Læknablaðið - 15.08.1987, Side 14
198
LÆKNABLAÐIÐ
SJÚKLINGAR OG AÐFERÐIR
Stuðst var við sjúkraskýrslur Landakotsspítalans
og við krufningaskýrslur. Alls greindust 10 tilfelli
af klofagúlpi á meginæð á tímabilinu. Ekki er
vitað til þess, að sjúkdómurinn hafi greinst á
Landakotsspítala fyrir 1973 en athugaðar voru
sjúkdómsgreiningar aftur til ársins 1964.
Skipting milli kynja var þannig, að alls greindust
átta karlar og tvær konur. Meðalaldur við
greiningu reyndist 52,5 ár. Aldursbil var 25-69 ár.
Átta sjúklingar höfðu áhættuþætti, sem vitað var
um. Þar af voru sjö með háþrýsting og tveir með
Marfanssjúkdóm. Annar þeirra var með vægan
háþrýsting. í tveimur tilfellum fundust ekki neinir
áhættuþættir.
Greiningin var staðfest með röntgenmynd af
brjóstholi í þremur tilvikum, með
skuggamyndatöku af meginæð í sex tilvikum og í
einu tilviki við krufningu.
Tveir sjúklinganna gengust undir skurðaðgerð, en
í sjö tilvikum var eingöngu beitt lyfjameðferð.
Sjúkrasögurnar eru birtar í réttri tímaröð,
samanber töfluna.
1) 1973. Bráðainnlögn 45 ára gamals karlmanns. Hafði
hann oft slæmar brjóst- og höfuðkvalir, sem staðið
höfðu í tvo sólarhringa. Þessu fylgdu ógleði og uppköst.
Vitað var að hann hafði háþrýsting, en ekki kemur fram
í sjúkraskýrslu hve lengi.
Við komu var hann illa haldinn og við skoðun kom í ljós
hækkaður blóðþrýstingur, 270/150 mm Hg. Merki um
skemmdir af völdum háþrýstings sáust í augnbotnum,
(KW II breytingar). Að öðru leyti var skoðun eðlileg.
Röntgenmynd af brjósti sýndi breikkun á
brjóstmeginæð. Gerð var bráð
röntgenskuggamyndaskoðun á nýrnaæðum. Kom þá í
ljós klofagúlpur á meginæðinni með upptök við vinstri
viðbeinsslagæð og náði hann niður að samslagæð
mjaðmar. Sjúklingur þótti ekki vegna ástands síns
hæfur til að gangast undir skurðaðgerð og fékk því
einungis lyfjameðferð. Hann andaðist á heimili sínu um
sjö árum eftir greiningu. Hné hann skyndilega niður og
var látinn, er að var komið. Krufning leiddi í ljós, að
klofagúlpurinn hafi rifnað um átta sentimetra frá
upptökum sínum og blætt hafi inn í miðmæti og inn í
hægra brjósthol.
2) 1974. Bráðainnlögn 69 ára gamals manns vegna
skyndilegra verkja í mjóbaki, sem leiddu fram í kvið og
niður í hægra læri. Versnuðu þeir við öndun og hósta.
Þessu fylgdi ógleði, en ekki uppköst. Sjúklingur hafði
haft blæðandi magasár sex árum áður.
Við komu á spítalann var hann mjög þjáður af verkjum.
Kviður var mikið þaninn og garnahljóð heyrðust ekki.
Hann var með aukna blóðfyllingu í bláæðum á hálsi og
blóðþrýstingur mældist 210/140 mm Hg í hægri
handlegg, en 170/105 mm Hg í þeim vinstri. Við
hjartahlustun heyrðist II. tónn (S2) klofinn við útöndun
sem samrýmist seinkuðum samdrætti í vinstra slegli.
Clinical and necropsy observalions in ten patients with dissecting aneurysms of the aorta diagnosed at St. Joseph ’s
Hospital in Reykjavík 1973-1985.
Patients 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
Year of diagnosis 1973 1974 1977 1978 1979 1980 1982 1984 1984 1985
Age at diagnosis 45 69 67 25 48 47 55 67 36 66
Sex o* cr 9 cr o* cr 9 cr o* cr
Hypertension (> 160/90) + + + + + + +
Marfan’s syndrome + +
Chest pain + + + + + + +
Back pain + + + + +
Abdominal pain nausea/vomiting + + + + +
Syncope + +
Type (DeBakey) III iii I i III iii II i III iii
Operation + +
Alive Alive Alive
Survival and and and
(years after diagnosis) 7 4 <1 <i well well well <i <1 <i