíbútí í þessu samhengi. Fleiri fluttu frá Fjarðabyggð en til sveitarfé-
lagsins á síðasta ári, þrátt fyrir álversframkvæmdir.
kvæmdirnar hófust. Sú fólksfjölgun
og þar með hluti af þeirri uppbygg-
ingu sem hefur átt sér stað hefur að
mestu verið vegna tímabundinna
þarfa. Mögulega tekur það okkur
enn lengri tíma að meta raunveru-
leg áhrif framkvæmdanna.“
Hann bendir jafnframt á að inn-
viðir samfélagsins hafi ekki verið
styrktir nægilega mikið til þess að
koma í veg fyrir fólksfækkunina.
Álverið eitt og sér sé ekki nóg, því
meðal annars standist framboð af
menningu og afþreyingu engan
samanburð við suðvestursvæðið.
Ísland þegar orðið borgríki
Ágúst Einarsson, prófessor í
hagfræði og rektor Háskólans á
Bifröst, hefur rannsakað byggða-
þróun hér á landi. Í niðurstöðum
rannsóknar sinnar færir Ágúst rök
fyrir því að Ísland sé nú þegar orð-
ið borgríki. 63% landsmanna búa
á höfuðborgarsvæðinu, sem er
nærri því einsdæmi í heiminum,
því í einungis tæplega 10 öðrum
ríkjum heimsins sé byggðaþróun-
in á sama veg og hér. „Þrír af hverj-
um fjórum íbúum á landinu búa í
innan við klukkutíma akstursfjar-
lægð frá Reykjavík. Klukkutími þyk-
ir afar lítill akstur miðað við önnur
lönd, svo það er mikil sérstaða hér
á landi. Við erum því orðin borgríki
í réttri orðmerkingu. Ísland er stórt
land og þó svo það búi ekki nema
þrír á hvern kílómetra er hlutfalls-
leg íbúaþjöppun meiri á Íslandi en
víðast hvar í heiminum.“ Hann telur
jafnframt að orðræðan um dreifbýli
og landsbyggð verði mun minna
áberandi á næstu árum, því fjöldi
íbúa á landsbyggðinni sé orðinn til-
tölulega lítill hluti af þjóðinni.
Gunnar Gunnarsson blaðamaður
austurgluggans telur rétt að tala
um meinta uppbyggingu á
austurlandi.
Smári Geirsson, bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð, segir ekki rétt að draga miklar
ályktanir af tölum Hagstofu Íslands sem sýna að fleiri fluttu frá Fjarðabyggð en
til sveitarfélagsins:
Ekki hægt að meta áhrifin strax
„Það sem er að gerast er að það
er alveg gríðarlega mikil hreyfing
á fólki, fólk sem hefur viljað flytja
suður er loksins að fá eitthvað fyr-
ir eignir sínar á Austurlandi. Sum-
ir sem hafa búið hér og viljað fara
annað, hafa einfaldlega ekki getað
það, en nú geta þeir selt eignir sín-
ar og fengið almennilegt verð fyr-
ir þær. Fólki eru að opnast algjör-
lega nýir möguleikar,“ segir hann.
„Það fólk sem hefur ráðist í föst
störf er að langmestu leyti til fólk
sem hefur verið búsett á svæðinu.
Nú er líklegt að fjölgunar fari að
gæta, afleiddu störfin sem fylgja
álverinu eru til að mynda að verða
til á þessu og næsta ári.
Þetta eru meðal annars störf í
flutningum og þjónustu. Einnig
eru þau fyrirtæki sem munu þjón-
usta álverið núna að sækja um
lóðir og hefja uppbyggingu. Ég
vara við því að menn fari að draga
ályktanir allt of fljótt. Það er engin
stund til þess að meta áhrif þess-
ara framkvæmda núna.
