Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1989, Page 19

Læknablaðið - 15.10.1989, Page 19
LÆKNABLAÐIÐ 1989; 75: 287-91 287 Þorvaldur Jónsson, Jón G. Hallgrímsson, Jóhann Heiðar Jóhannsson KRABBALÍKI í BOTNLANGA Á ÍSLANDI 1955-1984 ÚTDRÁTTUR Fjallaö er um 78 krabbalíkisæxli (carcinoid tumors) í botnlanga sem greindust íslandi á árunum 1955-1984. Þau voru 53% allra krabbalíkisæxla sem greindust á því tímabili, en 66% slíkra æxla í meltingarfærum. Árlegt nýgengi (crude incidence) krabbalíkis í botnlanga var 1,28 sjúklingar á 100.000 íbúa. Konur voru 76% sjúklinga. Aldursdreifing var 4-72 ár, meöalaldur 29 ár. Börn undir 16 ára voru 18. Æxliö greindist ekki í neinu tilfelli fyrir skuröaögerö. Algengasta ábending botnlangatöku var grunur um bráöa botnlangabólgu (51%). Meöalstærö æxla í vefjasneiðum var 0,60 cm. Voru 79% staðsett í fjærþriöjungi botnlanga og 28% æxla voru vaxin út fyrir botnlangann. Einn sjúklingur haföi meinvörp. Venjuleg botnlangataka var gerö hjá 74 sjúklingum. Þann 1. desember 1986 voru sex sjúklinganna látnir en enginn þeirra af völdum krabbalíkis. Aörir sjúklingar voru álífi og án einkenna um endurkomu krabbalíkis, aö meðaltali 15 árum eftir aögerö. Niðurstöður okkar styöja þaöálit, aö venjuleg botnlangataka sé meö mjög fáum undantekningum fullnægjandi meöferö viö krabbalíki í botnlanga. INNGANGUR Krabbalíki (carcinoid) greinist oftast í botnlanga og er algengasta gerð æxlisvaxtar þar (1, 2). Krabbalíki í botnlanga hafa mun betri batahorfur en krabbalíki annars staðar í miðgimi. Það er álit flestra að venjuleg botnlangataka sé með fáum undantekningum fullnægjandi meðferð við sjúkdóminum (1, 3-6). Sumir læknar hafa þó ráðlagt róttækari meðferð vegna þess að meinvörp frá krabbalíki í botnlanga em þekkt þó sjaldgæf séu. Deilt er um hvenær gera skuli aðra aðgerð en botnlangatöku (1,2, 7). Lykilorö: Appendiceal neoplasms, appendiceal carcinoid tumor, pathology, surgery. Barst 29/12/1988. Samþykkt 10/04/1989. Höfundar hafa áður gert afturvirka rannsókn á krabbalíkisæxlum á Islandi 1955-1984, samanber Læknablaðið 1989; 75: 201-8. í þessari grein er fjallað um krabbalíki í botnlanga á þeim 30 ámm. Tilfellin em sundurliðuð eftir klínískum og meinafræðilegum skilmerkjum og afdrif sjúklinga könnuð. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Öll krabbalíki sem greindust á Islandi á tímabilinu 1955-1984 vom skoðuð. Gagnaöflun hefur verið lýst í fyrri grein höfunda (Læknablaðið 1989; 75: 201- 8). Vefjasneiðar frá krabbalíkisæxlum í botnlanga vom endurskoðaðar og endurmetnar til samræmis við viðurkennd skilmerki (8). Stærð æxla í vefjasneiðum var mæld með sjónglersmæli (ocular micrometer). Upplýsingar um sjúkdómseinkenni, ábendingu aðgerða, aðgerðir og klínískan gang vom fengnar úr sjúkraskýrslum. I sex tilfellum fundust sjúkraskýrslur ekki og vom upplýsingar um þá sjúklinga fengnar úr vefjarannsóknarbeiðnum. Tölfræðileg marktækni var könnuð með t-prófun Student’s. Leitað var í Þjóðskrá frá 1. desember 1986 til að finna hvaða sjúklingar vom þá á lífi. Dánarmein þeirra sem látist höfðu á rannsóknartímabilinu vom könnuð í dánarvottorðum eða krufningarskýrslum þar sem þær lágu fyrir. NIÐURSTÖÐUR Alls fundust 146 krabbalíki á rannsóknartímabilinu og vom 119 með vissu uppmnnin í meltingarfærum. Botnlangaœxli vom 78 eða 53% allra æxla og 66% æxla í meltingarfæmm. Enginn sjúklingur með æxli í botnlanga hafði annað krabbalíki. Nýgengi (cmde incidence) krabbalíkis í botnlanga var 1,28/100.000 íbúa/ár, hjá konum 1,96 og 0,62 hjá körlum.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.