Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2007, Síða 40
Menning
föstudagur 23. febrúar 200740 Menning DV
Tískuhönnun í Þjóð-
menningarhúsinu
Gínur og tíska
Í Þjóðmenningarhúsinu verður
sýnt það nýjasta í tískuhönnun
frá tíu hönnuðum. Um er að
ræða íslenska tískuhönnun og
verða fjórir hönnuðir á staðn-
um og setja upp ný föt fyrir
opnum tjöldum. Sýningin hefst
klukkan 20.30 annað kvöld og
stendur til 27. febrúar.
Vetrarhátíð er nú haldin í sjötta
sinn. Hátíðin var sett af Vilhjálmi Þ.
Vilhjálmssyni borgarstjóra klukkan
20 í gærkvöldi. Hátíðin Franskt vor
var sett við sama tækifæri. Opnun-
aratriði hátíðarinnar var ekki af verri
endanum en þar lék franski gjörn-
inga- og tónlistarmaðurinn Michel
Moglia lék á eldorgel. Með því að
umbreyta hita í hljóð framkallar eld-
orgelið undarlegustu hljóð sem fólk
almennt tengir ekki hljóðfæraleik.
Með Moglia léku Sigtryggur Bald-
ursson, Steingrímur Guðmundsson
og Gísli Galdur Dj. Vetrarhátíðin
barst svo um næsta nágrenni. Dans-
hópurinn La Guardia Flamenca var
með sýningu í Listasafni Reykja-
víkur í Hafnarhúsinu Tryggvagötu.
Danshópurinn blandar á einstak-
an hátt saman ástríðu flamengó
og skipulagi majoretta. Hópurinn
kemur einnig fram á Safnanótt og á
laugardagskvöldi. „Dagskrá Vetrar-
hátíðar er mjög fjölbreytt,“ segir Sif
Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri
hátíðarinnar, “því markmið henn-
ar er að fá sem flesta til að taka þátt
í henni, ekki bara að njóta hennar.
Því virkjum við allt frá leikskóla-
börnum til eldriborgara og menn-
ingarstofnanir, listahópa og félaga-
samtök. Með því móti hefur tekist
að skipuleggja dagskrá sem höfðar
til breiðs hóps og við bjóðum alla
velkomna.“ Safnanótt hefst klukk-
an sjö í kvöld og stendur til klukk-
an eitt eftir miðnætti. Safnanótt
nýtur sívaxandi vinsælda og leikur
sífellt stærra hlutverk á Vetrarhá-
tíð. Dagskrá Vetrarhátíðar lýkur að
kvöldi laugardagsins 24. febrúar í
Listasafni Reykjavíkur með tónleik-
um frönsku hljómsveitarinnar Di-
onysos. Hljómsveitin staðfestir að
margra mati að frönsk sköpunargáfa
lifir enn góðu lífi. Tónleikar Dionys-
os eru í samvinnu við Franskt vor.
Þessi menningarhátíð, sem haldin er í
samvinnu íslenskra og franskra stjórn-
valda, er sannkallað gnægtarborð fyr-
ir skynfærin. Hátíðin var formlega
sett samhliða setningu Vetrarhátíð-
ar í Reykjavík. Við tekur sífelld hátíð,
sem stendur fram í miðjan maí, og
lok hennar marka jafnframt upphaf
Listahátíðar í Reykjavík árið 2007. Sig-
rún Lilja Guðbjartsdóttir hefur ásamt
Eiríki Þorlákssyni liststjórnanda há-
tíðarinnar skipulagt hátíðina og segir
hana nú haldna í fyrsta sinn á Íslandi.
„Hátíðin er samvinna íslenskra og
franskra stjórnvalda en haustið 2004
var haldin vegleg kynning á íslenskri
menningu í Frakklandi. Sú hátíð stóð
í tíu daga. Frakkarnir eru stórtækari
því hátíðin Franskt vor mun standa
fram í miðjan maí og lokaatriði henn-
ar mótar jafnframt glæsilegt upphaf
Listahátíðar Reykjavíkur 2007. Fyrir
utan menningu, listir og vísindi, verða
ferðamál, tíska, hönnun og margt
fleira tekið fyrir. Dagskráin er unnin
í samvinnu við Útflutningsmiðstöð
menningarmála í Frakklandi ásamt
sendiráði Frakka á Íslandi en Mennta-
málaráðuneytið er í forsvari.“
Sigrún Lilja segir þau leggja kapp á
að vinna með þeim hátíðum sem fyr-
ir eru.
„Opnun vorsýningarinnar hófst
formlega með setningu Vetrarhátíð-
ar, síðan tekur við kvikmyndavika,
vika bókarinnar og hátíðin Aldrei fór
ég suður og að þessu öllu loknu tek-
ur önnur menningarveisla við, Lista-
hátíð 2007.“
Það er sem sagt margt í boði og
fólk er hvatt til þess að kynna sér dag-
skrá hátíðarinnar.
Börnin og
Meistarinn
Að morgni föstudags 23.
febrúar klukkan hálf tíu mun
frú Vigdís Finnbogadóttir leiða
söng 500 leikskólabarna við
Íþróttahúsið Austurbergi.
Börnin syngja Frére Jacques,
Meistara Jakob, á frönsku og
íslensku. Borgarstjórinn og
franski sendiherrann munu
ásamt eldri borgurum úr
Breiðholtinu taka undir.
Pourquoi Pas? - Franskt vor er frönsk menningarveisla sem stendur
fram á vor og Vetrarhátíð í Reykjavík er nú haldin í sjötta sinn. Þessum menningar-
hátíðum var ýtt úr vör við sameiginlega setningu á Austurvelli í gærkvöldi.
Bönd og diskó
Unglingamenning verður í
sviðsljósinu að Kistuhyl 4 föstu-
dagskvöldið 23. febrúar. Þar
verður boðið upp á leiðsögn á
klukkutíma fresti frá klukkan
20. Dagskráin er í boði Árbæj-
arsafns og verður fjallað um
menningu unglinga fyrr og nú.
Efnileg bílskúrsbönd munu
skemmta gestum og fólki býðst
að kynna sér undirstöðuatriði
í diskódansi. Dagskráin verður
opin milli klukkan 19 og 24 og
aðgangur er ókeypis.
Harðneskju-
legur vetur
Þegar bresku listamennirnir
Kathryn Thomas, Tamany Ba-
ker og Simon Whetham heim-
sóttu Ísland í desember fyrir
rúmu ári, heilluðust þau svo af
harðneskjulegum íslenskum
vetri og endalausu myrkrinu
að þau bjuggu til sýningu um
upplifun sína. Samsýningin A
Dark Light verður frumsýnd í
Ráðhúsi Reykjavíkur klukk-
an níu í kvöld, en hún sam-
anstendur af málverkum, ljós-
myndum og hljóðmyndum.
Sýningin stendur til 4. mars.
xxx
xxx
Vor fylgir Vetri
Eldorgel Michels Moglia
Við opnun Vetrarhátíðar og franska
vorsins leikur Michel Moglia á eldorgel.
vetrarhátíð
laddi 6-tugur
Tvær áhugaverðar sýningar í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur
Í kvöld klukkan sex verða tvær ljósmyndasýningar opnaðar hjá
Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Þar er um að ræða sýningu Jo Duchene,
Marglitt útlit, og sýningu Damiens Peyret, Sund og gufa.
Gnægtarborð fyrir skynfærin
Pourquoi Pas? - franskt vor á Íslandi
Dionysos
Vetrarhátíð lýkur með
tónleikum dionysos
Regard Fauve