Læknablaðið - 15.10.1989, Blaðsíða 18
286
LÆKNABLAÐIÐ
sjúklinga á geðdeildum innlögn fyrir, en
samt voru valinnlagnir þar aðeins í 14%
tilvika. Allt annað kom í ljós á lyfja- og
skurðdeildum. Þar sáu aðstandendur innlögn
fyrir í 30% tilvika og valinnlagnir voru í
43% tilvika. Af þessu má sjá að aðstandendur
sjúklinga á geðdeildum sjá ástandið í öðru
ljósi og hafa því önnur viðhorf til aðdraganda
innlagnar en læknar.
Mun fleiri aðstandendur sjúklinga á
geðdeildum áttu frumkvæði að innlögn en
á öðrum deildum. Alag á aðstandendur
sjúklinga á geðdeildum er því mun meira
en á aðstandendur sjúklinga á öðrum
deildum hvað þetta snertir. Svo virðist einnig
sem læknar hiki frekar við ákvörðun um
innlögn á geðdeildir, þrátt fyrir þörf, að
mati aðstandenda og þrátt fyrir að um 75%
sjúklinganna væru samþykkir innlögn. Þrátt
fyrir aukið álag lýsa aðstandendur sjúklinga
á geðdeildum ekki almennri óánægju. Þeir
eru tilbúnir að taka þessu álagi, en vilja meiri
samvinnu um skipulag innlagnar.
SUMMARY
A questionnaire was developed to assess the
burden of illness on patients and their relatives.
Fourty hospitalized psychiatric patients and their
relatives were compaired with 40 hospitalized non-
psychiatric patients and their relatives.
This paper studies in particular the attitudes
and comments regarding hospitalization. The
two groups were demographically different and
therefore needed different types of support.
Patients’ relatives and doctors’ comment about
hospitalization differed. Relatives of psychiatric
patients commented that admission to hospital was
too late in the process.
Elective admissions to psychiatric ward were
almost unknown.
HEIMILDIR
1. Allen JC, Barton GM. Patient comments about
hospitalization. Comp Psychiatry 1976; 17: 631-40.
2. Heilbrigðisskýrslur 1985. Reykjavík:
Landlæknisembættið 1986.
3. Breier A, Strauss JS. The role of social relationship
in the recovery from psychotic disorders. Am J
Psychiatry 1984; 141: 949-55.
4. Dimsdale JE, Klerman G, Shershow JC. Conflict
in treatment goals between patients and staff. Soc
Psychiatry 1979; 14: 1-4.
5. Drake RE, Wallach MA. Mental patient’s attitude
toward hospitalization: A neglected aspect of hospital
tenure. Am J Psychiatry 1988; 145: 29-34.
6. Skodol AE, Plutcleik R, Korane TB. Expectations of
hospital treatment. Conflicting views of patients and
staff. J Nerv Ment Dis 1982; 168: 70-4.
7. Slater V, Linn MW, Harris R. A satifaction with
mental health care scale. Comp Psychiatry 1982; 23:
68-74.
8. Shaila P, Kapur RL. The burden of the family of
a psychiatric patient: Development of an interview
schedule. Brit J Psychiatry 1981; 138: 332-5.
9. Platt S, Weyman A, Hirsch S, Hewett S. The social
behavior assessment schedule (SBAS): Rational
contents, scoring and reliability of a new interview
schedule. Soc Psychiatry 1980; 15: 43-55.