Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.1989, Side 59

Læknablaðið - 15.10.1989, Side 59
LÆKNABLAÐIÐ 321 Samkvæmt þessu er viðurkennt að lífi manns sé lokið þegar heilinn hættir að starfa og það er óafturkallanlegt. Það er viðurkenning á því að maðurinn hafi skilið við og því beinlínis ósiðlegt að reyna að halda einhverju gangandi lengur. Leifur: En ef ekki er um ræða flatt heilarit? Ef maðurinn í öndunarvélinni er lifandi í þeim skilningi, hefur meðvitund og er hæfur til ákvarðanatöku. Biðji hann síðan: »1 guðanna bænum takið vélina úr sambandi.« Þá erum við að tala um að gera ekki eitthvað til að viðhalda þessu lífi, en jafngilti samt því að gefa honum lyf sem styttu lífið. Sigurður: Þama er ég sammála ísraelsmönnunum. Jafnvel þótt sjúklingur biðji mig að stytta líf sitt þá fær hann mig ekki til þess. Hann má hafa hvaða skoðun sem vill, en hann fær mig ekki til þess af því að þetta stríðir gegn grunnskoðunum mínum og ég álít að ég hafi ekki þetta vald. Eyjólfur: Eg hygg að læknum hljóti að þykja auðveldara að verða við bón dauðvona sjúklings sem hljóðar: »1 guðs bænum hættið þessari meðferð,« þótt næsta ljóst sé að það að hætta styttir lífið, en við beiðni sama sjúklings sem hljóðar: »1 guðs bænum gefðu mér nógu stóran skammt næst.« Þetta er vegna þess að við höfum svo sterklega á tilfinningunni að það sé grundvallarmunur á að láta ógert og gera eitthvað. En eins og ég sagði áðan má efast um að þessi munur geti orðið fullkomlega ljós og eins að hann skipti sköpum siðferðilega. Sigurður: Hægt er að hugsa sér annað dæmi. Sjúklingur sem fengið hefur ákveðinn skammt af lyfi segir: »Eg kvelst ennþá, ég verð að fá aukinn lyfjaskammt.« Þetta er aðferð hans til þess að fá meiri lyf. Ég hef kannski engan annan raunverulegan mælikvarða á það hvort hann finnur svona mikið til en þann að treysta orðum hans. Sjúklingar segja manni yfirleitt mjög rétt til og við eigum að hlusta og taka mark á því sem þeir segja. Ef hann segir: »Ég er ennþá með óbærilega verki,« þá verð ég að fara eftir því. Hins vegar er ekki líklegt að breyting á lyfjaskammti nægði til að stytta líf manns sem gæti rætt við mig á þennan hátt. ÁBYRGÐ LÆKNA/ÁBYRGÐ SJÚKLINGA Eyjólfur: Sjáið þið í raun engin vandkvæði á að framfylgja þessari sjálfræðisstefnu? Er ekki hætta á því að jafnvel hjá lækni, sem reynir af bestu samvisku að upplýsa sjúklinga og fá þá sjálfa til að taka sem flestar ákvarðanir, þá verði þetta í raun bara til að sýnast, málamyndauppfræðsla, vegna þess að læknirinn hlýtur að leggja málin þannig fyrir að niðurstaðan verði sú sem hann vill fá fram. Önnur spuming er, hvemig þið bregðist við sjúklingum sem virðast síður vilja axla ábyrgð og kjósa heldur að treysta á lækninn og ætlast til þess að hann taki sem mesta ábyrgð á því sem gert er? Sigurður: Ef um er að ræða meðferð sem ég hef mjög mikla trú á að muni skipta sköpum, þá legg ég talsvert á mig til þess að sannfæra sjúklinginn. í upphafi reyni ég að útskýra allt hugsanlega jákvætt og neikvætt við meðferðina, þannig að sjúklingur geti verið með í ákvarðanatöku. Niðurstaðan verður sú að flestir segjast gjaman fallast á viðkomandi meðferð. Fæstir em mjög vel í stakk búnir að meta hvort mín tillaga felur í sér bestu meðferð eða ekki. Þannig að þeir treysta mér til að ráðleggja sér það sem ég tel best. Þekking almennings á læknisfræði og heilbrigðismálum er vaxandi og í flestum tilfellum af hinu góðu. En hún getur líka komið inn hjá fólki vemlegum ótta og óöryggi. Ég ráðlegg sjúklingum til dæmis iðulega sterk verkjalyf sem hafa á sér yfirbragð ávana- og fíknilyfja í augum almennings. Þetta em frábær verkjalyf og oft dýrmætasta hjálpin sem hægt er að veita sjúklingum. En lyfin eru flokkuð sem ávana- og fflmilyf og með því að slá upp í lyfjabókum geta sjúklingar lesið hryllingslista um áhrifin: Ógleði, ofskynjanir, hægðatregða. Það er endalaus hörmungarlisti. Þótt ég útskýri mögulegar aukaverkanir og hvemig hægt sé að bregðast við þeim, þá syrtir yfir þegar menn lesa þessi ósköp. Þegar ég álít að lyf eins og morfín sé sjúklingi með óbærilega verki fyrir bestu, þá verð ég að leggja málið þannig fyrir, að sjúklingurinn fallist á að þiggja meðferðina. Það er æskilegt að sjúklingur taki sem mesta ábyrgð vegna þess að því jákvæðari sem hann er gagnvart meðferðinni þeim mun betur tekst

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.