Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2007, Side 47
DV Helgarblað föstudagur 23. febrúar 2007 47
Sakamál
Stjórinn stakk af með viðhaldsfé
Lögreglan í San Bernardino leitar nú að Richard Paul Demel, flugvallarstjóra
í Kaliforníu. Fullvíst þykir að Demel hafi stungið af með opinbera styrki upp
á ríflega milljón Bandaríkjadali. Peningarnir voru afhentir
flugvallarstjóranum í byrjun árs 2004 og áttu að fara til viðhalds flugbrauta.
Demel lagði þá hins vegar inn á eigin reikning og allt viðhald sat á
hakanum. Það komst þó ekki upp fyrr en flugmálayfirvöld kölluðu eftir
skýrslu um framgang framkvæmdanna. Þá var flugvallarstjórinn á bak og burt og er nú eftirlýstur.
Dómur yfir síðasta sakborningn-
um í alvarlegasta máli sinnar
tegundar í Danmörku féll í
vikunni. En þá var faðir tveggja
stúlkna dæmdur í tíu ára fangelsi
fyrir að hafa beitt eldri dóttur sína
grófu og ítrekuðu kynferðisof-
beldi þegar hún var tíu og ellefu
ára gömul. Auk þess leyfði
faðirinn öðrum mönnum að gera
slíkt hið sama gegn greiðslu. Hann
var einnig dæmdur fyrir að hafa
beitt yngri dóttur sína sams konar
ofbeldi. Áður höfðu fjórtán menn
á aldrinum 18 til 74 ára verið
ákærðir fyrir brot sín gegn
stúlkunum. Þrettán þeirra voru
dæmdir til fangelsisvistar í eitt til
þrjú ár en sá fjórtándi var
sýknaður. Móðir stúlknanna, sem
þjáist af geðsýki, var dæmd til
ótímabundinnar vistunar á
geðsjúkrahúsi fyrir aðild sína.
Upp komst um málið fyrir einu og
hálfu ári, eftir að maður, sem var
boðin stúlkan, leitaði til lögreglu
þegar hann komst að því hversu
ung hún var. Faðirinn var handtek-
inn í kjölfarið en hann neitaði
lengi vel allri sök og vildi ekki bera
vitni gegn hinum sakborningun-
um. Hann breytti loks framburði
sínum stuttu fyrir áramót og hefur
réttarhald gengið hratt eftir það
samkvæmt frétt Politiken. Málið
hefur vakið mikla athygli og reiði í
Tønder á Suður-Jótlandi þar sem
fjölskyldan bjó og eru tvær bækur
væntanlegar um þetta mál.
Faðir dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir hrottalegt ofbeldi gegn tveimur ungum dætrum sínum:
Nauðgaði þeim ítrekað og seldi öðrum aðgang
Hann var ýmist kallaður hrott-
inn eða herforinginn af nágrönn-
um sínum. Enda hafði Helmut
Mayer, sextíu og fimm ára ellilíf-
eyrisþegi, það fyrir sið að sitja úti í
glugga og kalla ókvæðisorð að ná-
grönnum sínum og hverjum þeim
sem átti leið hjá. Hann hótaði fólki
öllu illu og hikaði ekki við að segja
börnum til syndanna. Til dæmis
sagðist hann helst vilja eitra fyrir
öllum fjórfætlingum og þegar iðn-
aðarmaður með dökkan húðlit var
að vinna í húsinu sagðist Helmut
ætla að kaupa sér gasofn til að geta
troðið manninum inn í og drepið.
Helmut hafði vopnaleyfi og sást af
og til pússa byssur sínar í glugga-
kistunni.
Eins og gefur að skilja voru ná-
grannarnir ekki sáttir við þenn-
an mann og sendu þeir fjölmargar
kvartanir til lögreglu og félagsmála-
yfirvalda í þeirri von að hann yrði
sendur burt. Það gekk ekki eftir því
kona hans var skráð fyrir íbúðinni
og allir vissu að hún væri ekki líkleg
til að standa uppi í hárinu á manni
sínum. Eina sem fékkst út úr þessu
var að Helmut var sektaður.
Hegðun hans versnaði í kjölfarið
og íbúarnir litu á hann sem tifandi
tímasprengju sem kynni að valda
óbætanlegu tjóni. Því miður kom
það á daginn og í dag er Michaela,
nágrannakona Helmuts, ung ekkja
með tvær litlar stúlkur eftir að
maður hennar og faðir stúlknanna
féll fyrir byssuskoti hans fyrir einu
og hálfu ári síðan.
Michaela og maður hennar
Demir Lippl höfðu í þrjú og hálft ár
búið á sömu hæð og Helmut. Þau
höfðu látið hótanir og athugasemd-
ir hans sem vind um eyru þjóta fyrir
utan eitt skipti þegar Demir reiddist
honum fyrir að hafa hrætt stúlkurn-
ar. Demir var serbneskur flóttamað-
ur sem vildi lifa rólegu lífi með fjöl-
skyldu sinni.
Svo gerðist það eitt föstudags-
kvöld að Demir kom seint heim
eftir að hafa hjálpað til við að mála
heimili tengdaforeldra sinna.
Hann var kominn heim rétt fyr-
ir miðnætti og kona hans og börn
farin að sofa. Í útidyrunum mætti
hann einum nágranna sínum sem
var á leið út að viðra hund sinn fyr-
ir háttinn og þeir tóku tal saman.
