Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2007, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2007, Page 42
föstudagur 23. febrúar 200742 Helgarblað DV Á að leyfa klÁmrÁðstefnu Á Íslandi? Óvenjuhörð gagnrýni kom fram eftir að vitnaðist að hópur fólks hugðist leggja leið sína til Íslands á nokkurs konar kaupstefnu fólks í klámiðnaði. Almenningur og fé- lagasamtök lögðu hart að ráðamönnum að hefta för fólksins til landsins. Að lokum fór svo að ráðstefnuhaldarar hættu við Íslandsförina, fyrst og fremst vegna þess að stjórn Bændasamtakanna bannaði þeim að gista á hóteli sínu, Hótel Sögu. Egill Einarsson, gillzEnEggEr: „Já, það á tvímælalaust að leyfa klámráðstefnur á Íslandi. ef ég mætti ráða væri 20–30 klámráðstefnur haldnar á ári hverju. Þessir blessuðu feministar sem eru á móti þessu eru dömur sem hafa orðið undir í lífinu hjá karlpeningnum um ævina. Ég hef ekki séð eina huggulega dömu mótmæla þessari ráðstefnu. um leið og einhver þekkt fegurðardís mótmælir dæminu, þá skal ég láta sokk upp í skítugan kjaftinn á mér.“ Bryndís Ásmundsdóttir, lEikkona: „Ég veit ekki hvað „ráðstefna“ þýðir í þessu dæmi. af hverju erum við svona hrædd við þetta? af hverju erum við svona hrædd við að venjulegt fólk eins og þú og ég er að koma til Íslands? fólk keppist um að garga í beinni útsendingu á útvarpsstöðvunum. Það mætti halda að þetta fólk ætlaði að standa á götuhornum og taka nokkrar stellingar! Ég veit ekki hvað þau eru að fara gera, en held að okkur komi ekkert við hvað þeim fer á milli á Hótel sögu. Okkur finnst æðislegt þegar heimsfrægir leikarar mæta á svæðið. af hverju eigum við að hafa skoðun á því fólki sem starfar við þennan bransa frekar en annan?“ margrét PÁlmadóttir, kórstjóri: „Ég er svo mikil mamma og ég á svo fallegar dætur að ég vil þetta ekki. Ég er viss um að mig myndi dauðlanga þetta ef ég væri karlmaður, en mér finnst þetta er „lásí“ atvinnugrein.“ júlíus Valsson læknir: „ef slík starfsemi brýtur í bága við lög, á að banna hana. annars er varla grundvöllur fyrir því.“ arnþrúður karlsdóttir, útVarPsstjóri: „Mitt svar er: Vandinn við þetta mál er að við getum ekki hindrað för manna til landsins til þess að tala saman, nema að fyrir liggi að hér sé um dæmda glæpamenn að ræða. Lögreglan hefur bæði tæki og tól og önnur úrræði til þess að fylgjast með því sem þessir „klámhundar“ munu aðhafast hér á landi. en þetta er ekki beint það sem við Íslendingar þurfum á að halda í landkynningu okkar.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.