Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1989, Blaðsíða 12

Læknablaðið - 15.10.1989, Blaðsíða 12
FRUMLYF FRÁ MERCK SHARP OG DOHME RENITEC ENALAPRIL MALEAT, MSD BLÓÐÞRÝSTINGSLÆKKANDI LYF MEÐ VERKUN Á RENIN-ANGIOTENSIN-KERFIÐ RENITEC* (enalaprll maleat.MSD) töflur 5 mg og 2Q mg. RENITEC* (enalapril maleat.MSD), er maleat saltið af enalapríl, sem er afleiða af aminosýrun- um L-alanín og L-prólin. Eftir inntöku frásogast RENITEC* hratt og vatnsgreinist í enalaprílat sem er mjög sérhæfur, langvirkur angiotensin converting enzym blokkari (ACE blokkari). RENITEC* hefur ekki sulfhy- dryl hóp. RENITEC* er notað til meðhöndlunar á öllum stigum háþrýstings af óþekktri orsök (hypertensio arterialis essentialis) og háþrýstings vegna þrengsla í nýrnaslagæð (hypertensio arterialis renovascularis). RENITEC* er hægt að nota eitt sér í byrjun meðferðar eða samtímis öðrum blóðþrýstingslækkandi lyfjum. sérstaklega þvagræsilyflum. RENITEC* er einnig notað í meðferð hjartabilunar. ABENDINGAR. 1. Öll stig háþrýstings at óþekktri orsök. 2. Háþrýstingur vegna þrengsla í nýrnaslagæð. 3. Hjartabilun. SKAMMTASTÆRÐIR OG NOTKUN. RENITEC* er hægt að taka fyrir, eftir eða á meðan á máltíð stendur, þar sem fæða hefur ekki áhrif á frásog lyfsins. Venjulegur dagskammtur fyrir allar ábendingar er 10-40 mg. RENITEC* má gefa einu sinni eða tvisvar á sólarhring. Við skerta nýrnastarfsemi, hjartabilun og hjá sjúklingum sem taka inn þvagræsilyf getur verið nauðsynlegt að nota minni byrjunarskammta (sjá hér að neðan). Til þessa er stærsti skammtur sem notaður hefir verið 80 mg á dag. Háþrýstingur af óþekktrl orsök: Byrjunarskammtur er 10-20 mg eftir stigi háþrýstings, gefið einu sinni á dag. Við vægum háþrýstingi er ráðlagður byrjunarskammtur 10 mg á dag. Á alvarlegri stigum háþrýstings er byrjunarskammtur 20 mg á dag. Venjulegur viðhaldsskammtur er 20 mg (1 tafla) á dag. Skammtastærðir ætti að ákvarða eftir þörfum hvers og eins. Háþrýstlngur vegna þrengsla i nýrnaslagæð: Blóðþrýstingur og nýrnastarfsemi þesSara sjúklinga er næmari fyrir ACE blokkun en hjá öðrum sjúklingum. Því er ráðlegt að nota minni byrjunarskammta t.d. 5 mg eða minna. Skammtastærðir ákvarðist síðan eftir þörfum hvers og eins. Flestum sjúklingum nægja 20 mg á dag. Varúðar skal gætt hjá sjúklingum sem hafa tekið inn þvagræsilyf skömmu áður. Samtímis meðhöndlun með þvagræsilyfjum - háþrýstingur: Blóðþrýstingsfall sem lýsir sér með svima í uppréttri stöðu getur komið fyrir eftir byrjunarskammt af RENITEC*. sérstaklega hjá sjúklingum sem hafa tekið inn þvagræsilyf skömmu áður. Varúðar skal því gætt í þessum tilvikum. Hætta skal gjöf þvagræsilyfja 2-3 dögum áður en meðferð með RENITEC* hefst. Sé það ekki hægt skal gefa minni byrjunarskammt af RENITEC* (5 mg eða minna) og athuga áhrifin á blóðþrýstinginn. Skammtastærðir ákvarðist síðan eftir þörfum hvers og eins. Skammtastærðir vlð skerta nýrnastarfseml: Byrjunarskammtur er 2,5 - 5 mg á dag, stærsti skammtur er 20 mg á dag. Enalapríl skilst úr blóði með blóðskilun (haemodialysis). Skammtastærð skal ákvarða af mælingum á blóðþrýstingi