Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.08.1990, Side 25

Læknablaðið - 15.08.1990, Side 25
LÆKNABLAÐIÐ 1990; 76: 295-8 295 Hjalti Kristjánsson 1), Jóhann Ág. Sigurðsson 1), Guöjón Magnússon 1), Leif Berggren 2) SKOÐANIR LÆKNA Á STARFSSVIÐUM SÉRGREINA I ÁGRIP Fjallað er um skoðanir lækna á skipulagningu heilbrigðisþjónustu og hugtakið huglæg vallhöslun (non-physical territorial behaviour) skilgreint í þessu samhengi. Um er að ræða samnorræna könnun þar sem sendur var út listi með 65 fullyrðingum til sérfræðinga í ýmsum sérgreinum. Hér á landi tóku 150 læknar í sjö sérgreinum þátt í könnuninni (81% heimtur). Þessi grein er sú fyrsta af fimm um íslenska hlutann og hér verður einkum gerð grein fyrir efnivið, aðferðum, spumingum og helstu niðurstöðum. INNGANGUR Bæði menn og skepnur hafa ávallt haft þörf fyrir að afmarka sér ákveðin svæði. Þessi tilhneiging kemur einna gleggst fram í hegðun ýmissa dýra við það að helga sér land og verja það síðan með kjafti og klóm og í landamæradeilum mannkynssögunnar. Innan samfélaga og starfsstétta skapast einnig ákveðin verkaskipting eða huglæg landamæri sem nefnd hafa verið á enskri tungu »non- physical territoriality«. Síðustu áratugi hafa verið gerðar fjölmargar rannsóknir á hegðunarmynstri dýra í þessu sambandi (1,2). Upp úr 1980 vaknaði áhugi á því að athuga ferli manna, meðal annars innan heilbrigðisstéttanna (3). Fyrri rannsóknir á þessu sviði (1,3,4) sýna að starfsstéttir eða fagféiög hafa ýmis sérkenni, en þau eru einkum þessi: * Fagið byggist á sérstakri menntun. * Menntunin er byggð á kenningum og þekkingu innan ákveðinnar vísindagreinar. * Starfsstéttin reynir að stjóma menntuninni. * Fagfélagið setur sér ákveðnar siðareglur. Frá 1) læknadeild Háskóla íslands / heimilis- og félagslæknisfræöi, 2) Nordiska Hálsovárdshögskolan, Gautaborg. Ennfremur hefur komið fram að fagfélög eða starfsstéttir hafa tilhneigingu til að nota sérstakt málfar eða orð sem aðrir eiga erfitt með að skilja. Tilgangurinn mun í upphafi hafa verið að auðvelda samskipti stéttarinnar innbyrðis, en verður jafnframt til þess að afmarka verksvið hennar vegna þess að , utanaðkomandi aðilar eiga erfitt með að skilja um hvað er rætt. Upp úr 1970 urðu miklar umræður á Norðurlöndunum um eflingu læknisþjónustu utan sjúkrahúsa. Þessi umræða átti sér þó langan aðdraganda og fyrirmyndimar komu einkum frá Bandaríkjunum, Kanada og Bretlandi. Heilbrigðisyfirvöld á Norðurlöndunum tóku þá ákvörðun að hefja markvissa uppbyggingu heilsugæslustöðva og efla sémám í heimilislækningum. Jafnframt var lögð aukin áhersla á kennslu í þessari grein á háskólastigi. Heimilislækningar höfðu dregist verulega aftur úr hinni faglegu þróun innan læknisfræðinnar fram að þessu. Þegar greininni óx aftur fiskur um hrygg og heimilislæknisfræði var orðin jafngild annarri sérfræðimenntun, varð strax ljóst, að heimilislæknar töidu sig eiga að sinna ákveðnum verkefnum, sem sérfræðingar í öðrum greinum höfðu áður annast. Skapaðist því rígur innan læknastéttarinnar um ákveðin verkefni og forgangsröðun fjármuna til heilbrigðismála. Þessar umræður hafa oft leitt til deilna í fjölmiðlum bæði hérlendis og erlendis. Hér á landi hefur sérfræðingum í heimilislækningum fjölgað verulega eða frá einum í 67 á síðastliðnum tíu árum. Það mátti því vænta þess að fram kæmu sömu vandamál og annars staðar, það er að segja skoðanaágreiningur um verksvið. Tilgangur þessarar rannsóknar var því að athuga hvort um faglegan ágreining væri að ræða milli heimilislækna og annarra

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.