Ég á von á því að þróunin muni
snúast við og þetta fari upp á við,
og ekki síður á árinu 2008. Álverið
tekur til starfa í aprílmánuði, mið-
að við áætlun, og framleiðslan á
að vera komin á fullt í árslok. Það
verður ekki fyrr en um það leyti og
jafnvel seinna sem menn geta far-
ið að velta fyrir sér áhrifunum.“
Smári segir að eftirspurn eftir
húsnæði á Reyðarfirði hafi til að
mynda stóraukist. Hann viður-
kennir þó að hann hefði viljað sjá
Þróunin á Íslandi er að mati
Ágústar samanburðarhæf við önn-
ur fámenn ríki á borð við Djíbútí,
Barein, Bahamaeyjar, Vestur-Sah-
ara, Katar og Kúveit. „Þetta eru hin
löndin í heiminum þar sem sam-
þjöppun íbúanna hefur verið álíka
og hér á landi. Ísland er með mikla
sérstöðu í þessum málum í sam-
anburði við hin Norðurlöndin, þar
sem 15–25% íbúa búa á höfuðborg-
arsvæðinu.“
Ágúst telur þessa þróun ekki
slæma fyrir landið, því á Íslandi sé
búseta frjáls og fólk færir sig á milli
landsvæða eins því hentar. Hann
bendir á að Ísland sé fámennt og
engin sérstök ástæða sé til þess að
snúa þróuninni við. „Jafnvægi mun
þó komast á þessa þróun á næstu
árum enda tel ég hana komna að
mettunarmörkum, samþjöppunin
hefur verið mjög mikil. Ég er ekki
viss um að þróunin muni halda
áfram á sama hraða og hún hefur
verið. Bújarðir eru til dæmis orðn-
ar verðmætari en þær voru fyrir að-
eins fimm árum og fólk er farið að
dvelja mun meira í frístundahús-
um en áður, búsetan er því aðeins
að breytast.“
Háskólakeðja í kringum
landið
Öflug háskólasamfélög eru lyk-
illinn að framtíð landsbyggðar-
innar, að mati Ágústar. Hann telur
framtíðina ekki liggja í hefðbundn-
um atvinnuvegum, heldur fyrst
og fremst í gegnum öfluga skóla-
starfsemi. „Ég hef talað fyrir hug-
myndum um háskólakeðju í kring-
um landið, sem þráðinn sem mun
halda landinu í byggð. Þó svo að
landsbyggðin verði fámennari er
mikilvægt að þar sé öflugt mannlíf
og fólki líði almennt vel.“
Hann tekur Borgarfjörð sem
dæmi um landsvæði sem hefur not-
ið góðs af öflugu háskólasamfélagi.
„Við sjáum það að Borgarfjörður
hefur breyst úr landbúnaðarsam-
félagi í skólasamfélag á tiltölulega
fáum árum. Í Borgarfirði eru tveir
háskólar með hundruðum nem-
enda og tugum kennara. Þetta er
mikil starfsemi og launin eru ágæt.
Það er alveg greinilegt að Bifröst og
Landbúnaðarháskóli Íslands hafa
lyft þessu samfélagi vel upp og gert
það að verkum að ungt fólk vill setj-
ast að þar. Á landsbyggðinni verða
að vera vinnuskilyrði fyrir metnað-
arfullt háskólamenntað fólk og með
öflugum háskólum verður til pláss
fyrir það fólk.“ valgeir@dv.is
Ágúst Einarsson rektor Háskólans
á bifröst segir Ísland nú þegar vera
borgríki.
málin þróast á annan veg. „Við
hefðum viljað sjá fjölgunina fyrr.
Við höfum hins vegar gert okk-
ur grein fyrir því að það var ekki
raunhæft. Í upphaflegum áætl-
unum okkar var gert ráð fyrir
að hlutdeild innlends vinnuafls
yrði miklu meiri, en ástæðan er
þenslan á Suðvesturhorninu. Ég
held þó að við höfum ekki ofmet-
ið jákvæðu áhrifin, það er ekki
rétti tíminn að meta þetta núna,
það er ekki fyrr en framkvæmda-
tímanum er lokið.“
Smári Geirsson
Varar menn við að
draga ályktanir.
1901
1930
1960
1990
2020
Landsbyggðin
Höfuðborgarsvæðið
Byggðaþróun
byggðaþróun á Íslandi samkvæmt
rannsókn Ágústar einarssonar.