Læknablaðið - 15.08.1990, Page 6
278
LÆKNABLAÐIÐ
aðgerðir, sem eru líklegar til þess að valda
bakteríublóðsmiti, svo koma megi í veg fyrir
hjartaþelsbólgu (5).
Tilmæli American Heart Association (AHA)
í Bandaríkjunum til tannlækna, um hvemig
nota skuli sýklalyf til að koma í veg fyrir
hjartaþelsbólgu (5, tafla I), þóttu ekki hagnýt
enda sýndu rannsóknir að þeim var ekki
hlýtt (6,7,8). Þeim var því breytt og þau
einfölduð (9, tafla II). Rannsóknir Shanson og
félaga (10,11) hafa orðið til þess að í ýmsum
Evrópulöndum hefur tilmælum til tannlækna
verið breytt.
Hjartalæknafélag Evrópu, hjartalæknafélög í
Bretlandi og Skandinavíu mæla nú með því
ásamt öðrum, að amoxýsillín sé notað til að
koma í veg fyrir hjartaþelsbólgu (12,13,14,
tafla III). Tilmæli til íslenskra tannlækna hafa
á hinn bóginn verið nokkuð á aðra lund (15,
tafla IV).
f þessari grein skýrum við frá rannsókn
okkar á fyrirbyggjandi sýklalyfjanotkun
hjá íslenskum tannlæknum og berum
niðurstöðumar saman við niðurstöður
sambærilegra rannsókna sem nýlega voru
framkvæmdar í Skotlandi (8,16).
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Spumingalisti, með spumingum um það
hvemig sýklalyf væru notuð til að koma
í veg fyrir hjartaþelsbólgu af völdum
baktería, var saminn með sérstöku tilliti til
tannlækna. Listinn var unninn að fyrirmynd
spumingalista sem notaður var í tveimur
sambærilegum rannsóknum í austurhluta
Skotlands (8,16). Hann var síðan sendur
til allra íslenskra tannlækna sem voru á
skrá í heilbrigðisráðuneytinu. Svörin átti að
endursenda án nafns svaranda. Spumingamar
beindust einkum að því hvaða sýklalyf væru
notuð og hvemig. Einnig var spurt, hve löngu
fyrir tannaðgerð lyfin væru gefin, hve lengi
væri haldið áfram með þau eftir aðgerð og
hvaða lyf yrðu fyrir valinu ef sjúklingur
hefði penisillín ofnæmi. Niðurstöðumar voru
síðan bomar saman við niðurstöður skosku
rannsóknanna eftir því sem við átti.
NIÐURSTÖÐUR
Alls voru sendir út spumingalistar til 204
tannlækna og af þeim svöruðu 68 (33%).
Flestir þeirra sem svöruðu, höfðu fyrir reglu
Table 2. Current recommendations of the American Heart
Association for prophylaxis in dental surgery.
I. Slöóluö áætlun:
A. Fenoxýmetýlpenisillín 2.0 g um munn einni
klukkustund fyrir tannaðgerö og síðan 1.0 g sex
klukkustundum síðar.
B. Geti sjúklingar ekki tekið lyf um munn: Tvær
milljón einingar af penisillíni I vöðva 30-60
mínútum fyrir aðgeröina og ein milljón
einingar sex klukkustundum síðar.
II. Áætlun fyrir sérstök tilfelli:
A. Lyf gefin I æð þegar þörf er á bestri
mögulegri forvörn (til dæmis hjá sjúklingum
með gervilokur): Ampisillín 1.0-2.0 g og
gentamísín 1.5 mg/kg í vöðva 30 mínútum
fyrir aögerö. Síðan 1.0 g af
fenoxýmetýlpenisillíni um munn sex
klukkustundum síöar.
B. Inntökulyf fyrir sjúklinga með
penisillínofnæmi: Erýþrómýsín 1.0 g
um munn 60 mínútum fyrir aðgerö, síðan
500 mg sex klukkustundum síðar.
C. Stungulyf fyrir sjúklinga með
penisillínofnæmi: Vankómýsín 1.0 g gefið hægt
í æð (á einni klukkustund) einni kukkustund
fyrir aðgerð.
Table 3. Recommendations of the British Society for
Antimicrobial Chemotherapy and European Cardiological
Society for prophylaxis in dental surgery.*
Ekki meö penisillínofnæmi Með ofnæmi fyrir penisillini
Amoxýsillín um munn Amoxýsillín í æö eöa vööva Erýþrómýsín um munn Vankómýsín í æö
3g einni 1g rétt fyrir 1.5g einni klst. 1 g rétt fyrir
klst. fyrir aðgerð fyrir aögerö aögerð
aðgerö 0.5g sex 0.5 g sex
klst. síðar klst. síðar
* í töflunni eru gefnir upp skammtar fyrir fulloröna. Barnaskammtar
eru: a) til inntöku: amoxýsillín 50 mg/kg skammtur, erýþrómýsín
30 mg/kg í fyrsta skammti en síöan 10 mg/kg; b) stungulyf:
amoxýsillín 25 mg/kg í fyrsta skammti en síöan hálfur sá skammtur,
vankómýsín 20 mg/kg skammtur. Tímabil milli gjafa er þaö sama og
hjá fullorönum. Heildarskammtur má ekki fara yfir fulloröinsskammta.
að spyrja sjúklinga sína hvort þeir hefðu
einhverja áhættuþætti fyrir hjartaþelsbólgu.
Gjöf sýklalyfja: Af þeim sem svöruðu höfðu
57% notað sýklalyf í forvamarskyni, einu
sinni eða oftar á síðastliðnum sex mánuðum.
1) Aðgerðir sem gáfu tilefni til
sýklalyfjayjafar. I töflu V eru upplýsingar
um þær aðgerðir sem gáfu tilefni til
sýklalyfjagjafar og eru þær bomar saman
við sambærilegar tölur úr könnuninni sem
gerð var meðal skosku tannlæknanna 1985
(16). Islenskir tannlæknar voru ekki jafn fúsir
skosku kollegunum að gefa fyrirbyggjandi