Læknablaðið - 15.04.1987, Side 37
LÆKNABLAÐIÐ
137
Á ýmsu hefur gengið í tilraunum til þess að koma
á sambandi og samvinnu á milli Kristnesspítala og
FSA. Fyrir liggja ráðherrabréf, samþykktir
stjórnar FSA, ályktun læknaráðs FSA og síðast
en ekki síst viljayfirlýsing, undirrituð af Davíð Á.
Gunnarssyni forstjóra ríkisspítalanna og Gunnari
Ragnars stjórnarformanni FSA, um samstarf
Kristnesspítala og FSA.
Halldór Halldórsson gegnir hlutastarfi á FSA, við
lyfjameðferð krabbameinssjúklinga og þjónustu
við hjúkrunarsjúklinga, en tekur aðeins laun fyrir
yfirlæknisstarfið í Kristnesi. Á móti kemur að
Brynjólfur Ingvarsson veitir geðlæknisþjónustu á
Kristnesspítala, en tekur aðeins laun fyrir fullt
starf sem sérfræðingur á geðdeild FSA.
Jónas Rafnar
var fyrsti yfirlæknir
Kristneshœlis.
HEILDARSTEFNU HEFUR VANTAÐ
Vandi Kristnesspítala liggur ekki síst í því að ekki
hefur verið neitt heildarskipulag fyrir spítalann,
enda virðist mörgum hafa verið óljóst hvernig
ætti að nýta hann, hvaða sjúklingar ættu að
dvelja þar og hvers konar meðferð ætti að veita.
Kristnesspítali er dæmigert vandræðamál sem
ekki hefur verið tekið á af neinni festu, heldur
fálmað í eina áttina einn daginn og aðra þann
næsta. Niðurstaðan er sú að nú eru á spítalanum
mjög ólíkir sjúklingar sem þarfnast mismunandi
aðhlynningar.
Á spítalanum eru gamalmenni sem ættu að vera á
elliheimili, sjúklingar í skammtímavistun sem fá
inni til að létta á heimilunum, geðsjúklingar sem
ekki fá vistun annars staðar og líkamlega fatlaðir
sjúklingar sem þarfnast fyrst og fremst
endurhæfingar sem ekki er að fá í Kristnesi.
ÖLDRUNARÞJÓNUSTA í
AKUREYRARLÆKNISHÉRAÐI
Á Akureyri hefur verið starfandi hópur um
málefni aldraðra um eins árs skeið, formlega
Hulda
Gunnlaugsdóttir
hjúkrunarforstjóri
heitir hann Þjónustuhópur aldraðra í
Akureyrarlæknishéraði. Verkefni hópsins á
meðal annars að vera að samræma alla meðferð
og vistun aldraðra á þjónustusvæðinu.
í þessum hópi eiga sæti Halldór Halldórsson,
Hjálmar Freysteinsson yfirlæknir á
Heilsugæslustöð Akureyrarlæknishéraðs,
Valgerður Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur
Heilsugæslustöðvarinnar sem hefur umsjón með
heimahjúkrun, Anna Guðrún Jónsdóttir
hjúkrunarforstjóri á dvalarheimilum Akureyrar
og Jón Björnsson félagsmálastjóri Akureyrar.
Hópurinn ræður ekki innlögnum á stofnanir en er
umsagnaraðili um vistun þeirra er þurfa. Vegna
þessa starfs er nú kominn sameiginlegur biðlisti
fyrir Kristnesspítala og hjúkrunardeildir FSA,
annar biðlisti er fyrir elliheimilin. Gamalmenni
hafa fengið inni í Kristnesi vegna þess að ekki
hefur verið í önnur hús að venda, en það er afar
brýnt að bæta öldrunarþjónustu á Akureyri og i
nágrannasveitunum. Nú er verið að byggja við
dvalarheimilið á Akureyri og er fyrirhugað að þar
verði dagvistun aldraðra. Einnig skortir mjög
þjónustuíbúðir fyrir aldraða auk þess sem
stórbæta þarf heimahjúkrun.
HVERNIG SINNIR KRISTNESSPÍTALI
ENDURHÆFINGU?
Stjórnarnefnd ríkisspítalanna ákvað í mars 1985
að á Kristnesspítala skyldu annars vegar vistast
langlegusjúklingar og hins vegar
endurhæfingarsjúklingar, en miðað við
núverandi ástand eru það aðeins orðin tóm.
Litla sem enga þjálfun er að fá í Kristnesi, hvað
þá endurhæfingu. Við spítalann vantar
endurhæfingarlækni, þar er hvorki sjúkraþjálfari