Læknablaðið - 15.10.1989, Blaðsíða 68
Tveir góðir kostir til meðferðar
á sári í maga og skeifugörn:
GASTRAN
(ranitidín)
SÚKRAL
(súkralfat)
R,E, TÖFLUR; A 02B A 02. Hver tafla inniheldur: Ranitidinum INN, klóríö, samsvar-
andi Ranitidinum INN 150 mg eöa 300 mg. Eiginleikar: Lyfiö blokkar histamínviö-
tæki (H2) og dregur þannig úr myndun saltsýru í maga. Eftir inntöku vara áhrif lyfsins
a. m. k. 8 klst. Helmingunartími í blóöi er 2—3 klst. Ábendingar: Sársjúkdómur í
skeifugörn eða maga. Bólga í vélinda vegna bakflæðis (reflux oesophagitis). Zollinger-
Ellison syndrome. Æskilegt er, aö þessar greiningar séu staöfestar meö speglun. Varn-
andi meöferö viö endurteknu sári í skeifugörn eöa maga. Til aö hindra sármyndun í
maga eöa skeifugörn vegna streitu hjá mikiö veikum sjúklingum. Varnandi meöferö við
endurteknum blæðingum frá maga eöa skeifugörn. Frábendingar: Ekki er ráölegt aö
gefa lyfið vanfærum eða mjólkandi konum nema brýn ástæða sé til. Ofnæmi fyrir lyf-
inu. Aukaverkanir: Þreyta, niöurgangur eöa hægöatregöa. Höfuöverkur, stundum
mjög slæmur. Svimi getur komið fyrir. Stöku tilviki af tímabundnu rugli og ofskynjun-
um, einkum hjá mikiö veiku og öldruðu fólki. Óskýr sjón, liklega af völdum sjónstilling-
artruflana. Ofnæmi (ofnæmislost, hiti, útbrot, angioneurotiskt ödem, samdráttur í
berkjum) kemur fyrir einstaka sinnum. Fækkun hvítra blóðkorna og blóðflagna hefur
komiö fyrir, en gengur venjulega til baka þegar lyfjagjöf er hætt. Einstöku tilviki agra-
nulocytosis eöa pancytopenia hefur veriö lýst. Tímabundnar breytingar á lifrarstarfsemi
með eða án gulu. Brjóstastækkun hjá körlum hefur örsjaldan veriö lýst. Hægur hjart-
sláttur sést einstaka sinnum. AV-leiöslurof og jafnvel asystola. Milliverkanir: Ekki
þekktar. Eiturverkanir: Mjög lítil reynsla er enn komin af eiturverkunum rantidíns.
Einkenni: Hægur hjartslátturogandþrengsli. Medferd: Magatæming, lyfjakol. Reyna má
atrópín viö hægum hjartslætti. Aö ööru leyti symptómatísk meðferö. Varúð: Viö
nýrnabilun getur þurft að gefa lægri skammta lyfsins. Varaö er viö langti'manotkun
hærri skammta af lyfinu en mælt er meö. Skammtastærðir handa fullorðnum: Vid
sársjúkdómi iskeifugöm eða maga: 300 mg fyrir svefn eöa 150 mg tvisvar á dag. Meö-
ferö skal vara í a.m.k. 4 vikur, jafnvel þótt einkenni hverfi fyrr. Við reflux oesophagilis:
150 mg tvisvar á dag í 8 vikur. Við Zollinger-Ellison syndrome: í upphafi 150 mg þrisvar
á dag. Ekki er mælt meö stærri dagsskömmtum en 900 mg. Vamandi meðferð uið sári
iskeifugöm eða maga: 150 mg fyrir svefn. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið
er ekki ætlaö börnum.
R,E TÖFLUR; A 02 B X 02. Hver talla inniheldur: Sucrallalum INN 1 g Eiglnlelkar;
Súkralfat er basískt alúminíumsúkrósusúlfat. Verkun lyfsins á sár í maga og skeifugörn
byggist á eftirfarandi: 1) efnið binst próteinum í yfirborði sársins og myndar þannig
verndandi himnu, 2) efnið hefur sýrubindandi verkun og hækkar pH í maga, 3) efniö
hefur bein áhrif á pepsín og minnkar virkni þess, 4) efnið bindur gallsýrur. Frásog lyfs-
ins frá meltingarvegi er hverfandi. Ábendingar: Sár í skeifugörn. Sár í maga, sem hef-
ur verið staöfest með magaspeglun eða vefjasýni. Fróbendingar: Alvarleg nýrna-
bilun, vegna þess aö lyfiö inniheldur alúminíum. Beinrýrnun og beinmeira. Auka-
verkanir: Algengast er hægöatregöa (2%). Einstaka sinnum kemur fyrir munnþurrk-
ur, ógleði, magaverkir, svimi eða kláöi. Milliverkanir: Lyfiö getur dregið úr frásogi
segavarnalyfja, tetracýklínsambanda, dísúlfírams, digoxíns og ísóníazi'ös. Skammta-
stærðir handa fullorðnum; 1 g i' senn 3-4 sinnum á dag klukkustund fyrir mat og
fyrir svefn. Ef sýrubindandi lyf eru einnig notuö, veröur aö taka þau minnst 1h klst.
fyrir eða eftir töku Súkrals. Lengd meðferöar er venjulega 4-6 vikur. Skammtastærðir
handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum.
Pakkingar; Töflur 1 g: 60 stk.; 120 stk.
Ávísun á íslensk lyf eflir innlendan iðnad
og leiðir til aukins sparnaðar.
Pakkningar: Töflur 150 mg: 20 stk.; 50 stk.; 100 stk;
100 stk x 10 (sjúkrahússpakking)
Töflur 300 mg: 30 stk.; 60 stk.; 100 stk.
J/A TÓRÓ HF
Síöumúla 32, 108 Reykjavik. o 686964