Læknablaðið - 15.10.1990, Blaðsíða 58
418
LÆKNABLAÐIÐ
á undanfömum ámm. Læknafélag íslands
hefur þó sýnt smá viðleitni til símenntunar
og viðhaldsmenntunar lækna hér á landi
allt frá árinu 1955 og jafnvel fyrr. Engin
skipulögð símenntun hefur þó verið viðhöfð
hér á landsvísu þrátt fyrir ýmsar ábendingar.
Á aðalfundi Læknafélags Islands árið 1972
var samþykkt að megin verkefni félagsins árið
1973 yrði framhalds- og viðhaldsmenntun
lækna á íslandi. Á þessu tímabili var
læknaskortur áhyggjuefni margra í dreifbýli.
Þessi ákvörðun á aðalfundi kom í framhaldi
af ritstjómargrein í Læknablaðinu sem fjallaði
um nýjar tillögur: »Um menntun lækna og
annarra heilbrigðisstétta á Islandi«.
í ársskýrslu L.í. árið 1974 lét félagið frá sér
fara greinargerð þess efnis að stefnt verði að
því að framhaldsmenntun íslenskra lækna fari
fram hér á landi, einkum framhaldsmenntun
heimilislækna. Læknadeild H.í. og L.í.
áttu að annast undirbúning máls þessa og
greinargerð þessi var lögð til grundvallar
framhaldsmenntunammræðu fyrri ára. Á
aðalfundi L.I. árið 1975 komu síðan tillögur
um málið og ákveðið var að skipa þriggja
manna nefnd til að ganga frá greinargerð um
sémám í heimilislækningum, handlæknisfræði
og almennum lyflækningum. í framhaldi
af þessu beitti L.í. sér fyrir viðræðu við
menntamálaráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti á
ámnum 1975 og 1976 um framhaldsmenntun
lækna hér á landi. Tillögum áður skipaðrar
nefndar um málið var skilað 1977. Eftir
að þessum tillögum var skilað var lítil
umræða um málið meðal lækna en þó létu
nokkrir í ljós álit sitt og skoðanir meðal
annars Ámi Bjömsson yfirlæknir í grein sem
hann skrifaði í Læknablaðið í janúar 1977
um framhaldsmenntun lækna og samstarf
sjúkrahúsa.
Á aðalfundi L.í. árið 1982 var gerð tillaga
um að'koma á skipulögðu framhaldsnámi
lækna á íslandi sem allra fyrst. L.í. fékk
heimild til að ráða sérfræðing í þriggja
eykta starf til að vinna að framgangi
málsins. Heimild þessi mun hinsvegar
ekki hafa verið notuð. Samtímis jressu
ávítaði L.í. læknadeild Háskóla Islands
fyrir að hafa ekkert raunhæft gert í þessu
máli. Á sama ári kom fram áskorun frá
Félagi ungra lækna til heilbrigðisráðherra
að koma á fót framhaldsnámi fyrir lækna
hér á landi sem allra fyrst. í framhaldi
af þessari umræðu skipaði þáverandi
heilbrigðisráðherra fimm manna nefnd árið
1983 til að skila niðurstöðum um sérmenntun
lækna hér á landi. Þessi fimm manna nefnd
skilaði áliti árið 1985. Nefndin lagði til að
heilbrigðisráðuneytið skipaði þriggja manna
nefnd, svokallaða sémámsnefnd lækna.
Hlutverk sémámsnefndar var að hafa yfirstjóm
á sémámi hér á landi og samhæfa gæðaeftirlit
og eftirlit með sémámi. Þessi nefnd áleit
brýnt að skipuleggja sémám hér á landi,
en jafnframt að ná samningi við erlendar
heilbrigðisstofnanir um sémám íslenskra
lækna. Lagði hún til að sémám yrði í að
minnsta kosti fjómm greinum læknisfræðinnar
hér á landi.
Segja má að greinargerð þessi hafi verið
mörgum fagnaðarefni og stór áfangi í
símenntunar- og sérmenntunarumræðu lækna
á íslandi. Enn er ástæða til að vekja upp
umræðu og móta viðhorf bæði í framhalds-
og símenntun lækna. Læknar þurfa ávallt að
gera ítmstu kröfur til sjálfra sín í sambandi
við símenntun.
Hvað vilja íslenskir læknar í sambandi
við viðhaldsmenntun sína? Víða í Evrópu
eru viðhaldsmenntunarmál í höndum
sérgreinafélaga lækna en háskólasjúkrahús
útvega oft kennslukrafta til viðhalds- og
undirstöðumenntunar. I Bandaríkjunum
og Frakklandi og víðar er frumkvæðið hjá
læknasamtökunum sjálfum en í Sovétríkjunum
hefur frumkvæðið verið hjá ríkinu (flokknum).
Að lokum: íslenskir læknar eru tilneyddir til
að taka þessi mál föstum tökum og gera sér
betur grein fyrir forsendum símenntunar, fanga
viðfangsefnið og kanna nánar hug og vilja
meðal lækna í landinu.
HEIMILDIR
1. Viðar Hjartarson. Framhaldsmenntun íslenskra lækna.
Læknablaðið 1985; 71: 18-21.
2. Ami Kristinsson. Tillögur um framhaldsnám lækna á
Islandi. Arsskýrslur Læknafélags íslands fyrir starfsárið
1974-1975.
3. Lakares Videre Utbildning i de Nordiske Landeme.
SNAPS, maí 1986.
4. Fyrirlestrar og gögn frá fyrstu alþjóðlegu ráðstefnu um
símenntun lækna (CME) desember 1986. Califomia:
Annenberg Center.
5. Ami Bjömsson. Framhaldsmenntun lækna og samstarf
sjúkrahúsa. Læknablaðið 1977; 63: 20-2.