Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.1989, Side 57

Læknablaðið - 15.10.1989, Side 57
LÆKNABLAÐIÐ 319 Örn Bjarnason og Björn Björnsson þegar þeir verða fyrir því að heilsan skerðist? Leifur: Við erum oft mjög aftarlega á merinni hvað varðar réttindi sjúklinga og kann vel að vera að stefnuyfirlýsing þar að lútandi sé tímabær. Enn í dag eru dæmi þess að fólk fari í skurðaðgerðir án þess að vera upplýst um í hverju þær eru fólgnar. Kannski væri til bóta að sjúklingar undirrituðu yfirlýsingar eins og í Bandaríkjunum þótt ekki sé beinlínis verið að hugsa um að verjast hugsanlegri málssókn. En fleira er þessu tengt, eins og sending gagna. Það eru nýmæli að ekki skuli hægt að hringja hvert sem er út á land eða á sjúkrahús og segja: »Þetta er Jón Jónsson, ég ætla að biðja ykkur að senda öll gögn um viðkomandi sjúkling.« Til skamms tíma hefur verið hægt að fá allar upplýsingar sendar landshoma á milli, án þess að samþykki sjúklings liggi fyrir. Sigurður: Bandaríska réttindaskráin tekur fyrir réttindi sjúklinga sem flestum þykja sjálfsögð, en hún hefur ekkert lagalegt gildi. Hún hangir uppi og sjúklingar fá hana kannski í hendur, þegar þeir koma inn á sjúkrahús. En þetta eru fremur leiðbeiningar um hvaða réttindi fólk getur tekið sér og hvaða réttindi bandarískt þjóðfélag veitir þegnum sínum. Að mörgu leyti er þetta ágætt og ég held að við ættum að hafa svona plagg hér. Það mætti birtast í Læknablaðinu og riti Tryggingastofnunar ríkisins. EUTHANASIA/LÍKNARDAUÐI Leifur: Það sem sló mig einna mest við lestur Appleton-plaggsins var, hversu moðvolgt er tekið á líknardauða. Eg er litlu nær hvað höfundar em fara í sambandi við líknardráp. Þeir segja á einum stað: »Intervention with the sole intention of causing death ... has no place in the treatment of permanently incapacitated patients«. En annars staðar standa þessi tilmæli til okkar: »Physicians have an obligation to try to provide a peaceful, dignified, and human death...« Eg held að það megi deila um það hvort læknum sé uppálagt að skaffa einhverjum einhvers konar dauða. Sigurður: A íslensku væri betra að segja, að læknum væri skylt að sjá til þess að dauðinn geti orðið kvalalaus. En ekki að sjá til þess að sjúklingar fái kvalalausan dauða, eins og hér stendur. Björn: Er ekki um að ræða upprunalega merkingu hugtaksins »Euthanasia«, að deyja vel? Leifur: Höfundar segja »...statutory legalization of the intentional killing ...« Mér finnst það hálfvegis gefa til kynna, að það sé allt í lagi að þetta sé gert, en það verði hvergi skrifað á blað, það verði ekkert sem heitir »statutory legalization«. Sigurður: Þetta er það sem Israelsmennimir segja hér í lokin. Þeir em á móti »Euthanasia« og vilja alls ekki að neitt sé sett um hana í lög. Leifur: Þar má ekki einu sinni biðja um hana, það er siðlaust. Sigurður: »Euthanasia« er gífurlega umdeild og varðar trúarskoðanir manna og allt gildismat. I hollenskum lögum stendur að menn verði ekki sóttir til saka fyrir »Euthanasia«, en það er ekki beinlínis sagt að hún sé lögleg. Ég hef alltaf verið mjög harður á því að ég vil alls ekki hafa slíkt vald. Jafnvel þótt ég verði ekki dæmdur fyrir einhvem tiltekinn verknað þá gæti ég lent í meiriháttar útistöðum við sjálfan mig og aðra. En annars staðar í yfirlýsingunni kemur fram að það sé réttlætanlegt að gefa sterk verkjalyf þegar dauðinn er augljóslega á næstu grösum, jafnvel þótt það kunni að leiða til dauða fyrr heldur en ef sjúklingur þjáist áfram. í svona tilvikum segi ég gjaman við aðstandendur og hjúkrunarfólk, að við sjáum okkur tilneydd að auka verkjalyfin vegna ástands sjúklings og það geti hugsanlega haft í för með sér að hann hætti að anda.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.