Læknablaðið - 15.10.1990, Page 70
430
LÆKNABLAÐIÐ
liður f stærri rannsókn, sem hefur að markmiði að
kanna hversu stór hópur Islendinga gæti verið ófrjór
af ónæmisfræðilegum orsökum. Ætlunin er að nálgast
síðar þau pör sem reynt hafa árangurslaust að eignast
bam í að minnsta kosti eitt ár (skilgreining á ófrjósemi).
Við mótefnamælingar var notaður ZER prófefnapakki
(kit), sem mælir IgG, IgM og IgA sáðfrumumótefni.
Algengi hækkaðs styrks hjá körlum þessa hóps reyndist
vera 4% en 7% hjá konum, sem er svipað og erlendar
rannsóknir hafa sýnt. Erlendar rannsóknir sýna að tíundi
hluti þeirra para, sem óska þess að eignast bam, er
ófrjór af einhverjum ástæðum. Þar af er talið að 10-20%
ófrjórra para séu bamlaus vegna sáðfrumuónæmis.
Niðurstöður þessarar könnunar benda til þess að á
íslandi megi því hjálpa umtalsverðum fjölda einstaklinga
með því að gefa viðkomandi ónæmishemjandi lyf.
DJÚPAR SÝKINGAR OG LOS Á BRINGUBEINI
EFTIR HJARTAAÐGERÐIR
Höfundur: Kristinn B. Jóliannsson, handlœkningadeild
Landspítalans
Flytjandi: Kristinn B. Jóliannsson
Hjartaaðgerðir vom gerðar á 515 íslendingum erlendis
árin 1983 til 1986. Úndir kransæðaaðgerðir gengust
438 sjúklingar og 77 lokuaðgerðir vom gerðar. Mikið
var um minniháttar sýkingar hjá þessum sjúklingum.
Hjá 25 þessara sjúklinga þurfti að gera aðgerð vegna
djúpra sýkinga í skurði, loss á bringubeini og sýkinga
í miðmæti. Einn sjúklingur fór utan í aðgerð vegna
beineyðingar í bringubeini og djúpra sýkinga í miðmæti.
Tíðni djúpra sýkinga hjá þessum sjúklingahópi var
4,8%. Tvö hundmð og fimmtán brjóstholsaðgerðir
vom gerðar á brjóstholsaðgerðadeild Landspítalans frá
15. júní 1986 til 5. mars 1989. Hjá fjómm þessara
sjúklinga þurfti að gera aðgerð vegna sýkinga og loss
á bringubeini, eða 1,4%. Tíðni minniháttar sýkinga var
lítil. Hjá báðum þessum sjúklingahópum greru sárin
eftir meðferð og aðeins hjá einum þurfti að gera aðgerð
vegna beineyðingar.