Læknablaðið - 15.04.1987, Qupperneq 36
136
LÆKNABLAÐIÐ
Nú eru 58 sjúklingar á Kristnesspítala og koma
þeir bæði frá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
og beint að Kristnesi án þess að hafa viðkomu á
annarri stofnun fyrst.
Kristnesspítali er ríkisspítali og ætti því að þjóna
öllum landsmönnum. Halldór sagðist þó vera
tregur til að taka við sjúklingum úr öðrum
landshlutum vegna þess hve þörfin er mikil í
nágrannabyggðum og miklu meiri en hægt er að
fullnægja núna. Þó eru hér sjúklingar frá
strjálbýlum svæðum utan nágrannabyggða, svo
sem frá Vopnafirði og Bakkafirði, en auk þess
fimm sjúklingar sem eiga lögheimili í Reykjavík.
Kristnesspítali er á tveimur hæðum og fólkslyfta á
milli hæða. Á neðri hæðinni eru blandaðir
sjúklingar, erfiðir hjúkrunarsjúklingar,
geðsjúklingar og gamalmenni.
Stofur eru stórar á neðri hæð, allt að fimm
manna og er fyrirhugað að breyta þeim, þannig
að engin verði nema fjögurra manna.
Trausti
Valdimarsson
gegndi
störfum Halldórs
Halldórssonar
í afleysingum er
Lœknabiaðið bar að
garði.
Á efri hæðinni er 31 mjög erfiður
hjúkrunarsjúklingur. Þar eru sumar stofur það
litlar að sjúkrarúm á hjólum komast ekki inn,
þess vegna er enn notast við gömlu sjúkrarúmin
sem keypt voru til Kristneshælis í upphafi.
Heilsufar viðkomandi sjúklings ræður síðan
hvort hlaðið er undir rúmin að framan- eða
aftanverðu. Við svona kringumstæður verður öll
umönnun sjúklinga erfið, ekki síst þegar um er að
ræða gamalmenni og hjúkrunarsjúklinga sem eru
meira og minna ósjálfbjarga. Á efri hæð eru
einnig mjög stórar stofur, fyrir sex og sjö
sjúklinga hver.
STARFSFÓLK ER ALLT OF FÁTT
Á Kristnesspítala er heimild fyrir tveimur
læknisstöðum, stöðum níu hjúkrunarfræðinga,
tólf sjúkraliða og 4.5 stöðugildum ófaglærðra er
vinna við hjúkrun. í heild eru um 52 stöðugildi á
spítalanum og er vinnuálag mikið. Flest starfsfólk
kemur frá Akureyri og er talsvert af fólkinu í
hlutastörfum.
Að undanförnu hefur gengið mun verr en áður að
manna þær stöður sem leyfi er fyrir. Þar veldur
allt í senn, léleg vinnuaðstaða á neðra gangi,
erfiðir sjúklingar og betri laun á FSA og öðrum
sjúkrahúsum á Norðurlandi. Þegar Læknablaðið
var á ferðinni var einn sænskur
hjúkrunarfræðingur á Kristnesspítala og tveir
læknanemar í afleysingum fyrir
hjúkrunarfræðinga. Ef vel ætti að vera þyrftu að
vera 12 hjúkrunarfræðingar og um 30 sjúkraliðar
í fastri vinnu.
Það er lýsandi fyrir mannekluna, að á morgnana
sjá tvær manneskjur um 24 sjúklinga á neðra
gangi, þrífa þá og annast á allan hátt. Á nóttunni
er aðeins einn ófaglærður starfsmaður á vakt á
þessum gangi.
REKSTRARFYRIRKOMULAG
KRISTNESSPÍTALA ER ÓLÁN
Kristnesspítali er ríkisspítali eins og áður sagði og
heyrir undir stjórnarnefnd ríkisspítalanna.
Halldór sagði að læknum norðan fjalla þætti
umhendis að þurfa að leita með allt er varðar
Kristnesspítala suður til Reykjavíkur. Eðlilegast
væri að Kristnesspítali heyrði undir sömu stjórn
og Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og þannig
yrði auðveldara að samnýta sjúkrahúsin.
Hulda Gunnlaugsdóttir hjúkrunarforstjóri tók í
sama streng. Hulda sagði best ef Kristnesspítali
væri tengdur einhverri annarri sjúkrastofnun á
Norðurlandi, en stæði ekki einn eins og nú er.
Einhvers konar heimastjórn þyrfti að koma til
hvort sem það væri innan vébanda FSA eða ekki.