Læknablaðið - 15.04.1987, Qupperneq 46
144
LÆKNABLAÐIÐ
í ársskýrslu Heilsugæslustöðvarinnar fyrir árið
1985 kemur fram að árið hafi verið erfitt fyrir
heimahjúkrun, og á það bæði við um sjúklinga og
aðstandendur. í skýrslunni segir orðrétt: »Litla
sem enga skammtímavist var hægt að veita, vegna
þess hve stofnanir drógu saman starfsemi sína á
sumarleyfistímabilinu.Mörg heimili voru að
sligast undan erfiðleikum og engin lausn var fyrr
en fyrst í nóvember að nokkrir sjúklingar fengu
7-10 daga hvíld á F.S.A.«
Heimilishjálpin er á vegum Félagsmálastofnunar
Akureyrarbæjar, en eðlilegt væri að
hjúkrunarfræðingur hefði umsjón með
heimilishjálp og heimahjúkrun sameiginlega,
þannig að einn og sami aðili hefði yfirlit yfir
hvoru tveggja.
Einnig væri eðlilegt að samræma vaktþjónustu
lækna og heimahjúkrun, þannig að læknir og
hjúkrunarfræðingur væru á sólarhringsvakt.
SMÁBARNASKOÐUN f SAMVINNU VIÐ
SJÚKRAHÚSLÆKNA
Samstarf við sérfræðinga í barnalækningum
hefur gengið með miklum ágætum að mati
Konnyar. Það reynir ekki sist á það í ungbarna-
og smábarnaeftirlitinu en það var sameiginleg
ákvörðun heilsugæslulækna og barnalækna að
koma slíku samstarfi á.
Barnalæknir skoðar hvert barn þrisvar sinnum,
sex vikna, fjórtán mánaða og fjögurra ára. í
síðustu skoðun er reynt að kanna almennan
þroska barnsins og vísa því til sérfræðings ef
þurfa þykir. Heimilislæknir viðkomandi barns
skoðar barnið hin skiptin.
Einnig er um samstarf að ræða varðandi
mæðravernd og er henni sinnt í samvinnu við
kvensjúkdómalækna.
FRAMTÍÐ
HEILSUGÆSLUSTÖÐVARINNAR
Varðandi framtíðarskipulag heilsugæslu á
Akureyri telur Konny best að hafa eina
móðurstöð þar sem öll þjónusta er fyrir hendi,
eins og nú er í raun á Heilsugæslustöðinni. Þar
væri til dæmis hægt að hafa krabbameinsleit og
heyrnar- og talmeinastöð. Önnur þjónusta ætti að
koma út í hverfin til íbúanna. Það væri til dæmis
eðlilegt að reisa heilsugæslustöð úti í Glerárhverfi
þar sem búa um 4000 manns og aðra uppi á
Brekku.
Konny sagðist telja heillavænlegt að þess yrði
gætt, að Heilsugæslustöðin yxi ekki um of.
Smærri einingar gæfu betri raun og nýttust
íbúunum betur til þjónustu og það væri verkefni
Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri að þjónusta
íbúana sem allra best.