Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2007, Qupperneq 36
föstudagur 23. febrúar 200736 Sport DV
Arsenal og Chelsea mætast á sunnu-
daginn í úrslitaleiknum í enska deildarbik-
arnum. Leikurinn fer fram á Þúsaldarvellin-
um í Cardiff í Wales. Þetta er jafnframt síðasti
úrslitaleikurinn sem leikinn verður á þessum
velli þar sem endurbótum á gamla Wembley-
vellinum lýkur von bráðar.
Arsenal og Chelsea hafa farið ólíka leið í úrslit-
in. Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur verið dug-
legur að gefa ungum leikmönnum tækifæri til að
láta ljós sitt skína í þessari keppni á meðan Chel-
sea hefur mestmegnis spilað með sitt sterkasta lið.
Arsene Wenger hefur jafnframt sagt að hann muni
gefa ungu leikmönnum sem spilað hafa hvað mest
í keppninni til þessa tækifæri til að klára dæmið í
úrslitaleiknum.
„Við erum með frábæra stráka, frá aftasta
manni til þess fremsta, hvert sem litið er. Það er
frábært að vinna með þessum strákum og fara
í úrslitaleikinn [í deildarbikarnum] með þeim.
Þessir strákar eru með hjartað á réttum stað og
það er frábært fyrir mig sem stjóra. Sagt er að líf-
ið sé ungum knattspyrnumönnum of auðvelt.
En þetta er allt spurning um hvatningu og vilja
leikmannanna. Þessir strákar hafa sýnt að þeir
eru með gott hugarfar og tilbúnir að berjast.
Ég er mjög stoltur af þeim fyrir frammistöð-
una í keppninni hingað til. Þeir eiga skilið að
spila úrslitaleikinn. Við höfum spilað á móti
Liverpool, Everton, Tottenham og W.B.A. og af
hverju ættum við þá að óttast Chelsea? Þetta
er bara enn einn liturinn á búningi að spila á
móti!“ sagði Arsene Wenger um ungu strák-
ana sem hafa skilað Arsenal sæti í úrslita-
leiknum.
Cole og Gallas ekki með
Chelsea og Arsenal skiptust á
leikmönnum á síðasta degi félaga-
skiptagluggans í ágúst þegar Ashely Cole
fór til Chelsea og William Gallas til Arsenal.
Ashley Cole missir af leiknum um helgina
vegna meiðsla.
William Gallas lék sinn fyrsta leik eftir
meiðsli um síðustu helgi. Hann gerir þó ekki
ráð fyrir að taka þátt í leiknum gegn Chel-
sea á sunnudaginn. „Við gerðum 1-1 jafntefli
við Chelsea í deildinni með ungt lið á vellin-
um. Ég veit að ég kem ekki við sögu í leiknum
þar sem stjórinn [Arsene Wenger] hefur þegar
ákveðið liðið. En ungu strákarnir geta unnið
þetta. Þetta lið hræðist engan og hefur tekið
stöðugum framförum. Þegar ég kom til Ars-
enal varð ég steinhissa á því hve góðir ungu leik-
mennirnir hjá félaginu eru,“ sagði William Gallas.
Stóru liðin á Englandi líta oft á þessa keppni sem
tækifæri til að gefa ungum og lítt reyndum leik-
mönnum möguleika á að láta ljós sitt skína. Jose
Mourinho segir hins vegar að hann hafi mikinn
áhuga á að vinna þessa keppni og því stilli hann
upp sínu besta liði.
„Ég vil vinna þessa keppni og þess vegna
vel ég þá leikmenn sem ég tel vera besta
fyrir liðið. Ég vel ekki leikmenn
af því að þeir eru með falleg
augu eða af því að þeir eru
fyrstir
á æf-
inga-
svæð-
ið eða
síðastir
úr sturtu,“
sagði Mour-
inho.
Síðasti leikurinn í
Cardiff
Leikurinn á sunnu-
daginn verður að öllum lík-
indum síðasti úrslitaleikur-
inn í enskri keppni sem fram
fer á hinum glæsilega Þúsald-
arvelli í Cardiff. Árið 2001 hóf-
ust endurbætur á hinum fræga
Wembley-leikvangi í London
og síðan þá hafa allir úrslita-
leikir í bikarkeppnum enska
knattspyrnusambandsins far-
ið fram í Cardiff.
Ýmislegt hefur gengið á í
byggingu nýs Wembley-vallar
en verktakar segja að hann
verði tilbúinn fyrir úrslita-
leikinn í enska bikarn-
um, FA Cup, sem leikinn
verður í maí.
Arsenal hefur fjórum
sinnum leikið til úrslita á
Þúsaldarvellinum í Car-
diff frá árinu 2001, alltaf í
bikarkeppninni, FA Cup.
Arsenal hefur þrisvar far-
ið með sigur af hólmi í
þessum fjórum leikjum, þar
af bar Arsenal sigurorð af
Chelsea í úrslitaleiknum árið
2002, 2-0. Arsenal hefur tvisv-
ar unnið deildarbikarinn, síð-
ast árið 1993 þegar liðið vann
Sheffield Wednesday 3-1.
Chelsea hefur tvisv-
ar farið á Þúsaldarvöll-
inn til að leika til úrslita
í bikarkeppni, fyrst árið
2002 þegar Chelsea
tapaði fyrir Arsenal,
2-0. Árið 2005 léku
Chelsea og Liverpool
til úrslita í deildarbik-
arnum þar sem Chelsea fór
með sigur af hólmi í framlengd-
um leik, 3-2. Eiður Smári kom
inn á sem varamaður í þeim
leik og lagði upp sigurmarkið
sem Mateja Kezman skoraði.
Leikurinn á sunnudaginn
hefst klukkan 15.00 og er í
beinni útsendingu á sjón-
varpsstöðinni Sýn.
dagur@dv.is
Arsenal - Chelsea
Á sunnudaginn fer
fram úrslitaleikur-
inn í deildarbikarn-
um á Englandi,
Carling Cup, þegar
Lundúnaliðin
Arsenal og Chelsea
mætast á Þúsaldar-
vellinum í Cardiff.
Jose Mourinho segist ekki ætla að
velja leikmenn í liðið eftir því hvort
þeir eru með falleg augu.
Arsene Wenger stjóri arsenal hefur
fjórum sinnum farið með liðið í úrslitaleik
á Þúsaldarleikvellinum í Cardiff.
Michael Essien Hefur þurft að spila
ýmsar stöður í liði Chelsea vegna tíðra
meiðsla leikmanna.
Andriy Shevchenko Hefur helst
fundið skotskóna í deildarbikarn-
um og er markahæstur leikmanna
Chelsea ásamt frank Lampard í
þeirri keppni með þrjú mörk.
Jeremie Aliadiere Hefur vakið mikla
athygli fyrir frammistöðu sína í ungu
liði arsenal í deildarbikarnum og
verður að öllum líkindum á sínum stað
í liði arsenal á sunnudaginn.
Manuel Almunia Hefur spilað alla
bikarleiki arsenal á leiktíðinni og
staðið vel fyrir sínu.
Sigurgleði Leikmenn arsenal
sjást hér fagna eftir sigurinn á
Manchester united í úrslitum
ensku bikarkeppninnar árið 2005.
Bikarinn á loft John terry lyfti
bikarnum þegar Chelsea vann
Liverpool í úrslitum deildarbikars-
ins árið 2005. gerir hann það aftur
á sunnudaginn?