Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1989, Page 65

Læknablaðið - 15.10.1989, Page 65
LÆKNABLAÐIÐ 327 Besti staðurinn til að hafa vit fyrir fólki er í uppeldi bama. Til þess að það geti átt sé stað þarf fullorðna fólkið að hafa vit til þess að veita rétta leiðsögn. Vitundariðnaður og fjölmiðlafár eru hins vegar á góðri leið með að taka uppeldið úr höndum foreldra og stundum vitið af þeim sjálfum, með klækjum og yfirgangi. Ef ég mætti biðja um áróður, þá væri það vamaðarorð til foreldra um uppeldi og sálarheill bamanna. Þar er hinn eðlilegi staður. En það heitir víst að skipta sér af einkalífinu. En ég er viss um að myndbandagláp er miklu verra en tóbak, eftir því sem sálin er líkamanum mikilvægari. En að stjómvöld eða sérfræðingar láti dæluna ganga með tilmæli á öllum sviðum, gengur hæglega út í öfgar. Björn: Hugsum okkur stórmarkað þar sem em upptökuvélar til að fylgjast með viðskiptavininum hvert fótmál. Reiknað er með því að uppeldið hafi mistekist að því leyti að rækta með fólki heiðarleika. A þessu er fundin tœknileg lausn. Hið tæknivædda samfélag bregst við á þann hátt að finna upp sem fullkomnasta tækni til að bæta upp vöntun á siðferðisþroska manna. En vel er hægt að bregðast við með öðmm hætti. Stundum er talað um »instrumental values« og »substantive values«. Þama eru það tœknigildin eða verklagsgildin sem verða ofan á en undirstöðugildin eru vanrækt, þau sem hafa eitthvert inntak í sjálfu sér. Hin em bara ákveðin tækni sem menn tileinka sér til að leysa ákveðin verkefni en láta lönd og leið að leggja grunn að siðferðisþroska, nauðsynlegum þætti í persónu- og félagsþroska manna. Þetta höfum við vanrækt. Lbl.: Við látum umrœðunni lokið að sinni, en þráðurinn verður tekinn aftur upp í haust á Lœknaþingi.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.