Læknablaðið - 15.08.1990, Page 43
LÆKNABLAÐIÐ
309
fyrir báðar mæliaðferðir. Eftirtaldir staðlar
eru í notkun: Seronorm frá Nycomed (þrír),
Precinorm U frá Boehringer Mannheim (tveir),
Precicet frá Boehringer Mannheim (einn),
Precilip frá Boehringer Mannheim (einn),
National Bureau of Standards, USA (einn),
Secutrol®U frá Dr. Lange, Vestur-Þýskalandi
(einn).
NIÐURSTÖÐUR OG UMRÆÐA
I meðfylgjandi töfiu er birt yfirlit yfir
ónákvæmni í niðurstöðum innan og milli
rannsóknastofa. Onákvæmni (imprecision) í
kólesterólmælingum innan rannsóknastofa er
allbreytileg, minnst er hún 0,5% en mest 6,3%
við hæsta kólesterólgildið. Þessar tölur benda
til að verulega sé unnt að draga úr ónákvæmni
þar sem hún er mest. Hjá meirihluta stofanna
er ónákvæmnin um eða innan við 3%, en
það telst góður árangur. Onákvæmni milli
rannsóknastofa er hins vegar á bilinu 3,8% til
6,9%, og er umtalsvert hærri þegar dýrasermi
er notað og eykst hún þar með hækkandi
kólesterólgildum. Samræmist þetta reynslu
annarra, þar sem dreifing á mæliniðurstöðum
rannsóknastofa er meiri þegar notuð eru
frystiþurrkuð dýrasýni heldur en fryst eða
fersk mannasýni. Astæðumar eru meðal
annars þær að mæliaðstæður eru miðaðar
við mannasýni og samsetning dýrasýna
kann að trufla mælingarnar að einhverju
leyti, auk þess þarf að leysa frystiþurrkuð
sýni í vatni og veldur það skekkjuþætti
sem ekki er til staðar í mannasýnunum.
Meðalfrávik allra rannsóknastofanna frá
gefnu gildi dýrasermisins (% bias) sést í
aftasta dálki töflunnar og reyndist vera frá
0%'til -4,3%. Frávik einstakra rannsóknastofa
frá gefnum gildum kontrólsýna A, B og C
eru sýnd á mynd 1 og sést þar dreifingin
á niðurstöðum alls hópsins. Til frekari
glöggvunar eru teiknuð inn á myndina + og
- 10 % frávik. Oáreiðanleiki (inaccuracy
eða bias) einstakra rannsóknastofa kemur
glöggt fram og er öllu meiri hjá þeim sem
sýna stærst frávik en greint er frá erlendis
(6,7), enda hafa þar víða verið í gangi
svæðisbundnar kannanir sambærilegar þessari
í áraraðir og rannsóknastofur verið með
markviss vinnubrögð til að draga úr þessum
mun. Nýlega er hafin samvinna um notkun
á sama staðli á öllum rannsóknastofunum,
sem tóku þátt í þessari könnun, til að minnka
Cholesterol, assigned value, mmol/l
Figure I. Absolute bias in cholesterol measurements illu-
strating the deviation of nteasured - assigned value of the
control material (A. B and C) in all eight laboratories. plot-
ted vs the assigned value (x-axis). The broken lines radi-
ating front the zero point encompass + and - 10 % bias.
Each point is an average of 10 measurements.
Triglycerides, assigned value, mmol/l
Figure 2. Absolule bias in triglycerides measurements il-
luslrating the deviation of measured - assigned value of
the control material (A. B and C) in all eight laboratories.
plotted vs the assigned value (x-axis). The broken lines ra-
diating from the zero point encompass + and - 10 % bias.
Each point is an average of 10 nteasurements.
þennan óáreiðanleika. Staðallinn var valinn
sérstaklega með það sjónarmið í huga að
nálgast »reference« gildi, eða hið rétta gildi
kólesteróls í daglegri mælivinnu.
Niðurstöður úr mælingum á HDL-kólesteróli
eru mjög ónákvæmar og samrýmist það