Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2007, Page 30
föstudagur 16. febrúar 200730 Sport DV
10 bestu kauptímabilsins á Englandi
David James, Sol Campell og Kanu hafa staðið sig með miklum
sóma í allan vetur. Það var búist við litlu af þeim Kanu og James
en þeir hafa svo sannarlega gengið í endurnýjun lífdaga undir
öruggri leiðsögn Harrys Redknapp. Kanu var lengi vel
markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar og háværar
raddir hafa verið uppi um það að undanförnu að David James
eigi að vera aðalmarkvörður enska landsliðsins vegna
frammistöðu sinnar á þessari leiktíð. Ferill Sols Campell virtist
vera búinn eftir að hann kvartaði undan þunglyndi og fór að
ganga í pels, en nú brosir lífið við þessum frábæra varnarmanni.
Gömlu menniRniR HJá PoRtSmoutH1
JonatHan WooDGate
Hafi einhver leikmaður
gengið í endurnýjun lífdaga
þá er það klárlega Jonathan
Woodgate. Hann hefur átt
við þrálát meiðsli að stríða
undanfarin ár en hann
hefur náð að halda sér að
mestu lausum við meiðsli á
þessari leiktíð og spilaði
sinn fyrsta landsleik í háa
herrans tíð á móti
spánverjum á dögunum.
Vonandi fer hann aftur til
real Madrid og sýnir hvað í
honum býr. Woodgate náði aldrei að sanna sig að
fullu hjá Madrídarliðinu, en er samt sem áður mjög
vinsæll hjá stuðningsmönnum þess vegna
spænskukunnáttu sinnar.
anDy JoHnSon
Johnson skorar
mörk, leggur upp
mörk og leggur
sig alltaf 100%
fram. flestir héldu
að hann væri bóla
sem myndi
springa þegar
hann skoraði
grimmt fyrir
Crystal Palace en
Johnson hefur
afsannað þær
kenningar.
Johnson er við þröskuldinn á enska landsliðinu og
það er engin tilviljun. eini gallinn á leik hans er
leikaraskapur, en ef hann hættir að leika inni í teig
andstæðinganna eru honum allir vegir færir.
SCott CaRSon
ef scott Carson væri ekki í
liði Charlton væri liðið
langneðst í deildinni.
Carson hefur oft og tíðum
varið meistaralega á
leiktíðinni og komið á óvart
með stöðugum leik. Hann
er í láni frá Liverpool og ef
sir alex ferguson væri
knattspyrnustjóri hans
hefði Carson væntanlega
verið í byrjunarliði enska
landsliðsins í leiknum á móti spáni, en ekki ben
foster. Carson er hins vegar klárlega einn af
framtíðarmarkvörðum enska landsliðsins og ljóst er
að Liverpool þarf ekki að örvænta með markvarða-
stöðu liðsins ef Carson heldur áfram að spila líkt og
hann hefur gert á þessari leiktíð.
niColaS anelKa
skapgerð þessa snjalla
franska framherja hefur oft
og tíðum komið honum í
koll og ekki hjálpar að
framkoma umboðsmanns
hans hefur oft verið
gagnrýnd af þeim
félögum sem hann hefur
leikið með. undir
handleiðslu stóra sam
allardyce virðist frakkinn
loksins vera að sýna sitt rétta andlit og hefur verið
gríðarlega þýðingarmikill fyrir bolton á þessari
leiktíð en liðið er í harðri baráttu um sæti í
evrópukeppni á næstu leiktíð. anelka hefur spilað
með liðum eins og real Madrid, arsenal, Liverpool,
Psg og fenerbahce á ferlinum og enginn efast um
hæfileika þessa leikmanns.
tomaS RoSiCKy
eitt sinn var rosicky
talinn til efnilegustu
leikmanna evrópu en
þegar dortmund riðaði til
falls, féll rosicky með.
arsene Wenger borgaði
átta milljónir punda fyrir
tékkann og rosicky hefur
verið hverrar krónu virði,
en athygli vakti hve lítil
samkeppni var um að
kaupa leikmanninn
síðasta sumar. rosicky
hefur kannski ekki skorað mikið en hann hefur
fallið vel að leik arsenal og frammistaða hans á
móti Liverpool í enska bikarnum sýndi og sannaði
að þarna er frábær leikmaður á ferð.
Joleon leSCott
Hver er þessi Lescott
hugsuðu margir
stuðningsmenn everton
þegar david Moyes
pungaði út hálfum
milljarði fyrir þennan
varnarmann. Lescott
hefur unnið hug og hjörtu
stuðningsmanna everton
með frábærri spila-
mennsku á leiktíðinni og
það kom mörgum á óvart
að hann var ekki valinn í
enska landsliðshópinn fyrir leikinn gegn
spánverjum á dögunum. Lescott er hins vegar
einungis 24 ára og ef hann heldur áfram á sömu
braut er ekki langt að bíða þess að hann spili sinn
fyrsta landsleik fyrir hönd englands.
miCHael
CaRRiCK
Manchester
united endaði
átta stigum á
eftir Chelsea í
fyrra og
höfuðverkur
liðsins var
skortur á góðum miðjumönnum. Nú virðist sir alex
ferguson búinn að finna týnda hlekkinn sem hann
vantaði í Michael Carrick. Hann kostaði reyndar
formúu, tvo milljarða, en þrátt fyrir að vera lítið í
sviðsljósinu inni á vellinum á hann allt það hrós
sem hann fær skilið og honum hefur heldur vaxið
ásmegin á þessari leiktíð. Ófáar sóknir
andstæðinganna stoppa á Carrick og einnig gefur
hann góðar sendingar, sem nýst hafa vel í leik
Manchester united á þessari leiktíð.
