Læknablaðið - 15.04.1987, Blaðsíða 5
LÆKNABLAÐIÐ 1987;73:113-20
113
Kristinn GuOmundsson
ALVARLEGIR HÖFUÐÁVERKAR
Sjúklingar vistaðir á gjörgæsludeild Borgarspítalans 1973-1980
INNGANGUR
Hér verður sagt frá 425 sjúklingum, sem lágu á
gjörgæsludeild Borgarspítalans árin 1973 til 1980
vegna alvarlegra höfuðáverka. Þeir eru hluti af
stærri hópi sjúklinga, alls 1435 manns, sem lágu á
skurðlækningadeild spítalans á þessum árum,
vegna höfuðáverka og áður hefur verið greint frá
í Læknablaðinu 1983 (1). Eru það heldur færri
sjúklingar en fram kom þar.
Þess ber einnig að geta, að af öðrum einstökum
hópum úr þeirri könnun hefur áður verið fjallað
sérstaklega um 414 einstaklinga, sem urðu fyrir
umferðarslysum (Læknablaðið 1985) (2) og
höfuðáverka hjá börnum (Heilbrigðisskýrslur
1986) (3).
Skilgreining: Með alvarlegum höfuðáverka er átt
við slæman heilahristing, meiri háttar
höfuðkúpubrot og þaðan af meiri áverka. Allir
voru þessir áverkar þess eðlis, að talið var að
viðkomandi sjúklingar þyrftu meira eftirlit en
svo, að framkvæmanlegt væri á almennri
legudeild.
Þrír af hverjum tíu sjúklingum úr upphaflega
hópnum voru lagðir á gjörgæsludeild og af 421
sjúklingi með höfuðkúpubrot voru 257 lagðir á þá
deild. Gefur það nokkra hugmynd um hlutfall
alvarlegra áverka og hvernig innlögnum var
háttað.
NIÐURSTÖÐUR
Tíðni. Nokkur aukning varð á heildarfjölda
innlagna á þessu tímabili, sérstaklega árið 1975 og
svo frá og með árinu 1978 og náði hámarki árið
1980 (tafla I). Lauslega talið /irðist þeim hafa
fækkað síðan og urðu t.d. 140 árið 1985, sem er
það minnsta síðan 1973, er könnunin hófst.
Þarna virðist hafa verið um aukningu á vægari
áverkum að ræða, því innlagnir á gjörgæsludeild
stóðu þvi sem næst algjörlega í stað, en voru þó
flestar árið 1975. Meðalfjöldi sjúklinga á
gjörgæsludeild var 53 á ári.
Frá heila- og taugaskurðdeild Borgarspítalans. Barst 08/12/86.
Samþykkt 03/02/1987.
Af 425 sjúklingum á gjörgæsludeild með
alvarlega höfuðáverka voru karlar 321 og konur
104 (3:1). Börn 14 ára og yngri voru 134, þ.e. 95
drengir og 39 stúlkur. Á aldrinum 0-4 ára voru 36
börn (23/13), 5-9 ára voru 57 (40/17) og 10-14 ára
var 41 barn (32/9). Fimmtán til nítján ára voru 43
(36/7) og 20-24 ára voru 34 (30/4). í þessum yngri
aldurshópum 0-24 ára var helmingur sjúklinga,
samtals 211. Síðan fækkar í hverjum aldurshópi
um helming og eru milli 10 og 26 sjúklingar í
hverjum þeirra fram yfir áttræðisaldur, sjá
myndina. Þótt yngstu aldurshóparnir séu
fjölmennir á gjörgæsludeild, eins og sjá má af
myndinni, eru þeir samt hlutfallslega fámennari,
en þeir voru í heildarkönnuninni. Verður að telja,
að það sé vegna þess, að fall og hras veldur miklu
um innlagnir hjá börnum almennt, en oftast
frekar vægum áverkum, eins og vægum
heilahristingi, sem yfirleitt krefst ekki innlagnar á
þessa deild. Þar eru það umferðarslysin sem gilda
hjá börnum og ungu fólki.
Konur eru alltaf færri en karlar. Munur er
minnstur á fyrstu tíu árunum (2:1), en eykst
síðan, oft þre- eða fjórfaldur og allt upp í sjö- og
nífaldur munur. Einu gildir hver orsökin er.
No.
Total admissions for head injuries and andmissions for
serious head injuries to the ICU, City Hospital,
Reykjavík, Iceland, 1973-1980. By age.