Læknablaðið - 15.12.1989, Blaðsíða 40
406
LÆKNABLAÐIÐ
þátta var notað lógaritmískt línulegt líkan
(loglinear model). Notuð voru BMDP forrit
(16).
Avallt var tekið tillit til áhrifa aldurs og
þess hvort menn voru tenntir í báðum
gómum, öðrum gómi eða tannlausir.
Við marktæknipróf var notað kí-kvaðrat
líkindahlutfall (likelihood ratio chi-square)
og miðað við 5% mark.
NIÐURSTÖÐUR
Heimsóknir. Tafla I sýnir aldur við fyrstu
heimsókn til tannlæknis (eða læknis vegna
tanna). Hér má sjá, að hinar eldri í hópnum
voru margar hverjar komnar á fullorðinsár, er
þær fyrst nutu tannlæknisþjónustu af einhverju
tagi. Samband reyndist vera milli aldurs og
fyrstu heimsóknar til tannlæknis og var það
tölfræðilega marktækt (p<0.001). Tæplega
72% þeirra, sem voru á sextugsaldri, þegar
rannsóknin var gerð, sögðust hafa farið til
tannlæknis fyrir sextán ára aldur, en einungis
liðlega 39% kvenna á áttræðisaldri. Hins
vegar var ekki marktækt samband milli aldurs
við fyrstu heimsókn og tannleysis í öðrum eða
báðum gómum (p=0.10).
Spurt var: »Fórst þú reglulega til tannlæknis
meðan þú varst í skóla (a.m.k. árlega)?« Eins
og sjá má af töflu II þá voru heimsóknir á
skólaaldri til tannlæknis fremur fátíðar. Af 508
konum, sem svöruðu spumingunni, sögðust
24,6% hafa farið reglulega til tannlæknis
meðan á skólagöngu stóð. Tölfræðilega
marktækt samband er á milli aldurs og
reglulegra heimsókna á skólaaldri þannig,
að þær yngri hafa farið mun oftar (p=0.01).
Samband reglulegra heimsókna á þessum
tíma við það hvort konumar em núna tenntar
eða tannlausar er þó sterkara (p<0.001)
sjá mynd 1. Þetta er þó ekki tölfræðilega
marktækt, þegar tillit hefur verið tekið til hins
síðamefnda (p=0.11). Þannig voru rúmlega
55% tannlausar af þeim konum, sem ekki
kváðust hafa leitað tannlæknis reglulega
meðan á skólagöngu stóð.
Tafla III sýnir tíma þann, sem að sögn
kvennanna var liðinn frá seinustu heimsókn.
Tæplega 36% hafa ekki vitjað tannlæknis
um meira en fimm ára skeið. Við nánari
athugun kemur í ljós, að 93,4 % þeirra em
tannlausar með öllu. Myndir 2 og 3 skýra
þetta enn frekar. Einungis 11,8% tannlausra
52-59 60-69 70-79
Aldurshópar
Mynd 1. Reglulegar heimsóknir kvenna til tannlæknis
meðan á skólagöngu stóö sýndar í hundraðshlutum
eftir aldri.
%
Mynd 2. Tími frá seinustu heimsókn TENNTRA
kvenna til tannlæknis.
%
Mynd 3. Tími frá seinustu heimsókn TANNLAUSRA
kvenna til tannlæknis.
kváðu minna en ár liðið frá seinustu heimsókn
til tannlæknis og 66,9% höfðu ekki farið til
tannlæknis í meira en fimm ár. Um 96,7%
tenntra einstaklinga í yngsta hópnum sögðust
hafa farið á síðustu tveim árum, en 91,1%
hinna elstu.