Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1989, Blaðsíða 15

Læknablaðið - 15.10.1989, Blaðsíða 15
LÆKNABLAÐIÐ 1989; 75: 283-6 283 Ólafur Þór Ævarsson, Lárus Helgason VIÐBRÖGÐ SJÚKLINGA OG AÐSTANDENDA ÞEIRRA VIÐ ÁLAGIVEGNA VEIKINDA I. Innlagnir á geödeildir og aðrar deildir ÚTDRÁTTUR Hér er gerö grein fyrir hluta könnunar sem gerö var áriö 1988 á mati inlagðra sjúklinga og aðstandenda þeirra á meöferö, einkum viöhorfum þeirra til árangurs meðferðar, innlagnar, pátttöku sjúklinga og aðstandenda, samskipta og upplýsinga. Geröur er samanburður á geödeildum og öörum deildum. Niöurstööur sýna m.a. að talsverður munur er á afstööu sjúklinga og aöstandenda annars vegar og lækna hins vegar til innlagna, einkum á geödeildir. Fyrir hendi er möguleiki á aö auka valinnlagnir á geödeildir meö auknu samráöi viö aöstandendur, til hagsbóta bæöi fyrir sjúklinga og stofnanir. INNGANGUR Sjúklingar vita meira um sjúkdóma en áður. Oskir þeirra og skoðanir hafa því vaxandi áhrif á ákvarðanir um meðferð (1). Alls voru innlagnir á sjúkrastofnanir hérlendis árið 1985 um það bil 57.400 (2). Þar af voru rúmlega 3200 innlagnir á geðdeildir. En hver eru viðbrögð sjúklinganna og aðstandenda þeirra við innlögn? Telja þeir innlögn nauðsynlega? Voru sjúklingamir í meðferð fyrir innlögn? Leggja aðstandendur og sjúklingar annað mat á innlagnir á geðdeildir en á aðrar deildir? Sáu aðstandendur innlögn fyrir? Hverjir áttu fmmkvæði að innlögn? Upplýsingar um þetta liggja ekki fyrir hérlendis. Erlendis hafa viðbrögð aðstandenda og sjúklinga verið könnuð (3-6). Niðurstöður eru mismunandi og fer það m.a. eftir formi könnunar og staðháttum. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Veturinn 1988 vom rannsökuð viðhorf 80 sjúklinga og aðstandenda þeirra til sjúkdóma, innlagna, meðferðar og horfa. Einnig áhrif veikinda á líkamlega, sálræna og félagslega þætti. Lagðar voru fyrir þá 130 spumingar í u.þ.b. 45 mínútna löngum viðtölum. Geðdeild Landspítalans. Barst 03/03/1989. Samþykkt 17/05/1989. Um var að ræða 20 sjúklinga á hverri fjögurra legudeilda á Landspítala; tveim geðdeildum, skurðdeild og lyfjadeild. Sjúklingahópurinn á hverri deild var valinn þannig að allir sjúklingar sem vom á deildinni á ákveðnum degi voru rannsakaðir svo og þeir sem lögust inn næstu daga uns náðst hafði til 20 sjúklinga á hverrri deild. Tveir sjúklingar á lyfjadeild neituðu að taka þátt í könnuninni. Þeir féllu því sjálfkrafa úr ásamt aðstandendum og tveim nýjum sjúklingum var bætt við. Þrír sjúklingar á geðdeildum og fjórir sjúklingar á öðrum deildum vom það veikir að þeir gátu ekki geíið fullnægjandi upplýsingar. Aðstandendur þeirra tóku þátt í könnuninni. Ekki fengust upplýsingar frá aðstandendum fjögurra sjúklinga á geðdeildum: í einu tilviki vegna þess að sjúklingurinn neitaði að rætt yrði við aðstandanda, í öðm vegna þess að aðstandandinn neitaði að svara spumingunum og í tveim tilvikum tókst ekki að hafa uppi á aðstandendum. Aðstandandi var valinn þannig að rætt var við þann einstakling sem sjúklingurinn sjálfur tilnefndi. I þeim fáu tilvikum sem sjúklingar gátu ekki gefið slíkar upplýsingar var rætt við þann aðstandanda sem skráður var í innskriftarbækur. Lagðar vom fyrir 10 spumingar um innlögn. Stuðst var við spumingar úr öðmm svipuðum könnunum (7-9). Annars vegar var um að ræða staðlaðar, lokaðar spumingar sem svara varð með »já« eða »nei«, en hins vegar opnar spumingar sem gáfu tilefni til frekari umræðna, en svör þeirra voru flokkuð eftir á. a) Spurningar fyrir sjúklinga: Varstu í meðferð fyrir innlögn? Fannst þér innlögn nauðsynleg? Varstu sáttur við innlögn? Hvemig fannst þér staðið að innlogn? Telur þú að sami árangur hefði náðst utan spítala?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.