Læknablaðið - 15.04.1987, Page 42
140
LÆKNABLAÐIÐ
Konny K. Kristjánsdóttir hjúkrunarforstjóri.
Rósa Jóhannsdóttir vinnur í sumarafleysingum sem
aðstoðarmaður á rannsóknastofu.
ÞJÓNUSTA
HEILSUGÆSLUSTÖÐVARINNAR
Auk almennrar læknisþjónustu er skipulögð
vaktþjónusta fyrir heilsugæsluumdæmið frá
klukkan 5 síðdegis er stöðin lokar. Lögreglan á
Akureyri hefur tekið að sér að vísa á vakthafandi
lækna og hefur vaktlista undir höndum.
Slökkviliðið sér um sjúkraflutninga en
heilsugæslulækna dreymir um sérstakan vaktbíl
með síma. Áður var vaktin tvískipt, annars vegar
fyrir sveitina, hins vegar fyrir bæinn, en nú er
sameiginleg vakt og annar læknir á bakvakt.
Hjálmar sagði áhuga fyrir að lengja opnunartíma
Heilsugæslustöðvarinnar, þannig að vaktin yrði
staðsett á stöðinni fram til klukkan 9 eða 10 á
kvöldin.
Nýlega var tekin í notkun aðgerða- og skiptistofa
og er hægt að framkvæma þar smáaðgerðir,
skipta á sárum og gera að minniháttar meiðslum.
Öll meiriháttar slys fara áfram á slysamóttöku
sjúkrahússins. Á rannsóknastofu
Heilsugæslustöðvarinnar eru framkvæmdar
almennar blóð- og þvagrannsóknir og ennfremur
tekin sýni sem síðan eru send til rannsóknar á
Fjórðungssjúkrahúsið eða til Reykjavíkur.
Hjartalínurit eru tekin á stöðinni.
Ungbarnaeftirlit og mæðravernd eru á vegum
stöðvarinnar. Tveir barnalæknar eru á
eyktasamningi hjá Heilsugæslustöðinni og annast
þeir ungbarnaeftirlitið ásamt
heilsugæslulæknum. Svipað fyrirkomulag mun
verða á mæðravernd. Ungbarnaeftirlit og
mæðravernd eru til húsa í leiguhúsnæði yfir
Akureyrar Apóteki og tilfinnanlega skortir
fjármagn til að innrétta húsnæðið sem ætlað er til
þessarar starfsemi.
Heilsuvernd í skólum er á vegum stöðvarinnar og
hefur verið lögð áhersla á að hjúkrunarfræðingar
séu staðsettir í viðkomandi skólum.
Heimahjúkrun er viðamikið starf sem sinnt er frá
stöðinni. Árið 1985 voru vitjanir alls um átta
þúsund. Heilsugæslustöðin annast
læknisþjónustu á Dvalarheimilinu Hlíð og í
Skjaldarvík, að öðru leyti en því að sjúklingum á
hjúkrunardeild í Hlíð er sinnt af læknum
lyfj adeildar Fjórðungssj úkrahússins.
Krabbameinsleit er á vegum stöðvarinnar, en
vegna þrengsla fer hún fram annars staðar í
bænum. Ónæmisaðgerðir eru framkvæmdar og
einnig er berklaeftirliti sinnt frá stöðinni, að öðru
leyti hefur skipulögðu vinnustaðaeftirliti ekki
verið komið á fót enn sem komið er.
Að auki hefur Heilsugæslustöðin samstarf við
Heyrnar- og talmeinastöð íslands og tekur niður
tímapantanir fyrir þá sem þurfa á slikri þjónustu