þá daga sem blóðskilun eru ekki framkvæmd. Hjartabllun: Fylgjast skal með blóðþrýstingi og nýrnastarfsemi fyrir og eftir aö gjöf RENITEC* hefst (sjá Varúð) því of lágur blóðþrýstingur og (sjaldnar) nýrnabilun hefur verið skráð. Handa sjúklingum með hjartabilun er venjulegur viðhaldsskammtur 10-20 mg á dag, gefið einu sinni eða tvisvar. Handa sjúklingum með hjartabilun (sérstaklega sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi, lækkað serum natríum og/eða minnkað blóðrúmmál) er byrjunarskammtur 5 mg eða minna. Við gjöf lyfsins í fyrsta sinn skal gæta varúðar og fylgjast vel með blóðþrýstingi. Ef mögulegt skal minnka skammt þvagræsilyfs áður en gjöf RENITEC* er hafin. Of lágur blóðþrýstingur kemur helst fyrir eftir gjöf lyfsins í fyrsta sinn. Þegar blóðþrýstingur er orðinn eðlilegur eftir gjöf lyfsins i fyrsta sinn hjá sjúklingum með hjartabilun, skal auka skammtastærðina varlega á 2 - 4 vikum, eða styttri tíma ef ástæða er til, þar til venjulegum viðhaldsskammti er náð 110 - 20 mg). FRÁBENDINGAR. Meðganga og brjóstagjöf. Ofnæmi fyrir lyfinu kemur sjaldan fyrir. VARÚÐ. Blóðþrýstlngsfall: örsjaldan hefur blóðþrýstingstall komið fyrir eftir fyrsta skammt af RENITEC*. Líklegast er að það gerist, ef sjúklingur hefur misst mikinn vökva, t.d. vegna þvagræsilyfjameðferðar. salts- MSD LEIÐANDI FYRIRTÆKI í NÝÞRÓUN LYFJA nauðrar fæðu, blóðskilunar, niðurgangs eða uppkasta. Líklegast er að blóðþrýstingsfall komi fyrir hjá sjúklingum með alvarlega hjartabilun (sjá Skammtastærðir og notkun). Ef blóðþrýstings- fall kemur fyrir skal sjúklingur leggjast útaf. Nauðsynlegt getur verið að gefa sjúklingum vökva eða gefa saltvatnslausn í æð. Einnig getur verið nauðsynlegt að gefa angiotensin II i æð. Meðhöndlun með RENITEC* er yfirleitt hægt að halda áfram þegar blóðrúmmál og blóðþrýst- ingur er komið í eðlilegt horf. Hjá nokkrum sjúklingum með hjartabilun og eðlilegan eða lágan blóðþrýsting getur meðferð með RENITEC* valdið enn frekari lækkun blóðþrýstings. Þessi áhrif er hægt að sjá fyrir og yfirleitt þarf ekki að stöðva lyfjameðferðina. Ef blóðþrýstingslækkunin veldur einkennum getur verið nauðsynlegt að minnka skammtinn eða hætta gjöf lyfsins. Skert nýrnastarfsemi: Sjúklingar með skerta nýrnastarfsemi þurfa stundum minni skammt af RENITEC* og/eða mega láta líða lengri tíma milli töku lyfsins (sjá Skammtastærðir). Sést hefur aukning á serum-þvagefni og serum-kreatinini hjá sjúklingum með þrengsli í báðum nýmaslagæðum eða hjá sjúklingum með eitt nýra og þrengsli í nýrnaslagæðinni. Þessi aukning hefur horfið þegar meðhöndlun hefur verið hætt. Þetta gerist sérstaklega hjá sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi. Nokkrir sjúklingar með háan blóðþrýsting en eðlilega nýrnastarfsemi hafa um skeið fengið aukið serum-þvagefni og serum-kreatinin þegar þvagræsilyf hafa verið gefin auk RENITEC*. Nauð- synlegt getur verið að minnka skammta af RENITEC* og/eða hætta þvagræsilyflameðferð. Hjá sjúklingum með hjartabilun getur blóðþrýstingsfall eftir byrjunarskammt af RENITEC* valdið enn meiri skerðingu á nýmastarfsemi