Læknablaðið - 15.04.1987, Blaðsíða 38
138
LÆKNABLAÐIÐ
René Notelid sœnskur hjúkrunarfrœðingur og Þorbjörg
Jóhannesdóttir starfsmaður.
né iðjuþjálfi. Að mati Halldórs er engin von til að
þeir fáist til starfa nema heimild verði til að ráða
tvo. Þó er það hugsanlegt ef leyft verður að ráða
sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa með
aðstoðarmönnum. Enginn talkennari er heldur á
staðnum. í raun er föndur eina þjálfunin sem
mögulegt er að veita eins og sakir standa og er
Kristín Halldórsdóttir föndurstjóri.
Það er sjálfgefið að á meðan ástandið er sem að
ofan greinir getur Kristnesspítali alls ekki sinnt
því hlutverki sem honum er ætlað.
Fyrirhugaðar eru framkvæmdir við spítalann og
liggja teikningar fyrir. Framkvæmdum hefur
verið áfangaskipt í sex hluta og er það von
forráðamanna spítalans að auðveldar muni
reynast að afla fjár til framkvæmda sé ekki allt
lagt undir í einu. Kristnesspítali er á föstum
fjárlögum og er stjórnarnefnd ríkisspítalanna
búin að samþykkja fyrsta áfanga fyrirhugaðrar
nýbyggingar.
Þar verður komið upp aðstöðu fyrir iðjuþjálfun
og sjúkraþjálfun. Vonandi skapast þá einnig
möguleikar á að hafa fleiri hvíldarpláss fyrir
sjúklinga í skammtímavistun.
Halldór kvaðst ekki búast við að heimild fengist
fyrir fleiri læknisstöðum fyrr en lokið væri
einhverjum áfanga nýbyggingar. Eigi að vera
hægt að hefja endurhæfingarstarf í Kristnesi
verður strax að veita fjármagni til framkvæmda.
Vonandi verður ekki allt of langt að bíða þess að
ráðamenn fjármagns taki á þeim vanda sem
Kristnesspítali á við að glíma í dag, vanda sem
einkum bitnar á langlegu- og
endurhæfingarsj úklingum.
EFTIRSKRIFT
I lok októbermánaðar 1986 var sjúkraþjálfari
lausráðinn í óreglulega tímavinnu að
Kristnesspítala - mjór er mikils vísir.
BÓKARFRÉTT
Nýlega kom út bókin Lyfjafræði innkirtla.
Vítamín og járn, eftir Þorkel Jóhannesson,
prófessor. Bóksala stúdenta gefur út. Bókin er
kennslubók, einkum ætluð læknanemum og
tannlæknanemum, en hentar einnig vel sem
uppsláttarrit fyrir nemendur í öðrum greinum,
sem fást við lyfjafræði, lifeðlisfræði og skyld
efni. Hún er 217 síður og skiptist í eftirtalda
kafla: I. Vítamín: Yfirlitsatriði. II. Vatnsleysin
vítamín. III. Fituleysin vítamín. IV. Yfirlit yfir
hormóna. V. Heiladingulshormónar. VI.
Sterahormónar ásamt heiladingulshormónum og
stýrihormónum (undirstúkujiormónum) þeim
tengdum og skyld lyf. VII. Skjaldkirtilslyf. VIII.
Sykursýkislyf. IX. Járn. Kaflarnir eru nokkuð
misjafnlega mikið unnir, bæði hvað efni snertir
og framsetningu, en eiga það allir sammerkt að
gefa ítarlegasta yfirlit sem fáanlegt er á íslensku
um viðkomandi efni. Hér eru því verulegir
landvinningar fyrir íslenska menningu og höfundi
til mikils sóma.
G. Þ.