Benni
mCCaRtHy
Loksins komst
benni
McCarthy frá
Porto, þar sem
hann fékk fá
tækifæri undir
lokin. Mark
Hughes og félagar í blackburn borguðu 2,5 milljónir
punda fyrir þennan magnaða sóknarmann sem
lærði fótamennt sína hjá ajax og varð
evrópumeistari með Porto 2003 og 2004. McCarthy
skorar reglulega eins og hans von er og vísa enda
hefur hann skorað mörk í hollensku, spænsku,
portúgölsku og Meistaradeildinni á ferli sínum.
blackburn seldi Craig bellamy til Liverpool fyrir
þessa leiktíð og McCarthy hefur staðið sig virkilega
vel í að fylla það skarð sem bellamy skildi eftir sig.
DiRK Kuyt
allir vissu að Kuyt væri
góður knattspyrnumaður,
á því lék enginn vafi. Hins
vegar hefur hann komið
eins og stormsveipur inn í
enska boltann strax á
fyrsta tímabili og allir í
bítlaborginni virðast elska
hann. framlag hans til
liðsins er þvílíkt að segja
má að rafa benitez hafi
loksins fundið framherja
sem hentar hans leikstíl
og óhætt er að segja að
hann sé sóknarmaður númer eitt í liði Liverpool.
Kuyt virðist kunna vel við sig í liði Liverpool og á
örugglega bara eftir að bæta sig sem leikmaður hjá
liðinu.
2
3
9
8
7 6
5
4
10
Mörg lið í ensku úrvalsdeildinni
fóru mikinn á leikmannamarkaðn-
um síðasta sumar og stórum upp-
hæðum var eytt í leikmenn sem áttu
að koma félögum til vegs og virðing-
ar á komandi leiktíð. Blaðamenn DV
sports gerðu úttekt á þeim leik-
mönnum sem ensku liðin keyptu
síðasta sumar og birta hér sitt mat á
bestu og verstu kaupum tímabilsins.
Góðir Það verður ekki tekið af gömlu hundunum í Portsmouth
að þeir hafa verið góðir.
KöRFuBolti
Föstudagur 23. Febrúar
kl. 19.15 skallagrímur - Haukar
kl. 19.15 Keflavík - uMfN
sunnudagur 25. Febrúar
kl. 19.15 Hamar/selfoss - Keflavík
kl. 19.15 uMfg - skallagrímur
kl. 19.15 tindastóll - snæfell
kl. 19.15 Ír - fjölnir
HanDBolti
Laugardagur 24. Febrúar
kl.13.00 stjarnan - ÍbV(kvk)
kl.16.00 HK - fram(kvk)
kl.14.15 Valur - fH(kvk)
kl.16.15 Valur - Haukar(kk)
kl.16.00 grótta - akureyri(kvk)
sunnudagur 25. Febrúar
kl.16.00 stjarnan - fylkir(kk)
kl.16.00 HK - akureyri(kk)
kl.16.00 fram - Ír(kk)
KnattSPyRna
Laugardagur 24. Febrúar
kl. 14:00 akraneshöllin fH Ka
kl. 15:00 egilshöll Valur fylkir
kl. 17:00 fífan breiðablik Keflavík
kl. 17:00 egilshöll fram Ía
sunnudagur 25. Febrúar
kl. 14:00 fífan HK Víkingur r.
kl. 15:00 reykjaneshöllin grindavík
stjarnan
kl. 16:15 Völsungur tindastóll
Gullmót KR í SunDi
lauGaRDalSlauG
aLLa heLgina
Kr super Challenge kl. 19.45 - 21.00
útsláttarkeppni er í 50 m flugsundi og
keppendur synda í músík og
ljósasjóvi.
eR íBV að SeGJa SiG úR KePPni?
svo gæti farið að ÍbV dragi kvennalið
sitt úr keppni í dHL-deild kvenna í
handbolta. Illa hefur gengið hjá
eyjamönnum að manna lið sitt og
einnig gengur erfiðlega að fá
styrktaraðila til samstarfs við
handknattleiksdeildina. ÍbV er ríkjandi
Íslandsmeistari í kvennahandbolta.
Liðið í vetur hefur mestmegnis verið
mannað erlendum leikmönnum og
stúlkum úr yngri flokkum ÍbV. ekki var
búið að taka ákvörðun þegar dV fór í
prentun í gær en aðalstjórn ÍbV
fundaði um málið í gærkvöldi.
Hvað er að gerast?