En Helmut truflaði þá eftir stutta
stund og kallaði út um gluggann
að hundurinn skyldi vera farinn frá
blokkinni eftir tvær sekúndur ann-
ars myndi hann skjóta hann. Demir
tók þessari hótun með fyrirvara og
benti Helmut á að fólk væri í full-
um rétti til að halda hunda í húsinu
og þar af leiðandi að viðra þá. Eftir
það hélt hundeigandinn áfram för
sinni. Þegar Demir kom inn á stiga-
ganginn mætti hann hins vegar
Helmut með byssu í hendi. „Svona
talar enginn við mig. Hér ræð ég,“
öskraði hann og lyfti upp byssunni.
Demir tók til fótanna en komst
ekki langt enda alvarlega særður
eftir skot úr byssu nágranna síns.
Michaela vaknaði við skothvellinn
og leit út um gluggann. Þar sá hún
hvar maður hennar lá í blóði sínu.
Lögregla og sjúkrabíll komu þar að
stuttu síðar og var Demir úrskurð-
aður látinn.
Helmut Mayer var handtekinn
án mótspyrnu. Hann játaði á sig
glæpinn og sagði ástæðuna fyr-
ir því að hann skaut Demir þá að
hann hafi viljað gera honum það
fullljóst að það væri hann sem
stjórnaði blokkinni en ekki Demir.
Helmut Mayer var dæmdur í lífs-
tíðarfangelsi.
Helmut Mayer, þýskur ellilífeyrisþegi, var sem tifandi tíma-
sprengja. Hann hafði allt á hornum sér og vildi stjórna sínu
næsta nágrenni, bæði fólki og ferfætlingum, og gerði það með
því að öskra að nágrönnum sínum og hóta þeim. Þegar serb-
neskur nágranni hans stóð uppi í hárinu á honum, greip Mayer
til byssunnar og skaut hann til bana. Mayer sagði við yfirheyrslur
að hann hefði viljað gera öllum ljóst að hann stjórnaði blokkinni
og enginn annar.
Nunna dó á
krossi
Rúmenskur
prestur hefur
verið dæmd-
ur í fjórtán ára
fangelsi fyrir
að láta unga
nunnu deyja á
krossi. Nunnan
sem þjáðist af
geðklofa hafði
leitað til prestsins þar sem hún
taldi sig andsetna. Presturinn
sannfærði stúlkuna og fjórar
aðrar nunnur um að eina leið-
in væri að krossfesta stúlkuna
og láta hana hanga án matar
og drykkjar. Hún lést nokkrum
dögum síðar vegna vannær-
ingar og kvala. Nunnurnar sem
aðstoðuðu prestinn hlutu líka
fangelsisdóma.
Vettvangur voðaverkanna faðirinn
viðurkenndi við yfirheyrslur að hafa beitt
dætur sínar barnungar ofbeldi að
meðaltali 14. hvern dag í hátt á annað ár.
Undirréttur í Tønder dómurinn yfir
föðurnum er sagður ótvíræð skilaboð til
dansks samfélags um að hart verði tekið
á barnaníðingum.
Hundarnir
átu lík
húsbóndans
Tuttugu og níu ára sænskur
maður fannst látinn á heimili
sínu í Malmö á dögunum. Lík-
ið bar þess merki að heimil-
ishundarnir hefðu étið hluta
af því en maðurinn lést af
náttúrulegum sökum. Haft er
eftir sérfræðingi í frétt sænska
blaðsins Expressen að þetta
sé mjög óvanaleg hegðun hjá
hundum og greinilegt að þeir
hafi verið orðnir mjög örvænt-
ingarfullir í leit að fæðu inni
á heimilinu eftir að eigandi
þeirra lést.
Murkuðu
lífið úr leigu-
bílstjóra
Fjórir breskir unglingspiltar
voru sakfelldir fyrir hrotta-
legt morð á leigubílstjóra og
dæmdir til langrar fangelsis-
vistar í vikunni. Piltarnir börðu
og spörkuðu í leigubílstjór-
ann sem lést skömmu síðar af
áverkum sínum. Piltarnir fjórir
viðurkenndu að hafa setið fyr-
ir bílstjóranum Mohammad
Parvaiz, 41 árs, þriggja barna
föður frá Pakistan. Hann hafði
nokkrum vikum áður ekið
asískum ungmennum sem
tóku þátt í slagsmálum við
breska unglingspilta. Paravaiz
tók engan þátt í slagsmálun-
um en morðingjarnir sögðust
hafa viljað hefna fyrir akstur-
inn.Dómarinn sagði engin orð
geta lýst verknaði piltanna,
svo hrottafengin hefði atlagan
verið. Sá sem þyngstan dóm
hlaut þarf að sitja inni í 25 ár
hið minnsta, annar í 21 ár að
lágmarki og tveir piltanna geta
ekki sótt um reynslulausn fyrr
en að 17 árum liðnum.
Hegðun hans versnaði
í kjölfarið og íbúarnir
litu á hann sem tifandi
tímasprengju sem
kynni að valda óbæt-
anlegu tjóni.
Herskái nágranninn
myrti fjölskylduföður
„Hér ræð ég“ Helmut Mayer hagaði
sér líkt og herforingi í íbúðablokk sinni
og vildi stjórna öllu með harðri hendi.
Þegar einn nágranna hans andmælti
honum galt sá fyrir með lífinu.