Læknablaðið - 15.08.1990, Síða 48
314
LÆKNABLAÐIÐ
Fig. 2. A mild orf infection on the lower lip of a lamb
owned and handled by the housewife in case 1 (fig. 1).
Fig. 3. A papillomatous orf infection on the udder of an
ewe whose lamb had an orf infection on the lower lip
(see fig. 2).
Fig. 4. Nine or ten orf blisters on the left index finger
of a farmer who had been feeding some tablets into the
mouth of an infected lamb.
pillur og tróð hann þeim upp í þau með
fingrinum. Hann tók eftir því, að eitt lambið
hafði útbrot á snoppunni.
Við skoðun hafði hann níu eða tíu bólur
aftanvert á vinstri vísifingri, yfir nærkjúkunni
og upp á hnúann. Þetta voru blöðrur,
rauðar í miðju, snjóhvítur hringur þar utan
um, en áberandi roðasvæði yst, ára eða
»haló«. Holhöndin var aum, en ekki að
finna stækkaðan eitil. Blöðrumar virtust
vökvafylltar og var skorið ofan af þeim.
Ekki kom neinn vökvi út. Maðurinn fékk
síðan díkloxasillínhylki (Staklox®) af ótta
við ofansýkingu baktería. Grisjur með
framýsetíni (Soframycin®) voru notaðar
og skipt reglulega á bólunum. Þær greru á
nokkrum vikum.
Undir lokin fór að bera á útbrotum á olnboga
sömu megin og hann fékk bóluna. Þessi útbrot
minntu á sóra (psoriasis). í ætt mannsins var
saga um sóra, en hann hafði ekki fengið þann
sjúkdóm sjálfur.
Þegar síðast fréttist var komið haust og
einhverjar hrufur höfðu tekið sig upp á
hnúanum þar sem ein stærsta bólan hafði
verið. Kom þar sýking í, sem hvarf undan
basítrasín-neómýsín áburði (Topicin®). Þá
voru örin eftir bólumar frekar ljót.
Önnur tilfelli. Fjárbóndasonur 15 ára kom í
desember með dæmigerða kindabólu á hægri
þumli. Þetta var bóla í byrjun sem síðan fékk
á sig útlit vökvafylltrar blöðru. Drengurinn
hafði og stóran auman eitil í hægri holhönd.
Bólan greri á rúmum mánuði og var eitillinn
greinilega minnkandi við síðustu skoðun.
Dýralæknir Dalahéraðs kann frá því að segja,
að í héraði þar sem hann starfaði eitt sinn,
fékk prestmaddama kindabólu á fingur.
Hafði hún þó ekkert sauðfé umgengist og
ekki farið í útihús, heldur einungis heilsað
sveitarbændum með handabandi er þeir
komu í kirkjukaffi eftir messu. Var þar
margt fjárbænda, en enginn með sjáanlega
bólu á hendi. Þó var bóla sú er konan fékk
að öllu leyti dæmigerð fyrir umræddan
sjúkdóm. Ekki fengu aðrir kindabólu við
þetta tækifæri, að því er dýralækninn rak
minni til. (Munnlegar upplýsingar Rögnvaldar
Ingólfssonar dýralæknis).
Við eigum ekki myndir af þessum sjúklingum.