Læknablaðið - 15.04.1987, Qupperneq 24
128
LÆKNABLAÐIÐ
Áður var talið að sjúkdómurinn væri af
veiruvöldum, en Staphylococcus aureus, A hópur
streptókokka og Haemophilus influenzae hafa
ræktast úr barkaslími slíkra sjúklinga (11, 19).
Verulegur þroti góm- og kokeitla er oft samfara
einkirningasótt og getur valdið
öndunarerfiðleikum. Kverkamein sem og ígerð
aftan koks geta sömuleiðis valdið börnum
öndunarerfiðleikum, en hér er sjúkrasagan
önnur.
Öndunarerfiðleikar án sýkingar: Mikilvægt er að
hafa í huga aðskotahluti í vélinda eða loftvegum,
einkum ef barnið er þroskaheft eða of ungt til að
geta gefið fullnægjandi sögu. Aðskotahlutur í efri
hluta vélinda getur valdið utanvélindisþrota og
barkafargi. Skorðist aðskotahlutur í raddglufu er
raddmyndun varnað. Er og einkennandi fyrir
aðskotahlut í loftvegum að á undan sogum getur
barnið skyndilega staðið á öndinni eða fengið
hóstakast. Ef grunur er um aðskotahlut i
loftvegum er sjaldan of varlega farið þegar börn
eiga í hlut.
Bjúgur ofan raddfæra af ofnæmisvöldum getur
myndast skyndilega. Við barkakýlisspeglun sést
þá vel fölleit lopafyllt slímhimnan á speldi og
speldis- og könnufellingum. Önnur
ofnæmiseinkenni, svo sem ofsakláði auk þrota á
vörum, augnlokum og kinnum auðvelda
sjúkdómsgreiningu.
Inntaka sem veldur verulegum brunasárum í koki
auk þrota á speldi og speldis- og könnufellingum
getur valdið einkennum áþekkum speldisbólgu,
en sjúkrasagan er hér að sjálfsögðu afgerandi.
Miklu skiptir að greina hvort um er að ræða
bráða eða langvinna öndunarörðugleika, hvað
varðar sjúkdómsgreiningu og meðferð.
NIÐURSTÖÐUR
Lýðfræði: Svo sem áður er getið telur
upptökusvæði CLV um 170 þúsund íbúa og mun
nálægt lagi að svo hafi verið þau fimmtán ár sem
könnun þessi nær til, þar sem íbúafjöldi í
Kronobergsléni hefir verið stöðugur síðustu árin.
Tilfellafjöldi á ári hefir samt sem áður verið
nokkuð breytilegur (mynd 1). Sker 1969 sig
nokkuð úr með 9 tilfelli, en meðalfjöldi á ári er
um 4 tilfelli og reiknast því algengi sjúkdómsins
2,5 tilfelli á hverja 100 þúsund íbúa á ári.
Mikilvægt er að hafa í huga að hér er aðeins litið
til tíðni speldisbólgu meðal barna yngri en 13 ára.
Árstíðadreifing tilfella sést á mynd 2. Svo gæti
virst sem tíðni sjúkdómsins væri mest snemm- og
síðsumars, en samkvæmt kíkvaðrat-prófi er
árstíðadreifingin jöfn. Drengir eru í meirihluta
eða 56,9 af hundraði. Sést dreifing barnanna eftir
aldri og kyni á mynd 3. Er samkvæmt t-prófi ekki
marktækur mismunur á aldursdreifingu
kynjanna, en 81,5 af hundraði barnanna eru á
aldrinum 2-6 ára. Þá er athyglisvert að einungis
Number of cases
Mynd 1. Yearly distribution.
Number of cases
10
9-
8- /
7-
6- m
5- 4 3- 2 1 0- / / | / jfí
Jan Feb Mar Apr May Jun Jul Aug Sep Oct Nov Dec
Mynd 2. Seasonal distribution.
Number of cases
Mynd 3. Age - sex distribution.
Age in years