Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2007, Blaðsíða 41
föstudagur 23. febrúar 2007 41DV Ferðalög
Áfangastaður okkar í síðustu viku var Botnssúlur, nánar tiltekið Syðstasúla. Núna verð-
ur lagt á Vífilsfell í fylgd Reynis Þórs Sigurðssonar húsasmíðameistara. Hann tók áskor-
un Þorvaldar Þórssonar sem var leiðsögumaður síðustu viku.
U m s j ó n : V a l g e i r Ö r n R a g n a r s s o n . N e t f a n g : v a l g e i r @ d v . i s
á ferðinni
„Vífilsfell þykir mér gaman að
ganga á,“ segir Reynir Þór Sigurðs-
son umbúðalaust. „Það er stutt frá
Reykjavík og hvorki þarf mikinn út-
búnað né undirbúning.“ Vífilsfell er
um hálftímaakstur frá höfuðborg-
inni á leið austur fyrir fjall. Rétt áður
en komið er að Litlu kaffistofunni er
beygt til hægri. „Gegnt afleggjaran-
um er skilti frá Kópavogsbæ og gott
að nota það sem kennileiti. Þaðan er
ekið upp að sandnámunum og við
endann á þeim er upplagt að leggja
bílnum. Hægt er að fara þetta á fólks-
bíl því vegurinn er góður. Stefnan er
síðan tekin á fjallshrygg sem liggur
norður af Vífilsfellinu og gengið eftir
þessum hrygg á fjallið.“
Leiðin upp á Vífilsfell, sem er 655
metra hátt, einkennist af melum og
móbergi og „melarnir eru mjög slétt-
ir og lítil hækkun sem gerir að verk-
um að leiðin á toppinn er þægileg til
göngu. Þegar komið er upp á aðal-
hrygginn er gengið í vestur og blasir
þá toppurinn við.“ Á toppi Vífilsfells
er hringsjá frá Ferðafélagi Íslands.
Hún var sett upp árið 1940.
„Það sem blasir við þegar upp er
komið er of langt mál að telja upp.
Þaðan sést hálft Reykjanesið og
Snæfellsjökull og í austri sést stór
hluti suðurstrandarinnar, Stokkseyri
og Eyrarbakki, Hekla, Tindfjöll og
Eyjafjallajökull. Skjaldbreiður og Ár-
mannsfell eru í norðri.“
Það er nánast útsýni til allra átta
af Vífilsfelli og hægt að ganga á það
allt árið um kring. „Þegar komið er
að heimferð er ekki úr vegi að leggja
lykkju á leið sína og koma við í Jós-
efsdal og ganga síðan norður undir
fjallinu og enda við námurnar.“ Reyn-
ir segir að svona hringur taki um fjór-
ar klukkustundir „á rólegu rölti, því
miður aka mjög margir framhjá Víf-
ilsfelli og gera sér enga grein fyrir því
hversu stutt þessi náttúruperla er frá
Reykjavík. Útsýnið er meiriháttar og
nánast á allra færi að ganga þarna
upp. Að sjálfsögðu ber að fara var-
lega því það er mikið móberg í fjall-
inu og getur myndast laus mylsna
sem hægt er að skrika fótur í.“ Svo
er gott í ferðalok að tylla sér niður á
Litlu kaffistofunni og fá sér hressingu
og njóta minninganna.
Ingibjörg Eiríksdóttir, nemi í
ferðamálafræði, hefur tekið áskorun
Reynis og fer með okkur í ferðalag í
næstu viku.
kolbeinn@dv.is
„Á góðu sumarkvöldi er ekki hægt að hugsa sér margt skemmti-
legra en göngu á Vífilsfell. Bara skella sér í gönguskóna, finna
sjónaukann og leggja í hann,“ segir Reynir Þór Sigurðsson. Hann
starfar mikið sem fararstjóri hjá Ferðafélaginu Útivist og segir að
megnið af sínum frítíma yfir sumartímann fari í göngur.
Reynir Þór
Vel búinn á vetrargöngu.
af Vífilsfelli
Víðsýni
Útsýnið
stórkostlegt.
Það er ekki amalegt
að ylja sér við svona minningu.
Jeppaferð á Langjökul
ferðafélag Íslands stendur fyrir jeppaferð á Langjökul um
helgina. Haldið verður af stað í fyrramálið klukkan átta og
snúið aftur seinnipartinn á sunnudaginn. gist verður á
Hveravöllum þar sem gistipláss er fyrir um það bil 40
manns. allar upplýsingar á vef ferðafélags Íslands.
Golf á St. Andrews
gb ferðir bjóða nú golfferðir til
skotlands frá 1. maí til 31. október, þar
sem gist verður á hóteli sem liggur í
næsta nágreni við 17. holuna á hinum
heimsfræga st. andrews golfvelli.
Hótelið heitir Old Course og hefur
verið mikið endurnýjað á síðustu
árum og þykir nú eitt glæsilegasta
golfhótel veraldar. Í boði eru þriggja
og fjögurra daga ferðir.
Frakkland vinsælast
frakkland er
langvinsælasti
áfangastaður
ferðamanna í
heiminum, líkt og
undanfarin ár. 75
milljónir ferða-
manna heimsækja
landið á hverju ári. Í
öðru sæti yfir
vinsælustu áfangastaði ferðamann er
spánn, en um það bil 50 milljónir
ferðamanna heimsækja landið á
hverju ári. bandaríkin koma svo í
þriðja sæti með 49 milljónir ferða-
manna. fjölgun ferðamanna hefur
verið mest í bandaríkjunum, því árið
2002 heimsóttu 40 milljónir ferða-
manna landið.
Til Köben um helgina
Þeir sem hafa í huga að taka skyndi-
ákvörðun í dag og skella sér út fyrir
landsteinana, geta meðal annars
skroppið til Kaupmannahafnar og
spókað sig á strikinu. Hjá Icelandair
kostar flugið til Kaupmannahafnar í
dag og heim aftur á sunnudaginn 65
þúsund krónur. að þessu sinni er
flugið öllu ódýrara hjá samkeppnisað-
ilanum Iceland express, en þar kostar
sama flug 43 þúsund krónur.