og bráð nýrnabilun hefur verið skráð. Nýrnastarfsemi fer yfirleitt í fyrra horf þegar meðferð er hætt. Skurðaðgerðir/svæfing: Eftir meiriháttar skurðaðgerðir eða svæfingu með lyflum, sem orsaka blóðþrýstingsfall, eykst myndun renins, en enalapril iiindrar þá myndun angiotensin II og hækkun blóðþrýstings. Slíkt blóðþrýstingsfall er hægt að leiðrétta með aukinni vökvagjöf og gjöf angiotensin II ef nauðsyn krefur. Meðganga og brjóstagjöf: Engar marktækar rannsóknir hafa verið gerðar á notkun lyfsins hjá þunguðum konum. Þær ættu þvi einungis að nota lyfið ef kostir þess réttlæta áhættuna fyrir fóstrið. Ekki er vitað hvort RENITEC* skilst út í móðurmjólk. Þar sem mörg lyf skiljast út i móðurmjólk skal varúðar gætt þegar lyfið er gefið mæðrum með börn á brjósti. Notkun handa börnum: Engar rannsóknir hafa verið gerðar á notkun lyfsins handa börnum. MILLIVERKANIR. Blóðþrýstingslækkandi meðferð: Sé RENITEC* gefið samtímis öðrum blóðþrýstingslækkandi lyfjum eru áhrifin yfirleitt aukin. Serum-kalíum: Serumþéttni kalíums helst yfirleitt innan eðlilegra marka. en RENITEC* getur þó dregið úr útskilnaði kalíums í þvagi. Sé RENITEC* gefið samtímis þvagræsilyfjum, verður hypokalemía vegna þvagræsilyfjanna stundum ekki eins mikil. Hjá sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi getur notkun RENITEC* leitt til hækkunar á serum- þéttni kalíums Kalíum eða kalíumsparandi þvagræsilyf (t.d. spírónólaktón eða amilóríð) ætti að gefa með varúð, sérstaklega sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi, þar sem þessi efni geta leitt til töluverðrar hækkunar á serumþéttni kalíums. AUKAVERKANIR. Aukaverkanir eru óalgengar og oftast vægar. Algengastar eru svimi og höfuðverkur, 2-3% sjúklinga finna fyrir þreytu og sleni. Tíðni annarra aukaverkana, svo sem blóðþrýstingsfall. yfirlið, ógleði, niðurgangur, vöðvakrampar, útbrot og hósti er minni en 2%. Ofnæml/angioneurotlsk ödem: Angioedema hefur verið skráð hjá sjúklingum sem taka ACE blokkara, þar á meðal RENITEC* Ofnæmisviðbrögð svo sem angioneurotisk ödem með bólgu í andliti, tungu og raddopi og stuttur andardráttur hefur verið skráð í einstaka tilfellum. Verði þessa vart skal hætta gjöf RENITEC* og nota önnur lyf. Blöðmeina- og meinefnafræðilegar rannsóknir á RENITEC*: Blóðmeina- og meinefnafræðilegar rannsóknir á RENITEC* hafa yfirleitt ekki sýnt nein marktæk frávik frá normalgildum. Aukning á serum-þvagefni og serum-kreatinini hefur sést en þessar breytingar hverfa ef gjöf lyfsins er hætt. Þessar breytingar koma oftast fyrir, ef um er að ræða Þrengsli í báðum nýrnaslagæðum og hjá sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi (sjá Varúð). Lítilsháttar tímabundin hækkun á serum-þvagefni og kreatinin gildum getur komið fyrir hjá sjúklingum með eðlilega nýmastarfsemi, sérstaklega hjá sjúklingum sem taka þvagræsilyf. Minniháttar lækkun hemoglobins og hematokrits, blóðflögufæð, fækkun hvitra blódkoma og hækkuð gildi lifrarenzýma hafa verið skráð en ekki hefur verið hægt að tengja þessar breytingar notkun RENITEC*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.